Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Blaðsíða 13
föstudagur 3. desember 2010 fréttir 13
STOFNAÐ 1971 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is
TILBOÐ 99.990
FULLT VERÐ kr. 139.990
Panasonic TXL22D28
22" Pure Line IPS LED LCD SJÓNVARP með 1366x768p upplausn,
Vreal 5, 50.000:1 skerpu, 24p Smooth Film/Play Back, 2msec
svartíma, 3D Colour, stafrænum háskerpu HDTV DVB-T móttakara
(MPEG4), 6w Nicam Stereó V-Audio Surround hljóði, SD/SDHC
kortalesara, 2 x Scart, 2 HDMI 1.3 (1x 1.4), Component, CI rauf,
SVHS, CVBS, PC, Optical út, heyrnatólstengi, iPod vöggu ofl.
MEÐ iPOD VÖGGU
5
DVB-T
HDMI
VGA
LED
Fæst hvítt
eða fjólublátt
Á ÍSLANDI
ideas for life
Sex ára stúlka fékk bréf frá bókasafni Mosfellsbæjar vegna van-
skila á barnabókum. Í bréfinu er því hótað að andvirði bókanna
auk dagsekta verði send í innheimtu til Intrum.
Sex ára fékk
innheimtubréf
„Þetta er alveg fáránlegt,“ segir Hilm-
ir Kolbeins faðir sex ára stúlku sem á
miðvikudag barst bréf frá bókasafni
Mosfellsbæjar vegna vanskila á barna-
bókum. Í bréfinu, sem stílað er á telp-
una, er því hótað að andvirði bókanna
auk dagsekta verði send í innheimtu
til Intrum með tilheyrandi innheimtu-
kostnaði ef ekki verði gerð skil eða
samið um málalok innan 15 daga.
Hilmir segir mikla gleði hafa ríkt
hjá dóttur sinni þegar henni barst bréf
frá bóksafninu þegar hún varð sex ára
þar sem henni var greint frá því að
hún gæti nú fengið bókasafnsskírteini.
Móðir hennar hafi farið með henni á
bókasafnið á sínum tíma og skrifað sig
niður sem forráðamann. Síðan þá hafi
þær mæðgur verið duglegar að fara til
að fá bækur að láni.
Tvær vikur fram yfir
Hilmi og eiginkonu hans brá því held-
ur betur í brún þegar dóttur þeirra
barst hótunarbréfið frá bókasafninu
vegna barnabóka sem meðal annars
átti að skila þann 19. nóvember. Í bréf-
inu segir að um sé að ræða þriðju og
síðustu tilkynningu um vanskil. Hilm-
ir segir eiginkonu sína hafa hringt í
bókasafnið í leit að svörum. „Hún fær
þau svör að dóttir okkar væri skráð
fyrir kortinu,“ segir Hilmir sem ætlaði
varla að trúa sínum eigin eyrum.
Foreldrarnir könnuðust ekki við að
hafa fengið hinar tvær tilkynningarn-
ar. Þeir fengu þau svör hjá bókasafn-
inu að þær hefðu verið sendar rafrænt
á korthafa. „Sex ára barn er ekki með
netfang, hún er rétt byrjuð að lesa.
Við fengum þessar tilkynningar ekki,
hvorki bréflega né í tölvupósti.“
Aðspurður hvað þau hafi gert
í kjölfarið segir Hilmir að þau hafi
framlengt bókunum á netinu og býst
hann við að þar með sé málinu lok-
ið. Hann segir eiginkonu sína þó hafa
ákveðið að stúlkan fái ekki að vera
með bókasafnskort þarna lengur.
Tilkynning á korthafa, börn
yrðu aldrei rukkuð
Marta Hildur Richter, forstöðumaður
bókasafnsins í Mosfellsbæ, segir að
þó að tilkynningabréfið berist á nafn
barns sem korthafa sé það aldrei svo
að innheimtubréf frá Intrum verði
send á börn fari svo.
„Fólki bregður auðvitað þegar
þetta fer svona í gegnum kerfið og
lendir á nafni barnsins á bréfinu af
því það er skráð fyrir skírteininu. En
barnið sjálft fengi aldrei neina rukk-
un frá Intrum,“ segir Marta í samtali
við DV. Hún segir málið þó hafa verið
leyst farsællega og skuldin felld niður
í þessu tiltekna máli.
sigurður mikael jónsson
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Fékk hótunarbréf Faðirstúlkunnar
trúðiþvívartþegardóttirhansfékk
bréfið.Myndintengistefnifréttarinnar
ekki.mynd PhoTos
við okkur að þær hrókeruðu farþega-
listanum og við fengum sæti á besta
stað, hlið við hlið.“ Sigurður bætir
við: „Svo þegar við lentum í Kaup-
mannahöfn og vorum að bíða eftir
tengifluginu til Gautaborgar hringdi
síminn. Á línunni var Vilborg Sig-
urðardóttir, yfirmaður hjartaskipta-
aðgerða á Sahlgrenska-sjúkrahús-
inu. Hún var í rauninni bara að segja
að hún vissi af okkur og skýrði fyrir
okkur í stuttu máli að Helga myndi
vera í öruggum höndum á barnaspít-
alanum,“ segir Sigurður. María bætir
við með áherslu: „Það var svo gott að
heyra í henni.“
Þegar þau lentu á Landvetter-
-flugvelli í Gautaborg, tók á móti
þeim presturinn, Ágúst Einarsson,
og kunningjakona frá Akureyri. „Það
var gott að sjá kunnugleg andlit á
flugvellinum,“ segir Sigurður bros-
andi.
auðmjúk, hrærð og stolt
„Á leiðinni til Svíþjóðar var ég fyrst
og fremst þakklát fyrir alla þessa
hjálp. Fjöldi manns í tveimur löndum
að gera allt til þess að hjálpa 12 ára
stelpu frá Akureyri. Ég var eins og yfir-
komin af þakklæti og auðmýkt þegar
ég sá átta Svía koma inn á spítalann
í Reykjavík og fara með Helgu mína
á besta sjúkrahús sem hægt var að
hugsa sér. Ég bara varð orðlaus, auð-
mjúk og stolt að tilheyra svona samfé-
lagi. Já stolt,“ endurtekur María.
Sigurður og María dvelja í Ronald
McDonald-húsinu sem er við hlið-
ina á spítalanum. Svona McDonald-
hús eru hugsuð sem aðstaða fyrir
foreldra veikra barna og er að finna
í flestum borgum Evrópu og Banda-
ríkjanna.
„Aðstaðan hér er ótrúlega góð,
það er allt til alls. Það er eiginlega
ekki hægt að hugsa sér betri stöðu
miðað við allt sem gengið hefur á,“
segir Sigurður. Íslendingasamfélag-
ið í Gautaborg fylgist með Helgu og
foreldrum hennar. „Það eru marg-
ir búnir að hringja í okkur og bjóða
fram sína aðstoð við nánast hvað
sem er,“ segir María. Sigurður held-
ur áfram. „Ég vinn sem svæðisstjóri
hjá N1 og kúnnarnir mínir hafa haft
samband við mig og boðið fram sína
aðstoð og svo kom þessi Facebook-
söfnun í kjölfarið. Ég er orðlaus yfir
þessu.“
óvissan til staðar
Í Gautaborg fékk Helga loksins algera
hvíld undir vökulum augum lækn-
anna á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu.
„Læknarnir eru varkárir í öllum
yfirlýsingum en þeir hafa sagt okkur
að þeir séu bjartsýnir,“ segir María.
„Ég veit alveg hvað má segja og hvað
má ekki segja í svona tilfellum, enda
vinn ég á spítala. Ég veit að það eru
þúsund hlutir sem geta gerst. Þessu
er ekki lokið þótt segja megi að við
séum komin í skjól. Ég ætla ekki að
hugsa um mögulegan bata eða fram-
tíðina fyrr en við Siggi og Helga göng-
um héðan út með ferðatöskurnar.“
Teitur Atlason
héldu að helga
lifði ekki af flugið
helga sigríður sigurðardóttir Misstimeðvitundísundtíma.Húnernúundir
handleiðslufærustulæknaíGautaborg.