Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Side 14
14 fréttir 3. desember 2010 Föstudagur
Fjárfestingafélagið Máttur ehf. hefur
verið úrskurðað gjaldþrota. Máttur er
fjárfestingafélag sem var í eigu Karls
og Steingríms Wernerssona í gegnum
Sjóvá og Milestone og í gegnum eign-
arhaldsfélög bræðranna Benedikts
og Einars Sveinssona. Félagið átti
meðal annars hlut í eignarhaldsfélag-
inu Vafningi, sem miðlaði milljarða
króna láni frá Glitni til eigenda sinna
svo þeir gætu forðað hlutabréfum
sínum í Glitni undan veðkalli banda-
ríska fjárfestingabankans Morgan
Stanley í febrúar 2008, og einnig fyr-
irtækjum eins og Icelandair. Íslands-
banki leysti til sín hlut Máttar og fleiri
félaga í Icelandair í veðköllum í fyrra.
Máttur er sömuleiðis ennþá
skráður fyrir tæplega þriðjungshlut í
BNT hf., móðurfé-
lagi olíufélagsins
N1, á vefsíðu Láns-
trausts.
Eitt af öðru
gjaldþrota
Máttur er eitt
af nokkrum félögum sem tóku þátt í
Vafningsfléttunni sem annað hvort
hefur verið úrskurðað gjaldþrota
eða verið afskráð úr hlutafélagaskrá.
Þáttur International, eignarhaldsfé-
lagsins sem Wernerssynir og Engey-
ingar áttu í sameiningu og hélt utan
um eignarhlut þeirra í Glitni, var úr-
skurðað gjaldþrota í fyrra – nánast
ekkert fékkst upp í 24 milljarða króna
kröfurnar sem lýst var í búið – og
eignarhaldsfélagið Skeggi ehf. var af-
skráð hjá fyrirtækja-
skrá nú í nóvem-
ber vegna þess að
engin starfsemi
hefur átt sér stað
í félaginu. Félög-
in sem mynd-
uðu Vafningsfléttuna, sem snérist um
að ná um 30 milljörðum króna út úr
Glitni til að Wernerssynir og Bene-
dikt og Einar gætu staðið í skilum við
erlenda lánardrottna sína, leggja því
upp laupana eitt af öðru.
Þessi viðskipti eru gagnrýnd í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is en Vafningssnúningurinn var bú-
inn til svo hægt væri að fara í kring-
um reglur Glitnis um mikla áhættu
í lánveitingum til einstaka aðila. Í
staðinn fyrir að Þáttur International
fengi lán beint frá Glitni voru tvo fé-
lög, Vafningur og Svartháfur, stofnuð
og notuð til þess eins að miðla lánum
frá Glitni svo Wernerssynir og Bene-
dikt og Einar gætu staðið í skilum.
Um þetta segir í skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis: „Með þessu var
hægt að komast fram hjá leyfilegum
útlánamörkum og gildandi reglum
um stórar áhættur hvað varðar lán til
sömu eða fjárhagslega tengdra aðila.“
Bjarni sat í stjórninni
og veðsetti Vafning
Skiptastjóri þrotabús Máttar er Ás-
geir Jóhannesson lögfræðingur. Fyrsti
skiptafundur verður haldinn þann 18.
febrúar. Svo stutt er liðið síðan Mátt-
ur var úrskurðað gjaldþrota að ekk-
ert liggur ljóst fyrir með kröfulýsingar
í búið. Afar líklegt er hins vegar að Ís-
landsbanki sé meðal stærstu kröfuhafa
félagsins. Máttur hefur ekki skilað árs-
reikningi síðan árið 2007.
Samkvæmt ársreikningi ársins
2007 skipuðu Karl Wernersson, Guð-
mundur Ólason, Einar Sveinsson og
Bjarni Benediktsson, núverandi for-
maður Sjálfstæðisflokksins, stjórn fé-
lagsins. Bjarni, sem á þeim tíma var
stjórnarformaður BNT og N1, er son-
ur Benedikts, bróður Einars. Skuldir
félagsins námu þá rúmum níu millj-
örðum króna og voru að mestu í er-
lendum myntum, þar á meðal voru
lán í svissneskum frönkum upp á tæpa
fjóra milljarða króna. Ætla má að þess-
ir skuldir hafi aukist gríðarlega vegna
gengisfalls íslensku krónunnar á árinu
2008. Bjarni hætti í stjórn Máttar í árs-
lok 2008 og var tilkynnt að Jón Bene-
diktsson, bróðir hans, tæki stöðu hans
með tilkynningu til hlutafélagaskrár á
Þorláksmessu það ár.
Bjarni Benediktsson kom að Vafn-
ingsviðskiptunum, líkt og DV hefur
fjallað um, á þann hátt að hann fékk
umboð frá föður sínum og föðurbróð-
ur til að veðsetja hlutabréf þeirra í
Vafningi hjá Glitni í febrúar 2008. Fyr-
ir vikið gat Þáttur International staðið
í skilum við Morgan Stanley og haldið
hlutabréfum sínum í Glitni. Bjarni út-
skýrði aðkomu sína að veðsetningunni
á Vafningi á eftirfarandi hátt í samtali
við DV í lok árs í fyrra: „Þeir [Benedikt
og Einar, innsk. blaðamanns] voru ekki
staddir á landinu og báðu mig um það
fyrir sína hönd að skrifa undir ákveð-
inn veðsamning þar sem þeir voru að
veðsetja hlutabréfin sín í félaginu ...
Þetta var veðsamningur sem gerður
var við bankann vegna lána sem bank-
inn hafði veitt félaginu,“ sagði Bjarni.
Hann sagði að menn hefðu verið að
endurfjármagna lán í viðskiptunum:
„Menn eru að endurfjármagna lán og
það er það sem er aðalástæðan fyrir
þátttöku þessara félaga í Vafningi.“
Sérstakur saksóknari efnahags-
hrunsins, Ólafur Hauksson, hefur ver-
ið með nokkra anga Vafningsmálsins
til rannsóknar og hafa þeir sem yfir-
heyrðir hafa verið í Milestone-rann-
sókninni verið spurðir út í lánveitingar
til félagsins.
Annað eignarhaldsfélag úr Vafningsfléttunni Wernerssona og
Einars og Benedikts Sveinssona, Máttur, hefur verið tekið til
gjaldþrotaskipta. Tvö af félögunum í fléttunni hafa verið tekin
til gjaldþrotaskipta og annað verið afskráð úr hlutafélagaskrá.
Bjarni Benediktsson, núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins,
sat í stjórn Máttar og veðsetti hlutabréf Vafnings hjá Glitni. Sér-
stakur saksóknari hefur verið með Vafningsfléttuna til skoðunar.
Eignarhald á Þætti International og
Vafningi:
n SJ2 EHF (Sjóvá/Wernerssynir)
n Skeggi ehf. (SJ2, Hrómundur/Einar
Sveinsson, Hafsilfur/Benedikt Sveins-
son, BNT ehf./Einar og Benedikt o.fl.
og Sáttur/Guðmundur Ólason)
n Fjárfestingafélagið Máttur (SJ2,
Hrómundur, Hafsilfur)
Eignarhaldið
48,8%
39,1%
12,1%
ingi F. VilHJálMSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Menn eru að endurfjármagna
lán og það er það sem er
aðalástæðan fyrir þátt-
töku þessara félaga í
Vafningi.
Áhættunefnd Glitnis hætti við að lána
Þætti International beint til að borga
Morgan Stanley vegna þess að bankinn
vissi að þá færi Milestone-samstæðan
yfir þau útlánamörk sem eru heimil til
einstakra aðila lögum samkvæmt. Upp-
haflega stóð til að Glitnir lánaði Þætti
milljarðana beint en þegar bankinn átt-
aði sig á þessu var Vafningssnúningurinn
búinn til. Í skýrslu rannsóknarnefndar-
innar er vitnað í fundargerð áhættu-
nefndarinnar þar sem segir. „Fallið er
frá að Glitnir láni Þætti International
ehf. nauðsynlega fjárhæð beint til þess
að Milestone-samstæðan verði áfram
undir gildandi útlánamörkum. Þess í stað
lánar Glitnir félaginu Svartháfi ehf. 191
milljón EUR að jafnvirði 18,8 milljarða
kr. Svartháfur ehf. lánar síðan Þætti International ehf. sömu fjárhæð. Þáttur
International ehf. greiðir Glitni síðan sömu fjárhæð til baka. Glitnir greiðir Morgan
Stanley upphaflegt lán Þáttar International ehf. og tekur handveð í hlutabréfun-
um.“
Daginn áður að þetta gerðist skipti Svartháfur um eiganda og faðir eigenda
Milestone varð eigandi félagsins. Um þetta segir í skýrslunni: „Eigendaskipti urðu
að félaginu Svartháfi ehf. 28. febrúar 2008, eins og áður segir, eða daginn áður en
áhættunefnd Glitnis ákveður að lána félaginu 191 milljón EUR eða 18,8 milljarða
króna. Því má ætla að eigendaskipti að félaginu Svartháfi ehf. hafi farið fram gagn-
gert í þeim tilgangi að félagið gæti tekið við láni frá Glitni.og endurlánað síðan
sömu fjárhæð til Þáttar International ehf. Með þessu var hægt að komast fram hjá
leyfilegum útlánamörkum og gildandi reglum um stórar áhættur hvað varðar lán
til sömu eða fjárhagslega tengdra aðila.“ Úr greinargerð í skýrslunni í 4. bindi.
VafningsViðskiptin í skýrslunni
Viðskiptafélagar Karl og Steingrímur Wernerssynir voru eig-
endur Vafnings ásamt Einari og Benedikt Sveinssonum. Félögin
sem tóku þátt í Vafningsfléttunni verða nú gjaldþrota eitt af öðru.
MÁTTUR WERNERSSONA
OG ENGEYINGA Í ÞROT
Annað gjaldþrot Bjarni Benedikts-
son, þáverandi stjórnarformaður
N1, fékk umboð frá föður sínum
og frænda sem áttu hlut í Vafningi
gegnum Skeggja ehf. og Mátt ehf.
til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi
fyrir milljarðaláni frá Glitni. Máttur
hefur verið úrskurðað gjaldþrota.