Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Page 16
16 FRÉTTIR 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
PWC UNDIR SMÁSJÁNNI
Endurskoðunarfyrirtækið Price-
waterhouseCoopers hefur þráfald-
lega neitað skilanefnd og slitastjórn
Landsbankans um aðgang að grunn-
gögnum varðandi reikningsskil, árs-
skýrslu 2007 og áritanir árshlutaupp-
gjöra framan af árinu 2008 vegna
bankans. Skilanefndin og slitastjórn-
in hafa tilkynnt forsvarsmönnum
PwC að þær hyggist höfða mál gegn
fyrirtækinu vegna ætlaðrar bóta-
skyldu. PwC hefur verið gefinn hálfs
mánaðar frestur til þess að bregðast
við erindi slitastjórnar og skilanefnd-
ar Landsbankans, en það byggist á
niðurstöðum rannsóknar á tilhögun
endurskoðunar bankans.
Rangar upplýsingar?
Reynir Vignir, framkvæmdastjóri PwC,
sendi frá sér yfirlýsingu eftir kröfu-
hafafund Landsbankans 1. desember
þar sem bótaskyldu er vísað á bug.
„PwC hafnar alfarið þeim ályktunum
sem fram koma í bréfinu og þeim stað-
hæfingum sem hafðar hafa verið eftir
fulltrúum slitastjórnar þess efnis ... að
PwC hafi brugðist starfsskyldum sín-
um í vinnu sinni fyrir Landsbankann.“
Reynir segir að skilanefndin og
slitastjórnin hafi fengið í hendur öll
þau gögn sem þær eigi rétt á að fá.
„Hins vegar höfum við ekki látið þeim
í té okkar eigin vinnugögn enda eiga
þær ekki rétt á að fá þau gögn afhent.“
Kristinn Bjarnason á sæti í slita-
stjórn Landsbankans. Hann rakti laus-
lega efni tilkynningar stjórnarinnar til
PwC: „Það hefur verið rakið í bréfum
til PwC hvaða atriði það eru sem við
teljum að geti leitt til bótaskyldu end-
urskoðunarfyrirtækisins. Þetta byggist
á því að vanrækslan hafi valdið tjóni.
Það getur orðið grundvöllur bóta-
krafna. Sem dæmi gætu bótakröfur
byggst á því að haldið hafi verið áfram
að lána einhverjum og að lán hafi tap-
ast sem með réttum skýringum og at-
hugasemdum endurskoðenda hefði
hugsanlega mátt koma í veg fyrir. Þá
hefði væntanlega annað áhættumat
verð lagt til grundvallar varðandi við-
komandi lántakanda. Það hefði vænt-
anlega leitt til þess að honum hefði
ekki verið lánað áfram,“ sagði Kristinn
í skýringardæmi sínu á fundinum.
Bótakröfur
Í bréfi skilanefndar og slitastjórnar
til PwC er ekki minnst á fjárkröfur
eins og vikið er að í yfirlýsingu PwC.
Samkvæmt heimildum DV á það sér
meðal annars þá skýringu að ekki er
einfalt mál að meta tjón þrotabús
bankans vegna meintrar vanrækslu
endurskoðunarfyrirtækisins. Verði
sýnt fram á og sannað að vanræksla
PwC hafi átt þátt í að bankinn komst
upp með að gefa falska mynd af eig-
infjárstöðu sinni síðustu misserin
fyrir hrun bankans gæti bótakrafan
hæglega numið þeim útlánum sem
heimilaðar voru á grundvelli rang-
lega uppgefinnar eiginfjárstöðu.
Bótakröfur á hendur PwC gætu því
á endanum numið tugum millj-
arða króna. Ennþá er málið þó ekki
komið svo vel á veg, enda þarf fyrir
rétti að sýna fram á orsakasamband
milli meintra vanrækslusynda PwC
og þess tjóns sem bankinn varð fyr-
ir. Hugsanlegt er að fyrirtækið, sem
breytti um rekstrarform í haust, úr
hlutafélagi í einkahlutafélag, gæti
mætt áföllum vegna málaferla með
ábyrgðartryggingum.
Á það er einnig að líta að hafi eig-
ið fé bankans sannarlega verið falsað
upp á við og starfsemi bankans þar
af leiðandi fengið að halda áfram án
íhlutunar Fjármálaeftirlitisins gætu
kaupendur hlutabréfa í bankanum
einnig krafist bóta.
Húsleit fyrir meira en ári
Upplýst var á fundinum að PwC
hefði verið tilkynnt um væntanlegt
skaðabótamál af hálfu skilanefndar
og slitastjórnar fyrir fáeinum dög-
um. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
slær í bakseglin hjá PwC eftir banka-
hrunið því 1. október í fyrra gerði
embætti sérstaks saksóknara húsleit
hjá endurskoðunarfyrirtækinu og
freistaði þess að leggja hald á gögn
sem tengjast uppgjöri fyrir Lands-
bankann. Embættið hafði franska og
norska sérfræðinga í endurskoðun
sér til halds og trausts þegar ráðist
var til atlögu hjá PwC og KPMG. Til-
gangur leitarinnar var að leggja hald
á sönnnunargögn vegna rannsókna
á vegum embættisins. Grunur lék á
brotum gegn 17. kafla hegningarlaga
um skjalafals og 26. kafla sömu laga
um auðgunarbrot. Þá voru tilgreind
möguleg brot gegn lögum um bók-
hald og ársreikninga, brot gegn lög-
um um fjármálafyrirtæki og verð-
bréfaviðskipti sem og möguleg brot
gegn hlutafélagalögum.
Þess má geta að skilanefnd og
slitastjórn Landsbankans hafa engan
aðgang að þeim gögnum sem emb-
ætti sérstaks saksóknara lagði hald
á hjá PwC fyrir liðlega ári. Embætt-
ið hefur ekki gefið út neinar ákærður
enn utan þá sem tengist svonefndu
Exetermáli á hendur þremur stjórn-
endum Byrs og MP banka. Enga vitn-
eskju er að hafa um það hvor höfð-
að verður opinbert refsimál af hálfu
sérstaks saksóknara á hendur PwC
eða KPMG. En fari svo verða gögn-
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Hefði eigið fé Landsbankans mælst um eða fyrir neðan 8 prósenta lögbundnu
CAD-mörkin hefði bankinn ekki getað haldið starfsemi áfram að óbreyttu.
n„Hæstfórmatiðáveikueiginféívelrúma80milljarðakrónahaustið2007og
helstþaðum80milljarðarframaðfallibankans...Leiðréttahlutfalliðvarkomið
niðurfyririnnramarkmiðbankansum10%CAD-hlutfallímars2007.Þarað
aukimásjáaðuppúrmiðjuári2007fórhiðleiðréttahlutfallniðurfyrirhið8%
lögbundnalágmarkogsveiflaðistíkringumlágmarkiðeftirþað.“
(Úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis)
Orðaskipti RNA og Jónasar Fr. Jónssonar forstjóra FME um eigið fé
Landsbankans
Rannsóknarnefndin:
„OpinberupplýsingagjöfFjármálaeftirlitsinsumstöðubankannalitaðistmjög
afþvíaðniðurstöðurálagsprófagáfutilkynnaaðbankarnirstæðutraustum fótum.Þannigvirðastgölluðálagsprófhafahaftmikiláhrifáopinberaupplýs-
ingagjöfFjármálaeftirlitsinsoghafaveittbæðimarkaðnumogFjármálaeftirlitinu
sjálfufalsktöryggi.AfofangreindutilefnihefurrannsóknarnefndAlþingisþaðtil
athugunarhvortmetaberiþáháttsemiyðarsemmistökeðavanrækslu,íþeim
skilningisemvikiðvaraðíkaflaIIhéraðframan,aðhafaekkihaftforgöngu
umaðálagsprófFjármálaeftirlitsinsværutekintilendurskoðunaríljósiþeirrar
gagnrýnisemframhafðikomiðáþau.“
Lögfræðingur Jónasar:
„Íljósiþessaererfittaðfinnanokkrastoðfyrirþeimályktunumnefndarinnar,
aðálagsprófFjármálaeftirlitsinshafiveittmarkaðnumfalsktöryggi.Þvertá
mótiveittibirtingþessbönkunumaðhaldogþeirgættuþessaðeigiðféþeirra
stæðistálagsprófið.“
(Úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis)
Falsað eigið fé Landsbankans?Endurskoðunarfyrirtækið Pricewater-
houseCoopers þarf að verjast háum
skaðabótakröfum í dómsal af hálfu skila-
nefndar og slitastjórnar Landsbankans.
Fleiri gætu fylgt í kjölfarið sannist van-
rækslusyndir á fyrirtækið við reiknings-
skil á Landsbankanum fyrir hrun. Sér-
stakur saksóknari rannsakar enn gögn
sem tekin voru hjá PwC og KPMG fyrir
rúmu ári.
Kusk á hvítflibba endurskoðenda
SkilanefndogslitastjórnLandsbankans
sækjaaðPwCendurskoðunarfyrirtækinu,
ÁrsællHafsteinsson,framkvæmdastjóri
skilanefndar(t.v.),EinarJónssoníslitastjórn
ogKristinnBjarnasoníslitastjórn(t.h.)
Sem dæmi gætu bótakröfur byggst á því að haldið hafi
verið áfram að lána einhverjum og að lán
hafi tapast sem með réttum skýringum
og athugasemdum endurskoðenda hefði
hugsanlega mátt koma í veg fyrir.