Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Page 27
Stjórnlagaþing- ið er merkileg til- raun og áður en lengra er haldið vil ég auðmjúkur þakka fyrir kjör- ið. En ég verð þó að viðurkenna að mér þótti það svolítið sérstakt að fylgjast með úrtölukórnum sem hóf upp raust sína að aflokn- um kosningunum, en þá nýttu margir sér tómarúmið sem varð á milli kosn- inganna og þar til úrslit lágu fyrir til að tala kjörið og verkefni stjórnlaga- þingsins niður. Kannski er það vegna þess að vera nú allt í einu kominn hinum meg- in við borðið að ég stóð hálf agndofa frammi fyrir ólundarregninu. Og þó að ég vilji nú ekki endilega trúa því, þá er kannski allt í lagi að viður- kenna það hér, að sú spurning flaug eina örskotsstund í gegnum kollinn á mér hvort verið gæti að sumir þeir sem verst létu vilji bara alls ekki að al- menningur fái að koma að því að end- urskoða grundvallarlög lýðveldisins með kjöri sem þessu. Þórðargleðin yfir dræmri kjörsókn var allavega slík. Í samhengi hlutanna Vissulega hefði kjörsókn mátt vera meiri en þó fæ ég ekki betur séð, í sam- hengi hlutanna, en að hún hafi verið í sæmilegum takti við það sem maður gat átt von á: Um er að ræða ansi flók- ið einstaklingskjör til stjórnlagaþings sem á að semja nýja stjórnarskrá – sem svo verður lögð fyrir þjóðina og Alþingi til staðfestingar eða synjun- ar. Þessi tilraun er einstök og ógern- ingur að bera hana saman við alþing- is- og sveitarstjórnarkosningar, þar sem fulltrúar eru kosnir til að útdeila sameiginlegum gæðum samfélags- ins. Icesave-kosningin er heldur ekki samanburðarhæf því þar var um að ræða eitt heitasta deilumál sem upp hefur komið hér á landi. Fæstir hafa slíkar tilfinningar til stjórnlagaþings. Við þurfum því að leita út fyrir land- steinana eftir samanburði og þá kem- ur í ljós að kjörsóknin er á svipuðu róli og víða er algengt í þjóðaratkvæða- greiðslum – líka í ríkjum þar sem hefð er fyrir mikilli kjörsókn í þingkosning- um. Í Sviss mætir yfirleitt vel innan við helmingur á kjörstað. Oft innan við fjórðungur. Að lýsa frati Hingað til hefur sá skilningur verið hér á landi, sem annars staðar á Vest- urlöndum, að kjósendur lýsa frati á kosningar og þeim valkostum sem eru í boði með því að mæta á kjörstað og skila auðu. Því hefur satt að segja verið svolítið einkennilegt að fylgjast með ólíkindalegum túlkunum sumra á heimasetu kjósenda. Án þess að ég ætli mér þá dul að rýna í hugarfylgsni fólks þá finnst mér ekkert sérkenni- legt við það að aðeins helmingur þeirra sem vanalega mæta á kjörstað hafi tekið þátt í þessum kosningum. Við erum vön því að hafa úr fáum vel þekktum kostum að velja og að hafa aðeins einn einstakan kross til um- ráða. Nú voru kjósendur hins vegar beðnir um að velja 25 einstaklinga úr 522 manna hópi. Slíkt krefst tölu- verðrar vinnu. Í ofanálag lamaði fjöldi frambjóðenda alla fjölmiðlaumræðu. Daginn fyrir kjörið var helsti þjóð- málaþáttur Ríkissjónvarpsins lagð- ur undir ásakanir um kynferðisbrot. Frambjóðendur gátu ekki einu sinni trommað upp áhuga með fyrirheiti um spennandi kosningavöku því úr- slit fengust ekki fyrr en nokkrum dög- um síðar. Svona má áfram telja og því kom kjörsóknin mér alls ekki á óvart. Það er heldur ekkert ólýðræðislegt við það að sitja heima. Lýðræðið felur einfaldlega í sér að þeir ráða sem taka þátt. Og alveg eins og það er réttur hvers og eins að kjósa hefur fólk ná- kvæmlega sama rétt á að sleppa því – svo sem fólk sem hefur lítinn tíma eða áhuga á að setja sig inn í flókin mál. Stjórnlagaþings bíða spennandi verkefni og ég hlakka einlæglega til að takast á við þau. Þangað vil ég mæta með opinn hug og vonandi auðnast okkur að haga starfinu með ögn skap- legri hætti heldur en undanferið hef- ur tíðkast á þinginu við Austurvöll. Ég lofa allavega að leggja mitt að mörk- um til þess að svo megi verða. LALLI TÖFRAMAÐUR er að gefa út sinn annan DVD-disk þar sem hann sýnir fólki brögðin á bak við töfrana. Á nýja diskinum sínum kennir hann fólki að gera töfrabrögð sem gerð eru með hversdagslegum hlutum sem finna má á flestum heimilum. GOTT AÐ GETA LÁTIÐ SIG HVERFA MYNDIN Hver er maðurinn? „Lalli töframaður.“ Hvar ertu uppalinn? „Á Seltjarnarnesi.“ Hvað drífur þig áfram? Skemmtilegheit og fótbolti.“ Hvar vildirðu helst búa ef ekki á Íslandi? „Mexíkó.“ Með hverjum heldurðu í enska? „Fæ ég ekki að sleppa þessari?“ Hvaða bíómynd sástu síðast? „Jackass 3D held ég. Hún var alveg ruglfyndin.“ Hvað hefurðu gert töfrabrögð lengi? „Ég hef verið töframaður frá því ég var sex ára en ég er tuttugu og þriggja í dag. Þannig að það er reynslan þrátt fyrir ungan aldur.“ Verða aðrir töframenn ekkert fúlir yfir því að þú sért að sýna brögðin á bak við töfrabrögðin? „Nei, almennt held ég að menn fagni því bara að ég sé að leyfa öðrum að njóta töfranna og breiða út boðskapinn.“ Áttu þér fyrirmynd í töfrabrögðun- um? „Ég geng nú bara út frá því að ég sé Lalli númer 1, 2 og 3. Mér finnst samt Darren Brown ótrúlega flottur þó svo að ég sé ekkert líkur honum.“ Hvað ertu svona helst að sýna á nýja disknum? „Kenna fólki töfrabrögð sem gerð eru með hversdagslegum hlutum sem finna má á flestum heimilum. Það má líka sjá nokkur bragðanna á toframadur.is.“ Geturðu látið þig hverfa ef þér leiðist einhvers staðar? „Já, ég geri það oft. Það er oft mjög þægilegt að vera töframaður. Mér kannski hundleiðist einhvers staðar og þá bara „púff“.“ Hefurðu farið í fjölskylduboð eða partí án þess að vera beðinn um að sýna eitt bragð eða tvö? „Ég hef ekki enn komist yfir dag án þess að vera beðinn um að sýna töfrabragð.“ MAÐUR DAGSINS „Já, svona að megninu til.“ STEINAR THORS 20 ÁRA STARFSMAÐUR HJÁ UNICEF „Þetta var ekki alveg það sem ég kaus og kjörsókn hefði mátt vera betri.“ KATRÍN BJÖRK KRAGH 22 ÁRA RITARI Á LÖGFRÆÐISTOFU „Ég hef voðalega litla skoðun á þessu.“ ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR 27 HEIMAVINNANDI HÚSMÓÐIR „Já, ég er mjög ánægður. Ég kom sjö mönnum að.“ RICHARÐ J. BJÖRGVINSSON 65 ÁRA LÍFEYRISÞEGI „Já, ég er sátt og líst temmilega á hópinn. Hefði samt viljað sjá fleiri sem vilja róttækari breytingar.“ HRÖNN GUÐMUNDSDÓTTIR 25 ÁRA NEMI ERT SÁTT/UR VIÐ ÚTKOMU KOSNINGANNA TIL STJÓRNLAGAÞINGS? DÓMSTÓLL GÖTUNNAR FÖSTUDAGUR 3. desember 2010 UMRÆÐA 27 Kærar þakkir KJALLARI DR. EIRÍKUR BERGMANN stjórnmálafræðingur skrifar Þungur baggi Til stóð að flytja hús Skúla Thoroddsen til á lóð Alþingis á milli Vonarstrætis og Kirkjustrætis á fimmtudag. Þegar á hólminn var komið reyndist húsið þyngra en áætlað var, nokkuð yfir hundrað tonn. Flutningunum var því frestað og óljóst hvenær af þeim verður. MYND SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.