Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Qupperneq 46
Handboltamaðurinn Ólafur Bjarki Ragnarsson hefur
farið á kostum með HK á yfirstandandi tímabili. Hann var valinn
besti leikmaður Íslandsmótsins í fyrstu sjö umferðunum. Hann
trúir á framhaldslíf og væri helst til í að hella Jón Gnarr fullan.
Nafn og aldur?
„Ólafur Bjarki Ragnarsson, 22 ára.“
Atvinna?
„Námsmaður.“
Hjúskaparstaða?
„Á lausu.“
Fjöldi barna?
„Engin.“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já, gullfiska.“
Hvaða tónleika fórst þú á síðast?
„Fór á Hard Rock Calling í London í sumar og sá Pearl Jam
og Stevie Wonder.“
Hefur þú komist í kast við lögin?
„Já, tekinn á 35 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er
30.“
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
„Held að það séu bara joggingbuxurnar.“
Hefur þú farið í megrun?
„Nei.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Nei.“
Trúir þú á framhaldslíf?
„Já.“
Hvaða lag skammast þú þín mest fyrir að hafa haldið
upp á?
„Ekki neitt. Er með einstaklega góðan tónlistarsmekk.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Þessa dagana er það Disco Pogo með Frauenarzt & Manny
Marc.“
Til hvers hlakkar þú núna?
„Jólanna.“
Hvaða mynd getur þú horft á aftur og aftur?
„Þær eru nokkrar; Gladiator, 300, Hangover. Af því að ég á
bara þær.“
Afrek vikunnar?
„Tók til í herberginu.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Nei.“
Spilar þú á hljóðfæri?
„Nei, er algjörlega taktlaus.“
Viltu að Ísland gangi í Evrópusambandið?
„Ekki hugmynd, hef ekki sett mig inn í málið.“
Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Fjölskyldan og vinirnir.“
Hvaða íslenska ráðamann myndir þú vilja hella
fullan og fara á trúnó með?
„Jón Gnarr, og rifja upp „ég var einu sinni nörd“.“
Hvaða fræga einstakling myndir þú helst vilja hitta
og af hverju?
„Ég væri til í að hitta Barney Stinson úr How I Met Your
Mother. Ótrúlega skemmtilegur karakter og viskumikill
heimspekingur.“
Hefur þú ort ljóð?
„Nei.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ég lét tvíburasystur minni bregða.“
Hvaða fræga einstaklingi líkist þú mest?
„Það er ekki búið að finna hann.“
Ertu með einhverja leynda hæfileika?
„Á það til að blómstra í eldamennskunni.“
Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Nei, alls ekki.“
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn?
„Selvík við Álftavatn.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en þú ferð að
sofa?
„Tannbursta mig.“
Hver er leið Íslands út úr kreppunni?
„Ég er ekki viss, en hún er til staðar.“
Tekinn á 35
kílómetra hraða
M
Y
N
D
IR
R
Ó
B
ER
T
46 HIN HLIÐIN 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað