Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2010, Side 50
50 LÍFSSTÍLL UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR xxx@dv.is 3. desember 2010 FÖSTUDAGUR
Styrktu
sambandið
Hreyfing
Bjóddu ástinni þinni í teygjustökk,
fallhlífarstökk eða bara út að dansa,
til að styrkja böndin á milli ykkar.
Hlátur
Samkvæmt rannsóknum laðast konur
að mönnum sem fá þær til að hlæja.
Auk þess eru hjón sem hlæja saman
líklegri til að haldast gift.
Nýjungar
Þegar við lærum eitthvað nýtt erum
við berskjölduð. Farið saman á
námskeið og finnið hvernig tengslin
styrkjast.
Sjálfsmeðvitund
Stingdu upp á einhverju sem losar
um hömlurnar svo þið getið opnað
ykkur almennilega og tengst enn
betur. Þetta þarf ekki að snúast um
áfengi. Hvað með leiklistarnámskeið?
Ástúð
Tækifæri til að sýna elskunni þinni
hvað þér þykir vænt um hana bjóðast
oft á dag. Samkvæmt rannsókn eykur
það, að telja hversu oft þið kyssist yfir
daginn, hamingju hjóna.
Opinberun
Skildu eftir miða með fallegum
orðum, sendu rómantísk SMS eða
segðu makanum frá leyndarmáli.
Opinberunin gerir þig berskjaldaða/n
og þið eigið auðveldara með að
tengjast á jákvæðan máta.
Ákveðni
Samkvæmt rannsókn skiptir ákvörð-
unin um skuldbindingu meginmáli
þegar kemur að styrk sambands.
Því ákveðnari sem þið eruð í að láta
sambandið ganga því ólíklegra er
að þið sjáið hvort annað í neikvæðu
ljósi. Vertu til staðar fyrir makann
bæði á góðum og slæmum stundum.
Mörg okkar elska að ræða um og dæma náungann. Dýrafræðingurinn Robin Dunbar við Oxford-há-
skóla líkir okkur við bavíana sem týna
flærnar af hverjum öðrum til að styrkja
böndin. „Í stað þess að hirða um hvert
annað notum við slúður sem félags-
legt lím. Hvort tveggja er lærð hegðun.“
Rannsóknir hafa sýnt að slúður styrk-
ir félagsleg bönd og eykur sjálfstraust
og sannleikurinn virðist ekki endilega
markmið slúðurs. „Það sem skiptir
mestu eru böndin sem slúðrið styrkir,
oftast á kostnað þriðja aðila. Ef tveim-
ur aðilum er illa við þann þriðja styrkj-
ast tengsl þeirra þegar þeir tala illa um
hann,“ segir Jennifer Bosson, sálfræði-
prófessor við háskóla í Flórída.
Lygar
Enginn veit nákvæmlega af hverju við
ljúgum en rannsóknir hafa sýnt fram
á að þessi hegðun er algeng og lík-
lega sprottin af sálrænum undirrótum.
„Lygi tengist sjálfstrausti,“ segir sál-
fræðingurinn Robert Feldman við há-
skólann í Massachusetts. „Þegar fólk
finnur að sjálfstrausti þeirra er ógn-
að grípa þeir til lyga til að bæta stöðu
sína.“ Samkvæmt niðurstöðum Feld-
mans eru 60 prósent líkur á því að við
ljúgum alla vega einu sinni í tíu mín-
útna samræðum. En það er alls ekki
létt verk að ljúga. Samkvæmt rannsókn
tekur það okkur 30 prósent lengri tíma
að ljúga en segja satt. Nýleg rannsókn
gefur til kynna að tæknin eykur lygar
því við ljúgum frekar þegar við notum
tölvupóst en þegar við ræðum saman
augliti til auglits.
Veðmál
Sumir segja að þörfin fyrir að leggja
undir í von um ávinning sé grafin í
gen okkar, sem útskýri af hverju þessi
mögulega skaðræðishegðun sé svona
algeng. Jafnvel apar veðja. Í rannsókn
sem birtist í tímaritinu Neuron kom
fram að það að tapa næstum öllu valdi
ríkari þörf til að veðja. „Fjárhættuspil-
arar túlka útkomu þar sem hurð skall
nærri hælum sem sigur, þrátt fyrir
að niðurstaðan hafi leitt til taps, sem
verður til þess að þeir halda áfram að
veðja,“ segir Luke Clark við háskól-
ann í Cambridge. Aðrar rannsóknir
hafa sýnt að þegar fjárhættuspilarar
tapa eiga þeir til að gleyma sér. „Því fer
allt skipulag um ákveðnar upphæðir
sem þeir voru tilbúnir að leggja undir
í upphafi út um gluggann. Við tap er
planinu breytt og veðmálið hækkað í
von um að bæta tapið.“
Einelti
Í evrópskri rannsókn frá 2009 kom í
ljós að börn sem leggja í einelti í skóla
eru líklegri til að kúga yngri systkini
sín heima við. Einelti einskorðast ekki
við börn. Næstum 30 prósent skrif-
stofustarfsfólks í Bandaríkjunum eru
lögð í einelti af samstarfsmönnum eða
yfirmönnum, samkvæmt rannsókn.
„Einelti fer stigmagnandi. Það byrjar
mjög smátt og þess vegna er erfitt að
koma í veg fyrir það,“ segir Sarah Tracy
við Arizona-háskólann. Sálfræðingar
segja baráttu um völd útskýra einelti
en apar hegða sér svipað.
Stress
Stress og áhyggjur geta drepið okkur.
Stress eykur líkur á hjartavandamál-
um og jafnvel krabbameini, það get-
ur leitt til þunglyndis sem svo getur
leitt til sjálfsvíga. Að mati fræðimanna
er erfitt að útskýra stress. Sumir tala
um áhrif vinnu og fjölskyldu. Sam-
kvæmt samtökunum International
Labor Organization skila meira en 600
milljón manna meira en 48 stunda
vinnuviku. Þar að auki hefur tækn-
in, með farsímum og interneti, gert
mörkin milli vinnu og frítíma óskýr. Í
rannsókn frá 2007 kom fram að yngra
fólk er undir meira álagi en eldra.
„Foreldrar með ung börn eru einn-
ig í vinnu,“ segir Gwenith Fisher sál-
fræðingur við ISR. „Þeir þurfa að finna
jafnvægi á milli fjölskyldulífs, starfs-
frama og félagslífs.“
Fegrunaraðgerðir og húðflúr
Árið 2015 munu 17 prósent Banda-
ríkjamanna leggjast undir hnífinn,
ef fer sem horfir. Fegrunaraðgerðir
eru fjarri því að vera nýjar af nálinni,
þótt úrvalið hafi aldrei verið meira.
Í gegnum aldirnar hafa einstakling-
ar látið lengja háls sinn, gata varir og
eyru, mála líkamshluta og þess hátt-
ar, oft í tengslum við trú, völd og sam-
félagsstöðu. Í dag er fegurðin megin-
tilgangurinn eða þörfin fyrir að passa
í hópinn. Samkvæmt rannsókn versl-
um við meira hjá aðlaðandi sölufólki
auk þess sem grannir einstaklingar
eiga auðveldara með að fá vinnu og
fá frekar stöðuhækkun en þeir feit-
ari. „Trúin á að hamingja fylgi útliti er
ríkjandi í dag,“ segir sálfræðingurinn
Diana Zuckerman, forseti National
Research Center for Women & Fa-
milies.
Svik
Einn af hverjum fimm Bandaríkja-
mönnum myndi svíkja undan skatti
ef hann kæmist upp með það, sam-
kvæmt rannsókn Pew Research Cent-
er, og 10 prósent myndu halda fram
hjá maka. Rannsókn hefur sýnt að
þeir sem aðhyllast hæstu siðferðis-
kvarðana eru verstu svindlararnir.
Þeir telja svik réttlætanlega hegðun
við ákveðnar aðstæður.
Margt af því sem við gerum hefur skaðleg
áhrif. Við ljúgum, svíkjum, leggjum vinnu-
félagana í einelti og beitum líkamlegu
ofbeldi. Eins gáfaður og maðurinn er
getur hann einnig verið andstyggilegur og
illgjarn. Hér er listi yfir tíu mest skemm-
andi athæfin og útskýringar vísindanna á
af hverju við hegðum okkur svona.
Á hverju byggir
hegðun okkar?
Í stað þess að hirða um hvert
annað notum við slúð-
ur sem félagslegt lím.
Hvort tveggja er lærð
hegðun.
Mikið úrval
af kuldafatnaði
á börn
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
52
23
6
11
/1
0
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
12.990kr.Verð frá
Kuldagallar
6.990kr.Verð frá
Kuldabuxur
9.990kr.Verð frá
stærðir: 80 -120Úlpur
stærðir: 128 -174Úlpur
11.990kr.Verð frá
JÓLAGJÖFIN