Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2011, Síða 30
Ásmundur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúd-entsprófi frá Menntaskólanum
í Hamrahlíð 1972, er búfræðingur frá
Bændaskólanum á Hvanneyri 1975,
og lauk kennaraprófi frá Kennarahá-
skóla Íslands 1982.
Ásmundur var kennari við Nesja-
skóla Hornafirði 1975-82, fram-
kvæmdastjóri Skjólgarðs, elli-, hjúkr-
unar- og fæðingarheimilis á Höfn
1983-96 en hefur starfrækt ferðaþjón-
ustu í Árnanesi frá 1996.
Ásmundur flutti með fjölskyldu
sinni í Nesjaskóla á Hornafirði 1975
en settist að í Árnanesi 1994.
Ásmundur gegndi trúnaðarstörf-
um í ungmennafélagshreyfingunni,
var formaður Félags forstöðumanna
elli- og hjúkrunarheimila á Íslandi
1991-96, formaður Ferðamálafélags
Austur-Skaftafellssýslu frá 1995–2005
og formaður Ferðamálasamtaka
Austurlands frá 1997–2005.
Fjölskylda
Ásmundur kvæntist 18.6. 1972, Guð-
rúnu Sveinsdóttur, f. 1950, d. 1987.
Hún var dóttir Sveins K. Sveinssonar,
fyrrv. forstjóra Völundar í Reykjavík,
og Ingu Valborgar Einarsdóttur hús-
móður.
Börn Ásmundar og Guðrúnar eru
Guðrún Dadda, f. 12.10. 1972, iðju-
þjálfari í Reykjavík, eiginmaður henn-
ar er Brynjólfur Hermannsson; Arna,
f. 22.9. 1975, geislafræðingur í Reykja-
vík, maður hennar er Borgþór Egils-
son; Matthildur, f. 22.11. 1977, sjúkra-
þjálfari á Höfn, hennar maður er
Hjálmar Sigurðsson; Kjartan, f. 26.1.
1979, sjómaður, býr í Árnanesi.
Sonur Ásmundar og Rannveigar
Hallvarðsdóttur, f. 1958, er Ásmundur
f. 6.2. 1989, býr í Árnanesi.
Ásmundur var í sambúð frá 1992–
2009 með Helgu Erlendsdóttur, f.
1948, d. 2009.
Unnusta Ásmundar er Guðrún
Sigurðardóttir, f. 23.9. 1956, fram-
kvæmdastjóri og ferðaskrifstofueig-
andi á Ítalíu. Hún er dóttir Sigurðar
Ólasonar hrl., f.1907 d. 1988, og Unnar
Kolbeinsdóttur kennara, f. 1922.
Bræður Ásmundar eru Jón Hall-
dór, f. 1943, vélfræðingur í Grinda-
vík; Brandur, f. 1944, garðyrkjumað-
ur í Reykjavík; Guðmundur Tómas, f.
1946, d. 2003, garðyrkjumaður; Atli f.
1947, hrl. og alþingismaður í Reykja-
vík.
Systir Ásmundar er Guðrún, f.
1954, húsmóðir í Kaupmannahöfn.
Foreldrar Ásmundar voru Gísli
Guðmundsson, f. 1907, d. 1990, kenn-
ari og leiðsögumaður, og Ingibjörg
Jónsdóttir, f. 1915, d. 1997, húsmóðir
og húsmæðrakennari.
Ætt
Gísli var sonur Guðmundar, b. í
Haukatungu, bróður Kristjáns, föður
Eggerts stórkaupmanns. Systir Guð-
mundar var Guðný, amma Sveins,
forseta ÍSÍ. Guðmundur var sonur
Eggerts, b. í Miðgörðum, Eggertsson-
ar, b. þar, Guðmundssonar.
Móðir Gísla var Pálína Matthildur
ljósmóðir Sigurðardóttir, hreppstjóra
í Tröð, Brandssonar. Móðir Pálínu
var Valgerður ljósmóðir, systir Guð-
nýjar, langömmu Ísleifs, föður Ólafs
hagfræðings. Önnur systir Valgerðar
var Ragnheiður, langamma Lúðvíks
Kristjánssonar rithöfundar. Valgerð-
ur var dóttir Páls, pr. á Prestbakka og
Hörgsdal, Pálssonar, umboðsmanns
á Hörgslandi og í Gufunesi, Jónsson-
ar. Móðir Valgerðar var Matthildur
Teitsdóttir, b. í Hittu, Þórðarsonar.
Ingibjörg var dóttir Jóns Halldórs,
fisverkanda á Ísafirði, Jóhannesson-
ar, Arasonar. Móðir Jóns var Ingi-
björg Jónsdóttir, b. í Fremri-Arnardal,
Halldórssonar, b. þar, Ásgrímssonar,
hreppstjóra þar, Bárðarsonar, ættföð-
ur Arnardals-ættarinnar, Illugasonar.
Móðir Ingibjargar var Guðrún H.
Sæmundsdóttir búfræðings Björns-
sonar, b. á Klúku, Björnssonar, pr. í
Tröllatungu, Hjálmarssonar, ættföð-
ur Tröllatunguættar, Þorsteinssonar.
Móðir Guðrúnar var Sigríður Bjarna-
dóttir, hreppstjóra í Tröð í Álftafirði,
Jónssonar. Móðir Sigríðar var Guðrún
Jónsdóttir, b. í Eyrardal, Ólafssonar,
bróður Halldórs í Fremri-Arnardal.
30 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 4.–6. febrúar 2011 Helgarblað
Þórunn fæddist í Reykjavík og ólst þar upp við Laugaveginn. Hún stundaði nám við Skógarskóla,
lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða-
skóla verknáms í Ármúla í Reykjavík
1958, stundaði nám síðar í Lýðhá-
skóla í Svíþjóð. Hún stundaði síðan
nám við Iðnskólann í Reykjavík og
lauk þaðan tækniteiknaraprófi 1971.
Þórunn var teiknari frá 1971, síðar
forstöðumaður teiknistofu á árunum
1974–88, var síðan skrifstofustjóri til
1991. Þórunn var einn af stofnendum
Víkurprjóns hf.
Þórunn tók saman ættarritið
Grasaættina. Hún vinnur nú að sam-
antekt nokkurra ættfræðirita.
Fjölskylda
Þórunn giftist Bjarna Kjartanssyni, f.
4.9. 1941 í Reykjavík. Þau skildu. For-
eldrar hans voru Þóra Jónsdóttir og
Kjartan Bjarnason.
Börn Þórunnar og Bjarna eru Jó-
hanna Bjarnadóttir, f. 11.2. 1959, hús-
móðir og fyrrv. kaupmaður, búsett í
Vancouver í Kanada, gift James Norr-
is viðskiptafræðingi og eiga þau fjög-
ur börn; Kjartan Bjarnason, f. 28.2.
1960, húsamálari, búsettur í Hafnar-
firði, en kona hans var Ásta Halldórs-
dóttir og eiga þau tvo syni; Bryndís
Bjarnadóttir, f. 1.11. 1965, kvikmynda-
gerðarmaður og nemi í sagnfræði við
Háskóla Íslands, búsett í Reykjavík en
maður hennar er Jón Magnússon tölv-
unarfræðingur og á hún tvo syni; Dav-
íð Þór Bjarnason, f. 26.6. 1969, mál-
arameistari, búsettur í Hafnarfirði, en
kona hans er Guðbjörg Gutta Agnars-
dóttir, nemi í viðskiptafræði við Há-
skóla Íslands og eiga þau tvo syni.
Fyrrv. sambýlismaður Þórunnar er
Jóhannes Jónsson, f. 8.8. 1941, skip-
stjóri og útgerðarmaður í Hafnarfirði.
Hálfbróðir Þórunnar, samfeðra, er
Óli Sven, f. 11.9. 1946, framkvæmda-
stjóri í Hafnarfirði.
Hálfsystur Þórunnar, sammæðra:
Erla Lárusdóttir, f. 11.11. 1936, d. 8.1.
2000; Steinunn Inger Jörgensdóttir, f.
19.4. 1944, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Þórunnar voru Gísli
Styff Ólason, f. 16.8. 1912, d. 21.7.
1981, matsveinn í Reykjavík, og Mín-
erva Bergsteinsdóttir, f. 19.5. 1915,
d. 23.12. 2003, matráðskona og hús-
freyja í Reykjavík.
Fósturfaðir Þórunnar var Jörgen
Martin Jörgensen, f. 26.1. 1918, d. 9.1.
2000.
Ætt
Gísli var sonur Óla Svens Styff, f. í
Noregi, símamanns og útvegsbónda
á Glettinganesi, sonar Ragnhildar
Romsdal Andrésdóttur og Johns Er-
iks Styff, kapteins í sænska hernum.
Bræður Óla Sven, voru Oskar Styff,
konsúll Noregs í Kanada, og Eivind
Styff, rafmagnsverkfræðingur í Osló
og Karl Gústav Styff, skipstjóri í Van-
couver í Kanada. Bræður Johans Er-
iks voru Oskar Styff, prófessor við
Uppsalaháskóla, og Karl Styff, verk-
fræðingur í Stokkhólmi.
Móðir Gísla var Jóhanna, kaup-
kona Filipusdóttur, silfursmiðs og
b. í Kálfafellskoti Stefánssonar, b. á
Núpsstað Eyjólfssonar, b. þar Hann-
essonar, b. þar Jónssonar, b. þar
Bjarnasonar. Móðir Jóhönnu var
Þórunn, grasakona og ljósmóðir
Gísladóttir, útvegsb. á Býjaskerjum í
Sandgerði Jónssonar, b. í Hlíð í Skaft-
ártungu, föðurbróðir Gísla Sveins-
sonar, alþingisforseta og sendi-
herra. Móðir Þórunnar Gísladóttur
var Þórunn Sigurðardóttir, ljósmóð-
ur frá Steig í Mýrdal, dóttir Þórunnar
Þorsteinsdóttur, ljósmóður frá Kald-
rananesi í Mýrdal, dóttur Þorsteins
Þorsteinssonar, í Vatnsskarðshól-
um og Karitasar Jónsdóttur, klaust-
urhaldara á Reynisstað í Skaga-
firði Vigfússonar. Karitas var dóttir
Þórunnar Hannesdóttur Scheving,
sýslumanns á Munkaþverá í Eyja-
firði Lárussonar Scheving Hannes-
sonar, sýslumanns á Möðruvöllum.
Móðir Þórunnar Hannesdóttur var
Jórunn Steinsdóttir, biskups á Hól-
um Jónssonar.
Mínerva var dóttir Bergsteins,
kennara og húsasmiðs á Eyrarbakka
Sveinssonar, b. í Hólshúsum í Flóa
Bjarnasonar, b. þar Ásmundssonar.
Móðir Bergsteins var Þórunn Eiríks-
dóttir, b. á Árgilsstöðum í Hvolhreppi
Bergsteinssonar, b. þar Sigurðssonar,
af Árgilsstaðaætt. Móðir Bergsteins
Sigurðssonar var Þórunn Einarsdótt-
ir.
Móðir Mínervu var Steinunn
Einarsdóttir b. á Kotströnd í Ölf-
usi Eyjófssonar, b. á Völlum í Ölfusi
Gíslasonar b. á Kröggólfsstöðum Eyj-
ólfssonar. Móðir Eyjólfs Gíslasonar
var Solveig Snorradóttir, ríka í Engey
Sigurðssonar. Móðir Steinunnar var
Rannveig Helgadóttir, hreppstjóra á
Hlíðarfæti í Borgarfirði Sveinbjörns-
sonar, pr, bróður Þórðar Svein-
björnssonar háyfirdómara, föður
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, tón-
skálds. Helgi var sonur Sveinbjörns,
kaupmanns og b. á Kjaranstöðum og
á Hvítárvöllum í Borgarfirði Þórð-
arsonar, útvegsb. í Akrakoti Svein-
björnssonar, og Vigdísar Davíðsdótt-
ur, Erlendssonar, frá Hvammi í Kjós.
Móðir Helga var Rannveig, systir
Bjarna, skálds og amtmanns. Rann-
veig var dóttir Vigfúsar, sýslumanns
á Hlíðarenda Thorarensen. Móðir
Vigfúsar var Sigríður Stephensen en
kona Vigfúsar var Steinunn Bjarna-
dóttir, landlæknis Pálssonar. Móðir
Steinunnar var Rannveig Skúladóttir,
landfógeta Magnússonar, og Stein-
unnar Björnsdóttur Thorlacius.
Þórunn Gísladóttir
Tækniteiknari
85
ára
85
ára
Ásmundur Gíslason
Framkvæmdastjóri í Árnanesi í Hornafirði
70 ára á sunnudag
60 ára á sunnudag
Myndavíxl
Þau leiðu mistök urðu við uppsetningu á afmælissíðu blaðsins sl. miðvikudag
að myndir víxluðust með afmælisgreinum. Mynd af Júlíusi Jónssyni birtist með
afmælisgrein um Sigurð Ragnar Ólafsson en mynd Sigurðar Ragnars með af-
mælisgrein Júlíusar. Eru þeir báðir beðnir velvirðingar á þessum hvimleiðu
mistökum og það leiðrétt hér með.
Júlíus Jónsson Sigurður Ragnar Ólafsson
Þórir fæddist í Reykjavík og ólst þar upp og á Seltjarnarnesi. Hann var í Foldaskóla og síðan
Hamraskóla, stundaði nám við Versl-
unarskóla Íslands og lauk þaðan stúd-
entsprófi 2001, stundaði síðan nám í
lögfræði við Háskóla Íslands og lauk
embættisprófi í lögfræði 2009.
Þórir vann á bensínstöð með námi
og starfaði við Landsbankann. Hann
hóf störf hjá Tryggingastofnun á með-
an hann var í námi og er nú lögfræð-
ingur þar.
Þórir starfaði með Röskvu í
Háskóla Íslands, var varaformað-
ur Röskvu um skeið, sat í Stúdenta-
ráði Háskóla Íslands og í Háskólaráði.
Hann hefur starfað í ungliðahreyfingu
Samfylkingarinnar og gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna.
Fjölskylda
Systkini Þóris eru Sigrún Gunnars-
dóttir, f. 16.8. 1986, búsett í Reykjavík;
Helgi Már Gunnarsson, f. 20.6. 1994,
nemi.
Foreldrar Þóris eru Gunnar Bjarni
Þórisson, f. 5.12. 1955, skrifstofumað-
ur í Reykjavík, og Helga Helgadóttir, f.
3.7. 1954, sjúkraliði.
Þórir Hrafn Gunnarsson
Lögfræðingur hjá Tryggingastofnun
30 ára á föstudag