Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Qupperneq 8
Megn óánægja í garð forystu Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík birtist
meðal flokksmanna í borginni sem
svöruðu könnun um starf og ár-
angur flokksins eftir borgarstjórnar-
kosningarnar í fyrra. Könnunin var
gerð síðasta vor í gegnum tölvupóst.
Hún var send á 600 virk netföng
flokksmanna. Þar af bárust svör frá
um 240, eða í kringum 40 prósent-
um þeirra sem könnunin var lögð
fyrir.
Óánægðir með margt
Meirihlutinn í Reykjavík féll í síð-
ustu kosningum, þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn missti tvo borgarfulltrúa
og Framsóknarflokkurinn náði ekki
kjörnum manni. Eftir stóð flokk-
urinn í minnihluta í bæði borg-
armálunum og í landsmálunum.
Þessi breytta staða flokksins virð-
ist leggjast ákaflega illa í sjálfstæð-
ismenn í borginni miðað við nið-
urstöður könnunarinnar. Þannig
sagðist fjórðungur svarenda vera
mjög óánægður með kosningabar-
áttu flokksins fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar. Alls sögðust 32 pró-
sent vera óánægð með baráttuna.
Hlutfall óánægðra er því 57 pró-
sent. Á sama tíma sögðust aðeins 16
prósent svarenda vera ánægð með
kosningabaráttu flokksins.
Flokksmenn voru einnig spurð-
ir um samstarfið á milli kosninga-
stjórnar í Valhöll og stjórnar Varðar,
sem er fulltrúaráð flokksins. Svip-
uð niðurstaða var uppi á teningn-
um þar. Þannig sögðust 48 prósent
vera óánægð eða mjög óánægð, en
aðeins 18 prósent voru ánægð með
samstarfið.
Í síðustu kosningabaráttu tóku
frambjóðendur í borginni upp á
því að ganga hús úr húsi. Tæplega
helmingur svarenda sagðist vera
óánægður með það framtak.
Vilja Vörð úr Valhöll
Sjálfstæðismenn voru einnig spurð-
ir að því hvernig þeir teldu að starf
Varðar myndi þróast ef starfsemi
ráðsins yrði færð úr Valhöll, þar sem
flokkurinn og stjórn hans hefur að-
setur. Helmingur svarenda taldi að
starfið myndi eflast við það að slíta
tengslin og flytja úr höfuðstöðvun-
um.
Mest óánægja birtist í garð for-
ystunnar vegna samráðsleysis við
grasrót flokksins um uppbyggingu
kosningabaráttunnar. Alls sögð-
ust 62 prósent svarenda vera mjög
óánægð eða óánægð með samstarf-
ið þarna á milli.
Svipað hlutfall svarenda var
óánægt með sýnileika frambjóð-
enda í síðustu borgarstjórnarkosn-
ingum. Þannig voru 54 prósent
svarenda óánægð með sýnileika
frambjóðenda. Það kann að skýrast
af því að Jón Gnarr borgarstjóri fékk
langmestu athyglina fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar. Sú athygli
dugði honum og Besta flokknum,
eins og frægt er orðið, til sigurs.
Þessi óánægja þarf ekki endilega
að koma á óvart. Þannig fékk Gísli
Marteinn Baldursson um fjögur
þúsund útstrikanir frá kjósendum
flokksins í borginni í fyrra. Það þýð-
ir að hartnær fimmti hver kjósandi
flokksins vildi Gísla burt af fram-
boðslistanum.
Óánægjan birtist einnig í kjöri til
Varðar sem fram fór í þessum mán-
uði. Samkvæmt heimildum innan
flokksins má hæglega túlka niður-
stöðu þeirrar kosningar sem tap fyr-
ir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og
hennar kjarna, því að frambjóðend-
ur sem taldir voru henni hliðhollir
náðu ekki kjöri.
8 | Fréttir 25.–27. febrúar 2011 Helgarblað
Njótum náttúrunnar
Skoðið ferðaáætlun Útivistar á
www.utivist.is
n Sjálfstæðismenn ósáttir við forystuna í
Reykjavík n Vilja fulltrúaráðið Vörð úr Valhöll
n Telja grasrótina ekki hafða með í ráðum„ Í síðustu
kosningabaráttu
tóku frambjóðendur
í borginni upp á því
að ganga hús úr húsi.
Tæplega helmingur
svarenda sagðist vera
óánægður með það
framtak.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Mikil óánægja
Með forystu
flokksins
Sætir öryggisgæslu eftir árás:
Stakk þau
bæði í augun
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt karlmann til að sæta öryggis-
gæslu fyrir fólskulega árás á foreldra
sína. Atvikið átti sér stað snemma
morguns laugardaginn 2. október síð-
astliðinn. Gekk maðurinn inn í svefn-
herbergi foreldra sinna og stakk þá
með skrúfjárni í augun þar sem þau
lágu sofandi. Þá sló hann föður sinn í
höfuðið með þungri pönnu.
Maðurinn var úrskurðaður í gæslu-
varðhald vegna málsins 2. október og
hefur honum verið gert að sæta vistun
á viðeigandi stofnun síðan. Greinar-
gerð frá geðlækni var lögð fyrir dóm-
inn þar sem fram kom að maðurinn
hefði verið mjög veikur þegar hann
framdi árásina og verið ósakhæfur á
verknaðarstundu. Kvað hann ástand
mannsins vera það slæmt að það yrði
að vista hann á Sogni.
Maðurinn, sem neitaði sök fyrir
dómi, var dæmdur til að greiða for-
eldrum sínum 800 þúsund krónur
samanlagt í miskabætur. Sakarkostn-
aður, að fjárhæð tæplega þrjár millj-
ónir króna, greiðist úr ríkissjóði.
Jón Gnarr sendi
samúðarkveðjur
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur,
sendi á fimmtudag samúðarkveðju
til Bobs Parkers, borgarstjóra Christ-
church á Nýja-
Sjálandi, vegna
jarðskjálftanna á
svæðinu síðast-
liðinn þriðjudag.
Náttúruhamfar-
irnar hafa kostað
tugi mannslífa og
valdið gríðarlegu
eignartjóni. Jón
sagði í kveðju sinni að hugur sinn
og borgarbúa væri með fjölskyldum
og vinum hinna látnu. Hann sagðist
jafnframt hugsa til þeirra sem þjá-
ist af völdum náttúruhamfaranna
og vonast til þess að björgunarstarf
gengi vel og hægt yrði að bjarga fleiri
mannslífum. Reykjavíkurborg og
Christchurch hafa í gegnum tíðina
átt töluverð samskipti, einkum í tíð
Mikes Richardson, fyrrverandi borg-
arstjóra Christchurch.
Leiðrétting
Í frétt DV um stórfelldan olíu-
þjófnað í Helguvík á miðvikudag
kom fyrir mistök fram að andvirði
olíunnar sem stolið var hefði ver-
ið 2,2 milljónir króna. Hið rétta er
að þúsund lítrar af dísilolíu kosta
rúmlega 220 þúsund krónur.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–14 og sunnudaga kl. 13–16
Verðmatsdagur
listmunauppboð
Gallerí Fold • þar sem verkin seljast
Erum að taka á móti verkum
á næsta uppboð sem verður 7. mars
Af því tilefni bjóðum við þér uppá ókeypis verðmat
sunnudaginn 27. febrúar kl. 13 og 16.
Síðasta uppboð var það besta frá 2007. Um 85% verkanna seldust
og flest þeirra á góðu verði.
Valhöll Helmingur svarenda telur að starf Varðar myndi eflast flytti starfsemin úr Valhöll.
Óánægja með
forystuna
Fjórðungur
svarenda sagðist
vera óánægður
með kosningabar-
áttu flokksins fyrir
síðustu borgar-
stjórnarkosningar.