Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Page 34
34 | Fermingar 25.–27. febrúar 2011 Helgarblað Fermingarmyndir Svipmyndir Hverfisgötu 50 sími 552 2690 www.svipmyndir.is Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is Plasir 1.498 kr. All colors 50 den 1.980 kr. 120 den 2.486 kr. D agur Adam Ólafsson verð- ur fermdur í Árbæjarkirkju í apríl og er fullur tilhlökk- unar. Hann segist líklega munu skera sig úr hópi jafnaldra sinna í klæðaburði en hann kýs að fermast í hvítum jakkafötum með hvítan hatt. „Systir mín keypti hatt- inn á fimm hundruð krónur á mark- aði fyrir ári og mér finnst hann ein- faldlega of flottur til þess að sleppa því að setja hann á höfuðið og hvað er betra tilefni en einmitt ferming- ardagurinn?“ segir Dagur Adam sem segir hvítu jakkafötin hafa verið keypt við hvíta hattinn. Heldur ræðu og er með skemmtiatriði Dagur Adam hefur skýrar hugmynd- ir um fermingardaginn. Hann ætlar að semja ræðu og flytja fyrir veislu- gesti þar sem hann býður gestina velkomna og segir aðeins af sjálf- um sér. „Mér finnst það kurteisi að bjóða gestina velkomna, systir mín gerði þetta í fyrra og það mæltist vel fyrir. Ég endurtek leikinn enda get ég varla annað.“ Hann æfir á tromp- et með Lúðrasveit Árbæjar og Breið- holts og ætlar líka að leika nokkur lög fyrir gestina. „Ég verð með mín eigin skemmtiatriði og systkini mín, Gríma og Mirra, koma mér til að- stoðar en þær leika líka á hljóðfæri. Gestunum má ekki leiðast,“ segir hann og hlær. Langar í sólarlandaferð Aðspurður um hvað hann vilji í fermingargjöf segir hann listann langan. „Það er auðvitað svo margt sem mann langar í. Mig dreymir um að fá utanlandsferð, tölvu, græjur og alls kyns tól. Ég væri til í að fara til sólarlandanna í sumar með fjöl- skyldunni, sú gjöf er í efsta sæti. Ég væri líka til í að fá pening sem ég gæti sjálfur eytt í föt. Ég er svolítið fatafrík og vil frekar velja fötin mín sjálfur.“ Dagur Adam segir jafnaldra sína helst langa í einhvers konar græjur. „Strákana langar flesta í tölvu af ein- hverju tagi. Suma langar í fartölvu og iPhone eða iPad og þannig lag- að en aðra langar helst í leikjatölvu eins og PlayStation 3.“ Þiggur glaður gjafirnar En er Dagur Adam búinn að hug- leiða hvað í þessum stóra degi felst? „Jú, að sjálfsögðu. Ég er trúaður og fermist til kristinnar trúar. Ég tek þetta samt ekkert of hátíðlega. Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég ætla að flytja úr Bibl íunni á fermingar- daginn en ég finn eitthvað gott. Ég veit vel að dagurinn snýst ekki að- eins um gjafir og þannig lagað. En þær eru nú bara vel þegnar samt,“ segir hann og hlær. Vill kransaköku og kjötbollur Hann segist ákveðinn í að tveir rétt- ir verði á boðstólum fyrir svanga gesti í veislunni. „Það verður að vera kransa kaka úr Rice Crispies og súkkulaði, hún er svo góð og kjöt- bollur með Ritz-kexi. Ég held mikið upp á þessa tvo rétti og er alveg til í að hjálpa til við að búa þá til svo þeir verði örugglega í boði.“ Dagur Adam gefur lesendum uppskriftina að kjötbollunum sem hann heldur svo mjög upp á. Dagur Adam hefur skýrar hugmyndir um fermingardaginn: Fermist í hvítum jakka- fötum með hvítan hatt Kjötbollur með Ritz-kexi Bollur n 1kg nautahakk n 2 egg n 2 pakkar af Ritz-kex, mulið n 1 pakki púrrulaukssúpa Hrært saman eins og deig og mótað í litlar bollur. Raðað á smjörpappír og bakað í ofni í 15 mínútur við 180 gráður. Sósan n Heinz chili-sósa n 1 dl matarolía Hráefnið sett í pott, suðan látin koma upp og þykkt með sósujafnara. Verður með sín eigin skemmtiatriði Dagur heldur ræðu og býður gesti velkomna og leikur á trompet í veislunni. mynDiR RóBeRt ReyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.