Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Side 54
54 | Lífsstíll 25.–27. febrúar 2011 Helgarblað Kynntu þér lán og aðra þjónustu Íbúðalánasjóðs Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969 www.ils.is Lán til íbúðakaupa Lán til endurbóta og viðbygginga Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka) Úrræði í greiðsluvanda 1 STRESSVALDARMikilvægasta skrefið er að greina hvað í lífi þínu veldur stressi. Þannig áttu auðveldara með að stýra álaginu. Taktu þér tíu mínútur í að hugsa um hvað það er á degi hverjum sem veldur þér stressi. Hvaða reglulegu at- burðir, hvaða fólk, hvaða áhuga- mál og allt sem þér dettur í hug sem er streituvaldur. Búðu til topp tíu lista yfir hluti sem valda þér streitu og athugaðu hvað hluti þú getur hreinlega eytt út af listanum eða gert á þann hátt að álagið sé minna. 2 ÓÞARFA SKULDBINDINGARVið erum öll með fjölda skuld- bindinga í lífinu og berum öll ábyrgð. Til dæmis í vinnu eða sem fjölskyldumeðlimir, sem vin- ir, í áhugamálunum og jafnvel á inter netinu. Skoðaðu hverja og eina skuldbindingu og hvort hún sé þess virði. Er hún þess virði að leggja þetta á sig miðað við þá streitu sem það veldur? Vertu harður við sjálfa(n) þig. 3 FRESTUNVið gerum þetta öll. Frestum hlutunum og látum þá staflast upp þangað til staflinn virðist jafn hár og Esjan. Reyndu eins og þú getur að afgreiða hlutina strax. Það gerir bara illt verra að bíða með það og þér líður líka mun betur þegar þú hefur rutt þeim úr vegi. 4 ÓSKIPULAGSkipulag er mikilvægur þáttur til þess að draga úr stressi. En skipulagi þarf að viðhalda. Hlut- irnir eiga það til að leita í óskipu- lag. Byrjaðu á litlu hlutunum eins og skrifborðinu. Bara það að hafa allt í drasli í kringum sig er streitu- valdandi. 5 STUNDVÍSIÞað er fátt meira stressandi en að vera á síðasta snúningi. Sumir eru alltaf of seinir í öllu. Maður þarf að undirbúa sig á hlaupum auk þess sem maður getur sett sjálfan sig í hættu í umferðinni. Lærðu að vera tímanlega á ferð- inni. Það er svo lítið mál að breyta þessu og þér mun líða mun betur. 6 STJÓRNUNVið erum ekki herrar alheims- ins þó svo að við höldum það stundum. Hættu að reyna stjórna öllu í kringum þig og sættu þig við þá hluti sem þú hefur enga stjórn á. Að reyna að stjórna fólki og að- stæðum eykur aðeins á stressið. Lærðu að sleppa takinu og það opnast fyrir þér nýr heimur. 7 FJÖLHÆFNIPassaðu þig að taka ekki of mörg verkefni að þér í einu. Það veldur því að þú missir fókusinn og það bitnar á endanum á þeim öllum. Í stað þess er vænlegast að byrja á einhverju og ljúka því áður en þú stekkur í það næsta. 8 ORKUSUGUREf þú ert komin(n) af stað í skrefi númer 1, að greina streitu- valda í lífi þínu, þá hefur þú eflaust tekið eftir því hvað dregur úr þér alla orku. Sumt sem maður gerir tekur frá manni alla orku og meiri orka þýðir minna stress. 9 FORÐASTU ERFITT FÓLKÞú veist hvaða fólk þetta er. Hvort sem það er yfirmaðurinn eða einhver annar. Í stað þess að pirra þig á fólki sem þú lendir í útistöðum við reyndu þá bara að spara þig og takmarka samskipt- in. Haltu þeim yfirveguðum og stuttum. 10 EINFALDAÐU LÍF ÞITTAð einfalda daglegt líf er stór þáttur í zen-fræðunum. Einfaldaðu rútínu þína, skyldur og áreitið í kringum þig. Dragðu úr netnotkun. Þú þarft ekki stöðugt flæði upp- lýsinga allan daginn. Hreinsaðu hugann án þess að vera að horfa á sjónvarp eða hanga við tölvuna. 11 HÆTTU AÐ PLANAHafðu daginn þinn mun opnari. Það er ekki nauðsynlegt að plana hverja einustu mínútu í lífinu. Lærðu að sneiða hjá fundum, búðu frekar til tíma þar sem þú getur tek- ið á einu stóru verkefni eða hrint úr vegi mörgum litlum. Þegar einhver biður þig um að hitta sig á fundi, reyndu þá frekar að leysa málið í gegnum símann eða með tölvu- pósti. Ef það tekst ekki, reyndu þá einfaldlega að komast hjá því að fundur verði planaður. Biddu við- komandi frekar um að hringja í þig seinna og spyrja þá hvort þú sért laus á þeim tíma. Þér mun líka að vera með opnari dagskrá. 12 HÆGÐU Á ÞÉRHægðu á þér í stað þess að drífa þig í gegnum lífið. Lærðu að gera hlutina rólega. Njóttu alls mat- ar, fólksins í kringum þig og nátt- úrunnar. Þetta skref mun minnka streituna til muna. 13 HJÁLPAÐU ÖÐRUMHjálpaðu öðrum. Það hljóm- ar kannski eins og mótsögn við allt hitt að þú sér nú farinn að taka á þig vandamál annarra þegar þú sjálfur eða sjálf hefur nóg að gera. En ef það er einhver einn hlutur sem þið ættuð að bæta á ykkur í lífinu er það að hjálpa fólki. Ekki bara gerir það hjartanu gott að láta gott af sér leiða heldur líður öðr- um vel í kringum þig líka. 14 SLAPPAÐU AF YFIR DAGINNÞað er mikilvægt að taka nokkrar stuttar pásur í vinnunni. Hættu því sem þú ert að gera og nuddaðu axlirnar á þér eða stattu Það takast allir á við streitu í einhverri mynd í nú- tímasamfélagi. Mikilvægt er að kunna leiðir til þess að losa um þetta stress en það er bara bráðabirgða- lausn. Öllu máli skiptir að greina hvaða þættir í lífi þínu valda stressinu og hvað þú hefur gert, til þess að ráðast að rót vandans. DV tók saman 20 ráð byggð á hinum fornu zen-fræðum um hvernig má draga úr stressi í daglegu lífi. ÚTRÝMDU STRESSINU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.