Dagblaðið Vísir - DV - 25.02.2011, Side 58
58 | Lífsstíll Umsjón: Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is 25.–27. febrúar 2011 Helgarblað
Koostik-magnari fyrir iPhone og iPod:
Tækni „sameinast“ náttúru
Eftir margra ára tilraunavinnu hef-
ur Koostik litið dagsins ljós. Græja
sem hægt er að nota sem hátalara
fyrir iPhone-síma og fjórðu kynslóð-
ar iPod-tónlistarspilara. Koostik er
handsmíðað úr tré og nýtir gamlar
og fremur ótæknivæddar leiðir til að
magna upp tónlistina sem kemur úr
spilurunum. Koostik nær að tvöfalda
og jafnvel fjórfalda hljóminn sem
kemur úr innbyggðum hátölurum
spilaranna.
Koostik notar engar snúrur eða
rafmagn við að magna hljóminn upp
og það eina sem þú þarft að gera er
að smella iPhone-símanum þínum
eða iPod-spilaranum í þar til gert
hólf. Þú hefur aðgang að öllum tökk-
um og skjánum á i-græjunni þinni
eftir að þú kemur honum fyrir í hólf-
inu og vilja framleiðendur Koostik
meina að núna sé búið „að sameina
tækni og náttúru“.
Á heimasíðu framleiðanda
Koostik er skýrt tekið fram að magn-
arinn geti ekki endilega komið í stað-
inn fyrir rafdrifna magnara í öllum
tilfellum. „Ef þú ert fyrir þungarokk-
stónlist spilaða virkilega hátt eða
mjög djúpa bassatóna er Koostik
ekki endilega málið,“ segir á vefsíð-
unni. „Ef þú ert hins vegar fyrir fal-
legan söng og rólega tónlist kemur
Koostik þér verulega á óvart.“
Þrír kunningjar Jim, Jancy og
Mike standa á bak við Koostik og
hafa þau unnið saman að hönnun,
þróun og markaðssetningu magnar-
ans. Fyrsta prufuútgáfan af Koostik
var unnin úr kaffibolla úr frauð-
plasti og þótti heppnast nokkuð vel.
Það varð til þess að Jim fór að gera
frekari tilraunir á rafmagnslausum
magnaranum. Jancy sér um bók-
haldið og Mike um að selja magn-
arann.
Gerðu alvöru
hamborgara
Alvöru hamborgarapressa er nauðsynleg
fyrir þá sem ætla að standa sig í stykkinu
við grillið í vor og sumar. Fyrir rúmar 2.000
krónur geturðu fengið góða hamborgara-
pressu sem gerir það minnsta mál að pressa
eitthvert lostæti, eins og ost, inn í hamborg-
arana. Maður skellir bara kjöti öðrum megin
og pressar, svo kjöti hinum megin og pressar,
einhverju auka hráefni í miðjuna og pressar
svo allt saman. Þú ert komin með góðan og
öðruvísi hamborgara með aðeins nokkrum
handtökum.
Símtól
fyrir GSM
Vefverslunin ThinkGeek býður upp á margs
konar varning sem óhætt er að segja að
langt verði þangað til venjulegar verslanir
fari að selja. Meðal þess sem verslunin selur
eru gamaldags símtól sem þú getur notað
með GSM-símanum þínum. Símtólin eru
ýmist búin Bluetooth-tækni, og tengjast
þannig þráðlaust við símann þinn, eða búin
snúru, sem þú stingur í samband við símann.
Símtólið þjónar engum sérstökum tilgangi
öðrum en þeim að gera spjall í farsíma aðeins
líkara því sem það væri ef þú værir að tala í
heimasíma – árið 1970.
n Það eru margar leiðir til að verða ríkur en þessar eru slæmar n Þú getur
ekki treyst á týndan ættingja í Nígeríu eða á góðmennsku spilavítiseigenda
n Ekki láta fara með þig eins og tilraunadýr hjá lækni eða netfyrirtæki
F
lestir hafa áhuga á því að
eignast peninga með sem
minnstri fyrirhöfn. Það eru
þó til misgáfulegar aðferðir til
að reyna að græða peninga – sumar
sem eru bókstaflega heimskulegar.
DV tók saman lista yfir fimm verstu
leiðirnar til að græða peninga.
Spilavíti
Það er þekkt staðreynd að spilavíti
koma alltaf út í hagnaði. Þó að það
komi einstöku sinnum fyrir að þeir
sem spila í spilavítum vinni stóra
vinninga eru hverfandi líkur á að þú
náir að græða hressilega á slíkri iðju.
Þegar upp er staðið eyðirðu meira
í spilavíti en þú græðir, nær sama
hversu háan vinning þú færð. Það
er nákvæmlega ástæðan fyrir því að
hótel í Las Vegas og öðrum helstu
spilavítisborgum heims borga fín-
ustu hótelherbergin og tilheyrandi
fyrir stærstu spilarana... spilavítið
kemur alltaf út í plús.
Nígeríupóstur
Ef þú ert með netfang hefurðu
fengið póst frá lögfræðingi sem
vinnur að því að losa ótrúlegar
fjárhæðir úr dánarbúi einhvers
staðar í Afríku. Þessir póstar eru
undantekningarlaust svindl. Það
er enginn ættingi þinn frá Nígeríu
sem var ríkasti maðurinn í þorpinu
sínu og hefur ánafnað þér milljörð-
um. Ef þú ert fæddur og uppalinn
á Íslandi eru líka hverfandi líkur á
að þú eigir nokkurn ættingja í Afr-
íku – hvað þá einhvern sem þú viss-
ir ekki af.
Netkannanir
Allir þeir sem hafa farið á netið hafa
séð auglýsingar frá einhverju fyrir-
tæki sem er til í að borga þér fúlg-
ur fjár fyrir að taka þátt í nokkrum
könnunum á dag. Ekki trúa þessu,
þú verður ekki milljónamæringur á
því að svara „örfáum spurningum“.
Óhætt er að gera ráð fyrir því að fyr-
irtæki sem bjóða þér ævintýralegan
gróða fyrir það eitt að svara spurn-
ingum sé ekki allt það sem það er
séð. Stoppaðu í það minnsta um leið
og þú ert beðinn að gefa upp kredit-
kortanúmer.
Pýramídafyrirtæki
Ef fyrirtæki lofar þér ofsafengnum
gróða fyrir það eitt að taka þátt í að
selja einhverja „vöru“ máttu vera viss
um að þú sért kominn með boð um
að taka þátt í pýramídasvindli. Marg-
ir hafa grætt á slíkum fyrirtækjum,
en það eru alltaf þeir sem byrja með
svindlið eða eru fyrstir til að taka
þátt. Ekki reikna með því að þú sért
einn af þeim fyrstu til að taka þátt í
fyrirtækinu, sama hvað forsvars-
menn þess segja þér.
Læknisfræðitilraunir
Allir bandarískir gamanþættir
sem endast í meira en ár koma á ein-
hverjum tímapunkti inn á að það sé
hægt að fá borgað fyrir að taka þátt í
einhverjum læknisfræðilegum rann-
sóknum. Það er ekki algengt að Ís-
lendingar hafi tækifæri til að taka
þátt í slíkum tilraunum og ekki mik-
inn pening upp úr því að hafa. Það
væri því argasta vitleysa að hætta í
vinnunni til að fara að leggja það fyr-
ir sig að vera tilraunadýr á rannsókn-
arstofu.
5 verstu leiðirnar
til að verða ríkur
Koostik Bara unnið úr tré.
Stafrænn gítar
Heilsaðu næstu kynslóð hljóðfæra. Misa
Kitara stafræni gítarinn bræðir saman
venjulegan gítar og nýjustu tækni til að búa
til hljóðfæri sem er bæði kunnuglegt og
eitthvað algjörlega nýtt. Í stað strengja er
stór og góður snertiskjár sem þú getur notað
til að slá á strengi gítarsins og í handfangi
gítarsins eru takkar sem þú ýtir á, með sömu
gripum og á venjulegan gítar, til að fá réttu
hljómana. Með snertiskjánum opnast nýir
möguleikar í spilamennsku sem ekki eru í
boði á venjulegum gítar. Þetta tæki mun
líklega ekki koma í staðinn fyrir gamla góða
gítarinn, en hann gæti engu að síður verið
mjög skemmtilegur.