Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2011, Page 29
Umræða | 29Helgarblað 15.–17. apríl 2011
Sæt hefnd
Valur varð í gærkvöld Íslandsmeistari
kvenna í handknattleik annað árið í röð
eftir þriðja sigurinn á Fram í jafn-
mörgum úrslitaleikjum liðanna.
Guðný Jenný Ásmundsdóttir
markmaður Vals varði víti í vítakast-
keppni sem leiddi til sigurs.
Hver er konan?
„Guðný Jenný Ásmundsdóttir.“
Hvernig var að sjá síðasta boltann
syngja í netinu og Íslandsmeistaratitill-
inn var tryggður?
„Það var bara alveg magnað. Þetta var
stórkostleg tilfinning. Þetta var geðshrær-
ing á hæsta stigi.“
Varstu stressuð fyrir vítakastkeppnina?
„Ég var rosalega stressuð og þvílíkur léttir
sem það var að takast þetta.“
Hefur tekið þátt í einni slíkri áður?
„Þetta er reyndar í fyrsta skipti sem ég tek
þátt í vítakastkeppni, þetta er pressa.“
Ertu sátt við þína frammistöðu í úr-
slitarimmunni?
„Já, ég er það, svona í heildina.“
Var þetta líka sæt hefnd fyrir bikarúr-
slitaleikinn þar sem Fram vann ykkur?
„Já, hvort hún var, því það var náttúrulega
rosalega súrt að tapa þeim leik og maður
sótti sér hvatninguna úr þeim vonbrigðum.
Við ætluðum ekki að láta þetta henda aftur.
Það var á hreinu.“
Leikurinn var hraður og dróst á langinn,
voruð þið ekkert þreyttar í lokin?
Jú, við vorum auðvitað þreyttar en maður
útilokar þreytuna og heldur einbeitingu.
Þetta var vissulega hraður leikur og spenn-
andi.“
Gerðuð þið ykkur dagamun eftir leikinn?
„Já, við vorum dregnar út í limmósínu, farið
með okkur á veitingastað, við fengum okkur
pítsur og við vorum auðvitað mjög hressar.
Við munum hins vegar taka mun hressilegar
á því um helgina enda tilefnið gott!“
„Mér fannst full ástæða og tímabært að
bera fram vantraust á þessa óhæfu ríkis-
stjórn.“
Magnús Sædal Svavarsson,
65 ára byggingarfulltrúi í Reykjavík
„Ég fylgist ekki með stjórnmálum, finnst
þau vera í sama rugli hér og annars staðar.“
Aga,
27 ára kokkur
„Mér finnst ríkisstjórnin ekki hafa staðið sig
nógu vel undanfarið.“
Sævar Snær,
17 ára nemi
„Niður með Babílon.“
Eddi Kaka,
18 ára atvinnulaus
„Hún átti rétt á sér. Ríkisstjórnin er alls ekki
búin að standa sig nógu vel og ég væri þess
vegna til í að fá nýja.“
Viðar Björnsson,
63 ára öryrki
Maður dagsins
Hvað finnst þér um vantraustsyfirlýsinguna sem sett var fram á Alþingi?
Peysufatadagur í hundslappadrífu Útskriftarnemar í Verzlunarskóla Íslands fylktu liði í miðborgina á fimmtudag og dönsuðu á Ingólfstorgi á svonefndum
peysufatadegi. Í miðjum hátíðarhöldum tók svo að snjóa. Nemendur héldu þá til hádegisverðar í Perlunni. Mynd SiGtryGGur Ari JóHAnnSSon
Myndin
Dómstóll götunnar
V
iðburðarík vika er að baki.
Eins og við erum orðin vön.
Ríkisstjórnin varð fyrir tveim-
ur þungum höggum. Sem
bætast við fyrri barsmðíðar. Áföllin
í vikunni voru ekki af minni gerð-
inni. Fyrst hafnaði þjóðin Icesave-
samningnum. Enn einu sinni. Og svo
missti ríkisstjórnin mann fyrir borð í
vantraustsatkvæðagreiðslunni. Sagt
er að Ásmundur Einar Daðason hafi
skundað beint til þeirra Atla Gísla-
sonar og Lilju Mósesdóttur og hróp-
að sigurslagorð eftir að hann hafði
komið óvæntu undirhandarhöggi
á félaga sína í VG. Þrátt fyrir að vera
fyrir löngu orðin sundurbarðasta rík-
isstjórn í manna minnum hangir hún
þó enn uppi. – Kannski að hún hangi
aðeins uppi á höggunum.
óvæntur stuðningur
Í vikunni skolaði gömlum fjandvini
úr gróðærinu á land en nú var hann
með allt önnur skilaboð á vör en þá.
Lars Christiansen, yfirmaður grein-
ingardeildar Danske Bank, spáði
fyrir hruninu á fyrri hluta árs 2006
en nú segir hann bjart fram undan
í íslensku efnahagslífi. Stuðningur-
inn við efnahagsstefnu ríkisstjórnar-
innar kom því úr óvæntustu átt. Sjá
mátti brún stjórnarliða lyftast um
stund. Þó var eins og margir trúðu
ekki Danske Bank nú fremur en þá.
Virtust alveg jafn stúmm. Eins og að
menn kunni ekki lengur að taka við
góðum fréttum.
Feigðarskýrsla Danske Bank í
mars 2006 (Geyser Crisis) kom í kjöl-
far álíka niðurstöðu Fitch Ratings
mánuðinn fyrr og sagði að íslenska
efnahagsundrið, sem svo var í stæri-
læti kallað, stæði á brauðfótum. Að
fjármálakerfið riðaði til falls. Ráða-
menn jafnt sem fjármálafurstar réð-
ust umsvifalaust á þessa boðbera
válegra tíðinda og útmáluðu útlend-
ingana sem nánast fávísa og öfund-
sjúka bullukolla sem tæpast hefðu
burði til að skilja sérkenni íslensks
efnahagslífs. Forsætisráðherra sagði
það ekkert nýtt að aðrir væru frem-
ur vantrúaðir á getu lítillar þjóðar, en
að lykilatriðið væri að „sækja fram af
skynsemi og hafa trú á hlutunum.“
Viðskiptaráðherrann sagði að gagn-
rýnin ætti „rætur að rekja til öfund-
ar nágrannaþjóða vegna þeirrar vel-
megunar og krafts sem einkenni
íslenskt samfélag.“ Hún velti því fyrir
sér „hvort sjálfsmynd Dana hafi eitt-
hvað rispast eftir að Íslendingar fóru
að fjárfesta í stórum stíl í Danmörku.“
Sendiherra okkar í Kaupmanna-
höfn sagði harkalegan tón í skýrslu
Danske Bank vera vegna þess að þeir
„sæju stöðu sinni hugsanlega ógnað.“
Greiningardeild Glitnis gaf í skyn að
Danirnir stjórnuðust af annarlegum
hvötum. Morgunblaðið sagði „for-
vitnilegt að fylgjast með fjaðrafokinu
í Danmörku þar sem dregin er upp
sú mynd af Íslendingum að þeir hafi
óhreint mjöl í pokahorninu í kjölfar
útrásar íslenskra fyrirtækja. Svo virð-
ist sem Danir hafi kunnað betur við
Íslendinga í gamla daga – með mygl-
að mjöl í dönskum pokum.“
Nokkru síðar kallaði Ólöf Nor-
dal það „róg“ þegar breska dag-
blaðið Sunday Times varaði fólk við
að leggja peninga inn á netreikn-
inga Landsbankans og Kaupþings og
menntamálaráðherrann, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, ráðlagði ein-
um gagnrýnandanum að leita sér
endurmenntunar.
Hjarðeðlið
Svona virkaði hjarðeðlið í gróðærinu.
En nú er þetta semsé allt á hinn veg-
inn. Nú vilja menn ekki trúa bjart-
sýnum spám Danske Bank sem segir
að krónan muni styrkjast um fjórð-
ung og að kaupmáttur batni verulega
á næstu misserum. En þá, loksins
þegar nokkuð virðist loksins rofa til,
keppast allir við að lýsa vantrausti og
tala íslenskan efnahag ofan í svaðið.
Mykjufen
Rannsóknarskýrsla Alþingis varð
ársgömul í vikunni. Skýrslan setti
bráðnauðsynlegan grundvöll undir
umræðuna um hrunið, orsök þess
og aðdraganda. Fram að því var eins
og við værum öll með bundið fyr-
ir augun. Við megum þó ekki falla
í þá gryfju að líta á hana sem heil-
agt plagg eða einhvern stóradóm. Á
henni eru ýmsir gallar eins og á öðr-
um mannanna verkum. Við þurfum
að ræða hana og gagnrýna. Skýrslan
vakti umræðu en meinið er að enn
hefur okkur ekki auðnast að rökræða
almennilega hvernig við ætlum að
betrumbæta stjórnkerfið og samfé-
lagið. Mikill tími hefur farið í arga-
þras um aukaatriði. Á meðan spólum
við föst í sömu hjólförum og áður.
Stjórnmálamenningin hefur ekk-
ert batnað eins og sannaðist við
umræðuna um vantrauststillöguna
á Alþingi. Enginn kom ósár frá því
brambolti – sem hitti stjórnarand-
stöðuna ekki síður fyrir. Umræðan
er fyrir vikið enn rætnari en nokkru
sinni og alþingismenn eru komn-
ir dýpra ofan í mykjufenið en menn
vissu að væri einu sinni hægt.
Hangir uppi á höggunum
Kjallari
dr. Eiríkur
Bergmann„Skýrslan vakti
umræðu en mein-
ið er að enn hefur okkur
ekki auðnast að rökræða
almennilega hvernig við
ætlum að betrumbæta
stjórnkerfið og samfé-
lagið.