Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2011, Qupperneq 13
Fréttir | 13Helgarblað 27.–29. maí 2011
Kona sem varð fyrir hrottalegri
nauðgun í fyrrasumar greindist með
áfallastreituröskun í kjölfar nauðg
unarinnar. Hún þorði ekki að koma
út úr herberginu sínu dögum sam
an og brast ítrekað í grát eftir nauðg
unina. Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi á fimmtudag Grétar Torfa
Gunnarsson í þriggja ára fangelsi fyr
ir nauðgun, og til þess að greiða fórn
arlambinu 1,2 milljónir í bætur og
málskostnað.
Nauðgunin átti sér stað í sam
kvæmi aðfaranótt 5. júní í fyrra. Grét
ar neyddi þar konuna til munnmaka,
samræðis og endaþarmsmaka. Sál
fræðingur sem kallaður var til vitnis
fyrir dómi greindi frá því að fórnar
lambið hefði upplifað mikla ógn og
bjargarleysi eftir nauðgunina en al
geng viðbrögð fórnarlamba kyn
ferðisofbeldis séu að frjósa eða
lamast. Konan þjáist af áfallastreitu
röskun sem ekki er hægt að rekja til
neins annars en nauðgunarinnar, að
því er segir í dómnum. Þá sagði vin
kona hennar fyrir dómi að í kjölfar
nauðgunarinnar væri hún grátgjörn
og hafi ekki megnað að koma úr her
bergi sínu dögum saman. Áður hafði
hún verið opin og skemmtileg. Þá
kom fram fyrir dómi að fórnarlambið
þurfti að flytja þar sem hún gat ekki
hugsað sér að búa í sama hverfi og
Grétar.
Máttlaus af skelfingu
Fórnarlambið og vinkona henn
ar höfðu hitt Grétar og vini hans á
veitingastað fyrr um kvöldið sem
nauðgunin átti sér stað. Þaðan héldu
þau öll svo í íbúð sem Grétar hafði
á leigu. Það var svo í íbúðinni sem
nauðgunin átti sér stað. Fórnarlamb
ið var að leita að vinkonu sinni þegar
Grétar stóð í herbergisdyrum sínum.
Þar ýtti hann konunni inn í herberg
ið, hrinti henni á rúmið og þvingaði
hana til munnmaka. Hann sneri kon
unni, sem var máttlaus af skelfingu,
við og nauðgaði henni á ýmsa vegu.
Á meðan öllu þessu stóð tók hann
gleraugun af henni í sífellu, reif í hár
hennar og tók hana hálstaki.
Neitaði sök
Fórnarlambið var í miklu upp
námi eftir nauðgunina og hringdi í
neyðar línuna. Lögregla kom á vett
vang og fór með konuna á neyðar
móttöku en líkamlegir áverkar sáust
á henni.
Eftir það skoðaði lögreglan íbúð
ina þar sem brotið átti sér stað en
ummerki voru greinileg og var Grét
ar yfirheyrður í kjölfarið. Grétar
neitaði hins vegar sök í málinu fyrir
rétti. Hann viðurkenndi að hafa átt
samræði við fórnarlambið en það
hafi verið gert með fullu samþykki
hennar þar sem hún reyndi ekki að
sporna gegn kynmökunum. Jafn
framt kveðst hann ekki hafa beitt
neinum þvingunum þó hann viður
kenndi að hafa togað í hár hennar.
Dómnum þótti framburður Grétars
hins vegar ekki trúverðugur meðal
annars vegna þess að hann stangað
ist á við gögn málsins. Var því Grétar
fundinn sekur
n Varð fyrir hrottalegri nauðgun í fyrrasumar n Lokaði sig inni
í marga daga eftir atvikið n Nauðgari dæmdur í 3 ára fangelsi
Gat ekki búið í sama
hverfi oG nauðGarinn
Björn Reynir Halldórsson
blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is
Hrikalegar afleiðingar Konan hefur glímt við margvíslega erfiðleika eftir nauðgunina.
Hún þorði ekki út úr herberginu sínu og brast ítrekað í grát. Myndin er sviðsett.
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4