Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Page 10
Aðstandendur fjárfestingarfélags
ins Arðvis höfðu safnað 130 millj
ónum króna í hlutafé í lok árs 2010
samkvæmt ársreikningi félagsins,
Arðvis hf., fyrir síðasta ár. Hlutaféð
kemur frá að mestu frá íslenskum
fjárfestum, meðal annars Ólafi Stef
ánssyni handboltamanni sem hafði
lagt nærri 9,5 milljónir króna til fjár
festingarfélagsins og átti rúmlega 3
prósenta hlut í því samkvæmt hlut
hafalista Arðvis frá 13. október síð
astliðinn. 141 Íslendingur, að lang
mestu leyti venjulegt launafólk, hafði
þá lofað að leggja Arðvis til samtals
rúmlega 363 milljónir króna í hlutafé.
130 milljónir af hlutafénu höfðu skil
að sér til félagsins í árslok 2010.
Í stuttu máli snýst starfsemi Arð
vis um að þróa forrit á internetinu,
Corpus Vitalis, sem á að gera fólki
kleift að fjárfesta í vörum og þjón
ustu á netinu og án þess að versla
beint við aðra en Arðvis. Hugmyndin
er þá sú að Arðvis hafi komið sér upp
samningum við birgja sem geri not
endum forritsins kleift að fá vörurn
ar á hagstæðu verði. Mikill arður á að
verða til í þessum viðskiptum sem á
að renna til hluthafa í Arðvis sem og
fátækra í heiminum.
Ætluðu að standa sig
Sérfræðingur á fjármálamarkaði var
aði við því í DV á seinni hluta síðasta
árs að Arðvis hefði mörg einkenni
píra mídasvindls en ekki liggur fylli
lega ljóst fyrir hvort svo sé eða hvort
aðstandendur Arðvis einfaldlega trúi
á að fjárfestingaverkefnið muni ganga
upp.
Í viðtali við DV í lok árs í fyrra
sagði framkvæmdastjóri og aðalhug
myndafræðingur Arðvis, Bjarni Þór
Júlíusson: „Þetta gengur mest út að
hjálpa fólki. Þetta er sett upp þann
ig að það eru ríkir sem eiga eitthvert
lausafé sem fjármagna þetta, af því að
við fengum ekki fyrirgreiðslu í banka
kerfinu. Fjárfestarnir geta sjálfir haft
eitthvað upp úr þessu en þeir eru fyrst
og fremst að fjármagna hjálparstarf,
deila peningum til fólksins sem þarf
aðstoð [...] Þetta er áhættufjárfesting
en við teljum þetta vera það mikil
vægt að við erum reiðubúnir að leggja
þetta á okkur.“ Hann sagði jafnframt
að peningarnir sem lagðir hefðu verið
inn í félagið sem hlutafé væru notaðir
til að koma Corpus Vitalis á koppinn.
„Við ætlum að standa okkur gagnvart
þessu fólki,“ sagði Bjarni og átti þá við
fólkið sem hafði lagt fjármuni inn í fé
lagið.
53 milljóna rekstrarkostnaður
Í ársreikningi rekstrarfélags Arðvis,
sem heitir Costa ehf., þar sem gerð
er grein fyrir því í hvað hlutaféð sem
safnast hefur inn í Arðvis hf. hefur
farið kemur fram að rekstrarkostn
aður Arðvis hafi verið rúmar 53 millj
ónir króna á síðasta ári. Þar af námu
laun og launatengd gjöld nærri 54
milljónum króna. Skuldir félagsins
eru skráðar sem rúmlega 65 milljón
ir króna, en þar er um að ræða skuld
ir við hluthafa Arðvis sem lagt hafa fé
inn í starfsemi Arðvis, og eiginfjár
staða félagsins er neikvæð um rúm
lega 56 milljónir. 30 milljóna króna
tap varð á rekstri félagsins í fyrra.
Þannig virðist um helmingur af því
hlutafé sem safnaðist inn í Arðvis
hf. hafa runnið inn í rekstrarfélagið
Costa. Þessi upphæð er svo bókfærð
sem skuld við Arðvis. Starfsemi Arð
vis þarf því að ganga upp ef hluthaf
arnir eiga ekki að tapa þeim fjármun
um sem þeir lögðu inn í félagið. Nú
þegar hefur helmingurinn af hlutafé
Arðvis verið notaður til að koma
rekstrinum á koppinn.
Hnattrænt markaðstorg
Markmið Arðvis og nákvæmlega
hvernig félagið á að starfa er ekki
fyllilega ljóst út frá heimasíðu félags
ins eða þeim gögnum sem DV hefur
undir höndum. Meginhugmyndin
virðist hins vegar vera sú að þegar
fólk hefur ákveðið að fjárfesta í Arð
vis muni hluthafarnir fá aðgang að
því sem aðstandendur fjárfestingar
félagsins kalla „hnattrænt markaðs
torg“ á netinu og kalla þeir það Corp
us Vitalis.
Á þessu hnattræna markaðstorgi
geta hluthafarnir keypt vörur og
þjónustu og mun hagnaðurinn af söl
unni á þessum vörum síðan renna að
90 prósent leyti aftur til hluthafanna í
formi arðgreiðslna, samkvæmt gögn
unum sem DV hefur undir höndum.
Hugmyndin er þá sú að Corpus Vit
alis verði milliliður á milli þeirra sem
framleiða vörur og selja þjónustu og
hluthafa Arðvis. Hluti af hagnaðin
um af þessum viðskiptum í gegnum
Corpus Vitalis mun svo renna aftur í
vasa hluthafanna sjálfra.
10 prósent af hagnaði Corpus Vit
alis mun hins vegar renna til góð
gerðamála og munu hluthafarnir
geta valið til hvaða góðgerðasamtaka
þeir vilja gefa hluta af sínum arði.
Hluthafarnir geta sömuleiðis ákveð
ið að taka sjálfir þátt í góðgerðastarfi
og munu þá fá stig fyrir það sem
munu auka arðgreiðslurnar til þeirra
út úr Corpus Vitalis.
Lofa gríðarlegum arði
90 prósent af hagnaðinum fer því
til hluthafanna sjálfra og 10 pró
sent til fátækra enda er tilgang
ur Arðvis öðrum þræði að verða
„best heppnaða góðgerðaverk
efni í heimi“. Þessi hugsun kemur
glögglega fram á heimasíðu Arðvis
þar sem segir: „Fjárfesting þín í
Arðvis í dag er einfaldlega fjárfest
ing í betri morgundegi“ og hyggj
ast forvarsmenn Arðvis ætla að
útrýma fátækt í heiminum með
verkefninu.
Í gögnunum sem DV hefur undir
höndum, þar sem Arðvis og Corpus
Vitalis eru kynnt til sögunnar, kem
ur fram að hluthafar félagsins geti
búist við nánast ævintýralegum arði
af fjárfestingu sinni. Þar segir með
al annars að þeir sem eigi 1 pró
sent í félaginu fyrsta árið sem Cor
pus Vitalis starfar geti búist við arði
upp á 185 milljónir dollara, um 20
milljörðum króna, á mánuði. Fjórða
árið sem Corpus Vitalis mun starfa
á þessi upphæð að vera komin upp
í nærri 740 milljónir króna, rúma 80
milljarða króna í arð á mánuði.
Stefnan er að notendur í 132
löndum muni nota Corpus Vitalis
og að til verði störf fyrir 10 milljón
ir manna. Áætlanir aðstandenda
Arðvis gera ráð fyrir því að á end
anum muni nærri hálfur milljarð
ur manna nota vefinn, samkvæmt
gögnunum.
10 | Fréttir 15.–19. júní 2011 Helgarblað
n Arðvis var búið að safna 130 milljónum í hlutafé n Venjulegt fólk hefur lagt milljónir til verkefnisins
n 65 milljónir fóru í rekstrarkostnað n Fólki lofað gríðarlegum arði n Átti að útrýma fátækt í heiminum
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
HlutHafar tapa fé í
dularfullum rekstri
Heimsótti Arðvis Ólafur Stefánsson, þekktasti hluthafi Arðvis, heimsótti höfuðstöðvar félagsins í fyrra. Aðstandendur Arðvis notuðu heimsókn Ólafs í kynningarmyndbandi um verk-
efnið. Þar sagði meðal annars: „Ólafur Stefánsson handboltamaður er einn af hugmyndafræðingunum í verkefninu okkar.“
„Við ætlum að
standa okkur
gagnvart þessu fólki.
Dúnmjúkar
brúðargjafir
Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið Sími 533 2220 vefverslun www.lindesign.is (sendum frítt á næsta pósthús)