Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Side 13
Fréttir | 13Helgarblað 15.–19. júní 2011
„Ég hef sagt það áður að ég hef hugs-
að mér að snúa til þings um leið og
það er búið að eyða þessari óvissu
sem að myndaðist. Það hefur ekk-
ert breyst í því. Ég vona að það verði
sem fyrst,“ segir Illugi Gunnars-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, sem bíður eftir niðurstöðum
úr rannsókn sérstaks saksóknara á
peningamarkaðssjóðum.
Illugi tók sér launalaust leyfi frá
störfum í apríl í fyrra á meðan rann-
sókn embætti sérstaks saksóknara
rannsakar málefni peningamark-
aðssjóða. Illugi sat í stjórn Sjóðs
9, peningamarkaðssjóðs Glitnis.
Rannsóknarnefnd Alþingis áleit
sem svo að áhættudreifing skuld-
aráhættu hans hefði verið verulega
ábótavant. Lánveitingar Sjóðs 9 til
Glitnis og tengdra félaga voru einnig
verulega umsvifamiklar. Þær vöktu
að mati nefndarinnar upp alvarleg-
ar spurningar um sjálfstæði félags-
ins gagnvart eigendum þess.
Ekki verið yfirheyrður
Illugi segist ekki hafa verið yfir-
heyrður vegna rannsóknar málsins
og segist ekki vita hvernig framhald
þessara mála verður hjá embætti
sérstaks saksóknara. „Málinu var
vísað til þeirra. Aftur á móti hefur nú
þegar verið látið reyna á þetta með
því að það var höfðað skaðabótamál
sem var vísað frá héraðsdómi fyr-
ir nokkru. Þeir sem höfðuðu málið
drógu líka til baka megnið af sínum
kröfum þegar þeir fengu í hendurn-
ar málsvörn rekstrarfélagsins. Að
vissu leyti er komið þarna ákveðinn
mælikvarði á þetta allt saman,“ segir
Illugi sem segist bíða eftir að þess-
ari óvissu verði eytt með nægjanleg-
um hætti. „Þá mun ég snúa aftur til
starfa.“
Illugi hefur þó ekki setið auðum
höndum þó svo að hann sé í launa-
lausu fríi frá alþingisstörfum. Illugi
tók að sér ráðgjafar- og kynningar-
störf fyrir KOM almannatengsl fyrr
í vetur. Illugi var þar í 25 prósenta
hlutastarfi og var sjálfstætt starf-
andi. „Ég var að vinna fyrir þá í
nokkrum verkefnum í nokkra mán-
uði. Það er nokkuð síðan ég var þar,“
segir Illugi.
Verkefni hér og þar
Illugi segist hafa tekið að sér nokk-
ur verkefni hér og þar upp á síð-
kastið. „Ég er ekki svo heppinn að
hafa fengið einhvern arf, eða eitt-
hvað þess háttar, frá einhverri ríkri
frænku í Ameríku. Þannig að ég
þarf bara eins og aðrir að vinna fyr-
ir mér og er engin vorkunn að því.
Ég hef bara verið að taka að mér
verkefni hér og þar. Verkefnin eru
svo sem ekki stór því ég hef ekki
getað bundið mig til lengri tíma
neins staðar af því að ég bíð bara
eftir að það komi einhvers konar
niðurstaða í þessi mál sem dugir til
þess að ég geti snúið aftur til minna
starfa,“ segir Illugi.
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
n Illugi bíður eftir niðurstöðu embættis sér-
staks saksóknara n Óvíst hvenær hann snýr
aftur á þing n Sinnir verkefnum í launalausu fríi
„Ekki svo hEpp-
inn að hafa
fEngið arf“
Sinnir verkefnum Illugi segist
hafa sinnt nokkrum verkefnum í
launalausu fríi sínu frá Alþingi.
Þegar heilsan er annars vegar þá skipta gæði
tækisins mestu máli.
Omron blóðþrýstingsmælar fá hæstu einkunn í klínískum rannsóknum
og eru viðkenndir af ESH, BHS og WHO.
Omron blóðþrýstingismælar fást í estum apótekum.
Þjónustuaðili Omron á Íslandi
s:512 2800
Blóðþrýstingsmælar