Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Blaðsíða 14
14 | Fréttir 15.–19. júní 2011 Helgarblað
Meðlimir Rauða kross Íslands,
Mannréttindaskrifstofu Íslands og
samtakanna No Borders í Reykja-
vík funduðu með Jóni Gnarr borg-
arstjóra um málefni flóttamanna
síðastliðinn miðvikudag og færðu
honum formlega viljayfirlýsingu. Í
yfirlýsingunni sem DV hefur afrit af
er lögð áhersla á það sjónarmið að í
Reykjavík sé flóttafólk í meiri nálægð
við stjórnsýslu, lögmenn, og aðra þá
aðila sem kunna að koma að mál-
um þeirra, og því beri að stefna að
því að færa heimili fyrir flóttafólk frá
Reykjanesi til höfuðborgarinnar.
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykja-
víkur, segir mannréttindamálin lengi
hafa brunnið á honum og segist ætla
að beita sér fyrir því að gistiheimili
fyrir flóttamenn verði fært til höfuð-
borgarinnar. Með því yrði hægt að
koma í veg fyrir þá félagslegu ein-
angrun sem flóttafólk á Íslandi hafi
mátt búa við undanfarin ár. Steinunn
Björk Pieper, verkefnisstjóri Mann-
réttindaskrifstofu Íslands, var ánægð
með fundinn og segir að jákvæð við-
brögð borgarstjóra hafi styrkt málefni
sem snýr að aðbúnaði einstaklinga
sem óska hælis á Íslandi. Talsmenn
No Borders í Reykjavík telja að með
þessu gæti Reykjavíkurborg unn-
ið einhvern sinn stærsta mannrétt-
indasigur seinni ára. Flóttamaður
frá Eþíópíu, Kassahun að nafni, sótti
einnig fundinn, en hann segir að á
gistiheimilinu Fit lifi fólk lífi einangr-
unar.
Fórnarlömb aðstæðna
Á fundinum var rætt um þá hug-
mynd að gistiheimili og aðstaða fyrir
flóttamenn, sem fram að þessu hefur
að mestu verið staðsett í Fit í Reykja-
nesbæ, verði færð til Reykjavíkur.
Borgarstjóri tók vel í hugmyndina
og segist í samtali við DV hafa rætt
málin við innanríkisráðherra. Mál-
efni flóttafólks hafa verið nokkuð
til umfjöllunar undanfarið en í maí
reyndi íranski flóttamaðurinn Mehdi
Kavyan Poor sjálfsíkveikju í hús-
næði Rauða krossins. Mehdi hefur
í sjö ár barist fyrir pólitísku hæli og
dvalarleyfi á Íslandi en mikill drátt-
ur hefur verið á máli hans. Síðar í
mánuðinum reyndi ungur Palestínu-
maður að nafni Mousa Sharif Al Jara-
dat að fyrirfara sér á gistiheimilinu
Fit. Tvær sjálfsvígstilraunir á einum
mánuði hafa vakið upp spurningar
um aðbúnað flóttafólks hér á landi
og félagslega stöðu þess í samfé-
laginu.
„Að mínu mati ætti að líta á mál-
efni flóttafólks í víðu samhengi út
frá mannréttindasjónarmiðum. Það
er einfaldlega þannig að flóttamenn
eru fórnarlömb aðstæðna, þeir
fæddust ekki til þess að lifa lífinu á
flótta. Þannig að hvert sem flóttafólk
fer og hvar sem það endar ætti alltaf
að koma fram við það af ást, heilind-
um, væntumþykju og virðingu,“ segir
Kassahun frá Eþíópíu en hann býr nú
á gistiheimilinu Fit í Reykjanesbæ.
DV ræddi við Kassahun eftir fundinn
með borgarstjóra í Ráðhúsi Reykja-
víkur. Kassahun sagðist ánægður
með fundinn og að ljóst væri að Jón
Gnarr hefði mikinn skilning á mann-
réttindamálum.
Skiptir borgarstjóra miklu máli
„Mín upplifun af Fit er sú að þar lifi
fólk lífi einangrunarinnar. Það ríkir
oft mikil óvissa um hvert framhaldið
verður hjá fólki, hvort það fái að vera
hér eða hvort það verði sent úr landi.
Því líður oft illa og verður langþreytt
á biðinni. Með því að flytja aðstöðu
fyrir flóttamenn til Reykjavíkur væri
verið að koma í veg fyrir einangrun
flóttafólks,“ segir hann og bendir á að
Reykjavík sé höfuðstaður menningar
og mannlífs. Þar geti flóttafólk frek-
ar kynnst fjölbreytileika landsins og
tengst íslensku samfélagi.
Í borgarstjórnartíð Jóns Gnarr
hefur sífellt meiri áhersla verið lögð
á mannréttindamálin, að minnsta
kosti í orði.
Nýlega tilkynnti borgarstjórinn
til að mynda að Laugavegur skyldi
heita Mannréttindavegur í þrjá daga
til þess að fagna 50 ára baráttu Am-
nesty International fyrir mannrétt-
indum. Þá fer verkefnið Skjólborg af
stað í sumar, en þá mun Reykjavíkur-
borg taka á móti ofsóttum og land-
flótta rithöfundum og veita þeim
ákveðna þjónustu. DV ræddi við Jón
eftir fundinn á miðvikudag en þá
sagði hann að flutningur á aðstöðu
flóttamanna til höfuðborgarinnar
tilheyrði mannréttindamálum sem
hafi lengi verið honum hugleikin.
„Mér persónulega finnst þetta skipta
mjög miklu máli,“ sagði hann.
Rætt við ráðherra
„Margir telja að það sé ekki gott fyr-
ir flóttamenn að vera á Fit í Reykja-
nesbæ. Talað er um að fólk verði
óþarflega félagslega einangrað á
þessum stað og að betra væri ef að-
staðan væri hér í Reykjavík,“ segir
Jón og bætir við: „Mér finnst þetta
bara einfaldlega ekki rétti staðurinn
til þess að vera með þessa þjónustu.“
Hann tekur fram að málið snúist ekki
um aðbúnaðinn sem slíkan, heldur
að flóttafólk geti sótt í það mannlíf
og þá þjónustu sem þurfi að sækja í
höfuðborgina að staðaldri. „Ég hef
lýst yfir áhuga á því að leggja mín lóð
á vogar skálarnar til þess að breyta
þessu fyrir hönd borgarinnar.“ Jón
segist hafa tekið málið upp við Ög-
mund Jónasson innanríkisráðherra.
Hann segir enga endanlega niður-
stöðu hafa komið fram á fundinum,
málið sé ennþá á umræðustigi en
ljóst sé að allir á fundinum hafi verið
sammála um hver markmiðin væru.
„Það er gleðiefni hve mikinn
áhuga borgarstjóri sýnir þessum
málaflokki, og við erum reiðubúin
að veita aðstoð og annað slíkt ef úr
verður,“ segir Steinunn Björk Pieper,
verkefnisstjóri Mannréttindaskrif-
stofu Íslands. Steinunn tekur und-
ir með Jóni og Kassahun, að flótta-
fólk sé of einangrað á gistiheimilinu
Fit og úr því þurfi að bæta. „Stjórn-
völdum er skylt að tryggja mannúð-
legar aðstæður hælisleitenda og það
vilja þau. Við gagnrýnum ekki þjón-
ustuna sem þeir fá nú í Reykjanesbæ
– það sem við erum að mælast til er
að hælisleitendur séu nær stjórn-
sýslunni og þeim aðilum sem koma
að málum þeirra, og um leið að sú
samfélagslega einangrun sem þeir
n Borgarstjóri tekur undir viljayfirlýsingu Rauða krossins og fleiri samtaka n Hafa áhuga á
því að flytja flóttafólk til Reykjavíkur n Flóttamaður sem sótti fundinn segir flóttafólk lifa
lífi einangrunarinnar n Gæti orðið einn stærsti mannréttindasigur Reykjavíkurborgar
Borgarstjóri vill rjúfa
einangrun flóttafólks
„Ég hef lýst yfir
áhuga á því að
leggja mín lóð á vogar-
skálarnar til þess að
breyta þessu fyrir hönd
borgarinnar.
Mannréttindamál Rauði kross Íslands, Mann-
réttindaskrifstofa Íslands, No Borders í Reykjavík
og borgarstjóri eru sammála um að réttast væri ef
aðstaða flóttafólks væri í Reykjavík.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is