Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Qupperneq 21
Erlent | 21Helgarblað 15.–19. júní 2011
Sex ára gamalt heiðursmorð sem
framið var í Svíþjóð hefur verið tekið
fyrir á ný eftir að nýjar upplýsingar
komu fram í dagsljósið. Ungur mað-
ur sem dæmdur var fyrir morðið á
Abbas Rezai hefur stigið fram einu
ári eftir að afplánun lauk og sagt frá
því að foreldrar hans hafi neytt hann
til að taka á sig sökina. Málið hefur
verið tekið fyrir á ný.
Hrottafengið morð
Forsaga málsins er sú að Rezai, tví-
tugur maður af afgönskum upp-
runa, átti í ástarsambandi við stúlku
sem einnig var af afgönskum upp-
runa. Rezai tilheyrði hins vegar
lægra settum ættbálki en stúlkan og
það gat fjölskylda hennar ekki sætt
sig við. Saksóknari í málinu heldur
því fram að fjölskyldan hafi lokk-
að parið til íbúðar sinnar í Högsby,
skammt frá Kalmar, þar sem stúlk-
an var dregin burt á meðan Rezai
var pyntaður. Hellt var brennheitri
matar olíu á andlit hans, hann bar-
inn sundur og saman og að lokum
var hann drepinn með mörgum
hnífsstungum.
Fjölskyldan var handtekin fyrir
morðið og ákærð fyrir morðið en á
endanum var það einungis 17 ára
sonur sem var sakfelldur eftir að
hafa tekið á sig alla sök. Hann var
dæmdur til fjögurra ára vistar í ung-
lingafangelsi og lauk afplánun á síð-
asta ári. Það var svo núna, ári síðar,
sem hann ákvað að gefa sig fram við
lögreglu og segja frá því að foreldrar
hans hefðu þvingað sig til að taka á
sig alla sök.
Gagnrýnir málsmeðferðina
Saksóknari furðar sig á því að nokk-
ur manneskja geti þvingað barn sit
til að taka á sig sök á morði sem hún
sjálf hefur framið en í þessu tilviki
hafi fólkinu þótt betra að láta dreng-
inn afplána fjögur ár í unglingafang-
elsi frekar en að afplána sjálft 16 ár
í fangelsi. Þá gagnrýnir hún máls-
meðferðina, meðal annars hafi frá-
sögn drengsins ekki passað við
rannsóknir á vettvangi. Saksóknari
gagnrýnir að drengurinn hafi verið
sakfelldur á vafasömum forsendum
og vonast til að sannleikurinn eigi
eftir að koma endanlega í ljós í yfir-
standandi réttarhöldum.
Sonurinn tók á Sig
Sök á heiðurSmorði
n Sex ára gamalt heiðursmorð tekið fyrir á ný n Fórnarlambið brennt á andliti og drepið með hnífsstungum
Björn Reynir Halldórsson
blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is
Kertavaka Rezai tilheyrði ættbálki sem var ekki kærustu hans samboðinn að mati fjölskyldu hennar. Mynd úr SaFni
GamaldaGs veitinGa-
staður oG Gistihús
við þjóðveG 1.
veitinGaskálinn víðiGerði er gam
aldags veitingastaður
við þjóðveginn í Húnaþingi vestra. Hér g
etur þú stoppað og teygt
úr þér, fengið gott sveitakaffi og alvöru k
affi latte, caphuchino og
expresso baunakaffi sem sumir segja þ
að besta á landinu…Við
seljum pylsur og samlokur gos, sælgæti
og fleira í þeim dúr. Alla
daga vikunnar frá kl. 11 til 22 getur þú fe
ngið Thailenskan mat og
heimilismat. Við leggjum líka áherslu á m
atarmiklar súpur, gúllas-
súpu, kjúklingasúpu, kjötsúpu, mexicosú
pu...Grillið er opið frá kl. 9
til 23 og þá er hægt að fá bestu hamborg
ara við þjóðveg 1. (án allra
aukaefna) steiktan fisk ásamt nauta -og f
olaldasteik.
VíðidAlur eHf. | 531 HVAmmsTAnGi | sími: 451 2592 | fAx: 451 2593 | neTfAnG: VidiGerdi@VidiGerdi.is | HeimAsíðA: www.VidiGerdi.is
Thai maTurSKYNDimaTurhEimiLiSmaTurSamLOKur
TruKKar