Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Page 34
Íslendingar búa úti um allan heim. Í kringum þjóðhátíðardaginn leitar hugurinn
oft á heim á leið. DV lék forvitni á að vita hvers Íslendingar í útlöndum sakna
helst, hvað sé að þeirra mati best við Ísland, hvort þeir fagni þjóðhátíðardeg-
inum erlendis og hvað sé besti íslenski maturinn.
Íslendingar
í útlö dum
Fagnar 17. júní
með SS-pylsum
Ágúst Ólafur Ágústsson fyrrver-
andi þingmaður býr með eigin-
konu sinni og tveimur dætrum í
New York.
Hvers saknar þú mest frá Íslandi?
„Auðvitað saknar maður fjölskyldu og
vina sinna mest. Dætur okkar tvær sakna
þess líka mjög að komast ekki í íslenskar
sundlaugar. Ég sakna einnig íslenska
sumarsins að kvöldlagi í Rauðagerði.“
Hvað er best við Ísland? „Fjallasýnin
og fjaran. Við að flytja út og glíma við
bandarískar stofnanir uppgötvar maður
líka að Íslendingar búa yfir kostum sem
Bandaríkjamenn hafa ekki en það eru
liðlegheit og sveigjanleiki, að geta hugsað
út fyrir kassann. Öfugt við það sem
margir halda geta Bandaríkjamenn verið
óskaplega ferkantaðir og verulega hrifnir
af óþarfa bjúrókrasíu.“
Hver er uppáhalds íslenski maturinn
þinn? „Íslenskt lambalæri. Löngunin í
það verður aldrei eins mikil og þegar mað-
ur kemst ekki í það. Og um helgina var ég
einmitt staddur í hópi Íslendinga þar sem
hið klassíska meðlæti lambalærisins var
dásamað, rauðkálið, sultan og baunirnar.
Að auki hefur maður uppgötvað eftir að
hafa verið erlendis að Ísland hefur mikla
yfirburði í snúðum og sælgæti.“
Fagnar þú 17. júní þó þú sért ekki á
landinu? „Íslenski hópurinn sem býr hér
í hverfinu er duglegur að hittast, hvort
sem það er á þorranum, í barnaafmælum,
um áramót og einmitt á 17. júní. Í ár
eigum við von á íslenskum vinum hingað
í bakgarðinn þar sem ætlunin er að grilla
íslenskar pylsur með SS-sinnepi, remúlaði
og steiktum lauk sem Bandaríkjamenn
hafa ekki enn uppgötvað að ráði.“
Íslenska vatnið best
Pattra Sriyanonge 23 ára
búsett í Gautaborg.
Hvers saknar þú helst frá Ís-
landi? „Mest sakna ég auðvitað
vina og vandamanna. En ég verð
líka að nefna íslensku sundlaug-
arnar, fáránlegt kannski því að
ég er voða lítil sundmanneskja.
Svona er þetta þegar maður
hefur ekki eitthvað til taks þá
saknar maður þess, þetta vantar
alveg hérna í Svíþjóð.“
Hvað er best við Ísland? „Ís-
lenska vatnið. Svona í alvörunni,
við búum í miðbæ Gautaborgar
og það er stundum ómögulegt
að fá kalt og gott kranavatn. Svo
elska ég líka hvað allt gengur
hratt fyrir sig á Íslandi. Þú getur
reddað nánast öllu með einu
símtali. Það er bara ekki séns á
því hérna, þetta fer sérstaklega
mikið í taugarnar á karlinum
mínum.“
Hver er uppáhalds íslenski
maturinn þinn? „Kjötsúpan er
alltaf góð, hamborgarhryggur,
svo dreymir mig um pylsu með
kartöflusalati á N1. Nánast alltaf
það fyrsta sem ég læt ofan í mig
þegar ég kem til Íslands.“
Fagnar þú 17. júní þó þú sért ekki
á landinu? „Ég get ekki sagt
það að ég fagni 17. júní hérna úti
en ég hugsa klárlega alltaf til
Íslands á þeim degi.“
„Þetta reddast“-
hugsunin best
Ívar Örn Sverrisson 34 ára
leikari býr í Osló með konu sinni
og tveimur börnum.
Hvers saknar þú mest frá Íslandi?
„Snæfellsnessins og að ferðast um
landið á sumrin, „sumó“ hjá ömmu í
Hvalfirði, fjölskyldunnar, sundlaug-
anna og góðvina sem ég hitti vonandi
sem fyrst aftur.“
Hvað er best við Ísland? „Afslapp-
aða og „kreatíva“ fólkið sem býr þar.
„Þetta reddast“-hugsunin.“
Hver er uppáhalds íslenski
maturinn þinn? „Íslenska lambið
hvernig sem það er eldað. Harðfiskur
með smjeri, Bæjarins bestu-pylsur og
skyr með fullt af rjóma og púðursykri.“
Fagnar þú 17. júní þó þú sért ekki á
landinu? „Að sjálfsögðu. Þarf bara
að útvega mér slatta af fánum svo ég
eigi eitthvað í norsku hefðina. Þá eru
hér fánar í milljónatali út um allt og
allir í „Bunad“. Hvet alla á Íslandi til að
vera í þjóðbúningi og klína fánanum
úti um allt. Það er mjög töff.“
Elskar íslenska kjötsúpu
Nína Björk Gunnarsdóttir 34 ára ljós-
myndari. Býr í Lúxemborg ásamt unn-
usta sínum og tveimur börnum.
Hvers saknar þú helst frá Íslandi? „Fjöl-
skyldu og vina.“
Hvað er best við Ísland? „Hreina tæra
loftið og vatnið sem er besti drykkur í heimi.“
Hver er uppáhalds íslenski maturinn
þinn? „Íslensk kjötsúpa. Love it!“
Fagnar þú 17. júní þó þú sért ekki á
landinu? „Nei, hef reyndar ekki gert það en aldrei að vita
nema ég fari að gera það núna og þá sérstaklega vegna
barnanna minna.“
„Íslenskar kýr afar fallegar“
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
leikkona býr ásamt eiginmanni
og fjórum börnum í Los Angeles.
Hvers saknar þú mest frá Íslandi?
„Pabba.“
Hvað er best við Ísland? „Vatnið, fjöllin,
hálendið og svo eru íslenskar kýr afar
fallegar.“
Hver er uppáhalds íslenski maturinn
þinn? „Soðin ný ýsa, íslenskur humar,
rjóminn, smjörið, reyktur Mývatnssilungur
og appelsín og malt.
Fagnar þú 17. júní þó þú sért ekki á
landinu? „Nei, það geri ég ekki. Stundum
förum við í 17. júní-partí og hittum aðra Ís-
lendinga sem búa á þessum slóðum en þau
eru nú vanalega alls ekki haldin 17. júní.“
34 17. júní