Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Síða 38
Íslendingar eru engum líkir og eiga alls kyns neyslutengd heimsmet. DV tók til gamans saman nokkur af þeim ótal heimsmetum sem Íslendingar hafa státað af. Sum þeirra bera vott um ágæti landsmanna en önnur og fleiri eru hálf vafasöm og ekki beinlínis til þess að monta sig af. Háir vextir og þjón- ustugjöld Jóhannes Gunnarsson, formaður neytenda- samtakanna, sagði í ræðu árið 2002 að ís- lensk fjármálafyrirtæki ættu heimsmet í háum raunvöxtum og þjón- ustugjöldum. „Fyrirtæki geta leitað til erlendra banka og fengið mun betri kjör en hérlendis,“ sagði hann. Ekki skal fullyrt að heimsmetið standi enn. Kaup á Bang & Olufsen-raf- tækjum Á árunum 2005 til 2008 voru það einungis Rúss- ar sem keyptu meira af slíkum tækjum. Þetta kom fram í máli Sigur- gísla Bjarnasonar, eins aðstandenda verslunar- innar, í viðtali við Við- skiptablaðið síðla árs í fyrra. Miðað við höfða- tölu voru Íslendingar hins vegar langefstir á heimslistanum yfir kaup á þessari lúxus- vöru. Stuðningur við land- búnað Stuðningur ríkisstjórna í OECD-ríkjunum við landbúnað nam alls um 27 prósentum af heild- artekjum landbúnaðar í heiminum á árunum 2004–2006. Á Íslandi og í Noregi er stuðningur- inn 66,2 prósent, eða sá mesti í heimi. Virðisauka- skattur Sigurður Kári Krist- jánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðis- flokksins, benti á að Ís- land hefði sett heims- met í virðisaukaskatti þegar hann var hækk- aður úr 24,5 prósentum í 25 prósent árið 2009. Cocoa Puffs Fram kom árið 2001 að Íslendingar ættu heims- met í Cocoa Puffs- áti. Hver íbúi lands- ins neytir að meðaltali tveggja pakka á ári sem samsvarar um 1.160 grömmum. Nokkur met til viðbótar Heimsmet Íslendinga Notkun Facebook Íslendingar eiga heimsmetið í notkun á Facebook. Hlutfallsleg notkun er hvergi meiri en á Íslandi en um 47 prósent landsmanna eru skráðir notendur, eða hátt í 155.000 manns. Danir koma næstir á eftir okkur með um 40 prósent hlutfall. Þetta kom fram árið 2009. Subway-át Við borðum flesta Subway-báta á mann á ári, samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjum. Ís- lendingar borða tvær milljónir báta á ári. Börn utan hjóna- bands Ísland á heimsmet- ið í hlutfalli þeirra barna sem fæðast utan hjónabands. Hér á landi fæðast 66 pró- sent barna utan hjóna- bands en næst okkur í röðinni koma Svíþjóð, þar sem 55 prósent barna fæðast utan hjónabands. Í Noregi er hlutfallið 54 prósent en annars staðar mun lægra. Í Japan er sama hlutfall aðeins 2 pró- sent. Veiðum mest af fiski Íslendingar eiga heimsmet í magni sjávarafla á hvern íbúa, samkvæmt upplýsingum af heimasíðu Orkustofnunar. Engan skyldi undra að eftir efnahags- hrunið haustið 2008 voru Íslendingar skuldugasta þjóð í heiminum, miðað við höfðatölu. Ef skuldum þjóðar- búsins yrði dreift á alla lands- menn skuldaði hver og einn þeirra 30 milljónir króna. Gylfi Magnússon sagði þetta, áður en hann varð ráðherra. Flestar holur Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri GR, reiknaði árið 2005 út að á Íslandi sé 231 golf- hola fyrir hverja 100 þúsund íbúa landsins. Það er heimsmet. Næst á eftir kemur svæði í Kanada með um 63 holur fyrir hverja 100 þúsund íbúa – samkvæmt úttekt hans. Notkun ADHD-lyfja Umræða um athyglisbrest og ofvirkni var mikil í mars á þessu ári. Í þeirri umræðu kom meðal annars fram að Íslendingar ættu heimsmet í notkun ADHD- lyfja og hafa Sam- einuðu þjóðirnar lýst yfir áhyggjum sínum af þessu við heilbrigðisyf- irvöld. Orkunotkun á mann Orkunotkun á hvern íbúa á Íslandi er með því mesta sem gerist í heiminum. Um 80 prósent orkunnar er inn- lend, endurnýjanleg orka. Hlutfall innlendrar orku mun aukast enn frekar á næstu árum með nýjum vatnsafls- og jarðhitavirkj- unum sem eru í byggingu að því er segir á Orkusetrinu. Heimsmet Heimsmet Heimsmet Heimsmet Heimsmet Skuldum manna mest Heimsmet Heimsmet 38 17. júní

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.