Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Síða 51
Ernestine Shepherd er elsti vaxtarræktarkeppandi heims:
74 ára í ótrúlegu formi
„Mér finnst ég vera yngri nú en ég
var fyrir tuttugu árum,“ segir vaxtar-
ræktardrottningin Ernestine Shep-
herd. Ef þú horfir vel á myndina hér
til hliðar og giskar á aldur Ernestine
kemur talan 74 væntanlega ekki fyrst
upp í kollinn. En staðreyndin er hins
vegar sú að Ernestine er 74 ára amma
sem fékk á dögunum viðurkenn-
ingu frá heimsmetabók Guinness
fyrir að vera elsti vaxtarræktarkepp-
andi heims. Hún keppir reglulega í
vaxtarrækt gegn konum sem eru um
helmingi yngri en hún. Og miðað við
vöðvamassa hennar ættu fjölmargir
karlar ekki roð í hana í lyftingarsaln-
um – hún tekur 80 kíló í bekkpressu.
Þar sem Ernestine er orðin jafn
gömul og raun ber vitni þarf hún að
leggja mikið á sig til að halda sér í
formi. Hún tekur daginn snemma,
vaknar klukkan þrjú á næturnar og
byrjar á því að hlaupa um fimmtán
kílómetra. Eftir það eyðir hún góðri
stund í lyftingasalnum þar sem hún
lyftir lóðum. Hún borðar mikið af
eggjum, kjúklingi og brúnum hrís-
grjónum og neitar því ekki að mikil
skuldbinding sé helsti lykillinn að
árangrinum.
Þótt ótrúlegt megi virðast eru
einungis tuttugu ár síðan Ernestine,
sem þá var komin á sextugsaldur,
byrjaði að æfa af fullum krafti. Hún
byrjaði hægt og jók álagið smám
saman. Þegar hún fór að sjá árang-
urinn af æfingunum ákvað hún að
verða elsta manneskja heims til að
keppa í vaxtarrækt – og draumurinn
er nú orðinn að veruleika.
Helgarblað 15.–19. júní 2011 Skrýtið 51
Leynd yfir fjölda leyniskjala er tengj-
ast Svæði 51, eða Area 51, hefur verið
aflétt. Í skjölunum kemur margt fróð-
legt fram um svæðið sem hefur verið
grunnurinn að fjölda samsæriskenn-
inga sem flestar snúa að því að leyni-
þjónusta Bandaríkjanna hafi geymt
geimskip þar. Sannleikurinn er þó
nokkuð athyglis-
verður en
á Svæði
51 geymdi
bandaríski herinn
tilraunaútgáfur af hernaðar-
tólum sínum.
Bandaríska leyniþjónustan CIA
bjó til Svæði 51 árið 1955 til að prófa
og þróa háleynileg vopn í Nevada-
eyðimörkinni. Rúmum 50 árum síð-
ar er stöðin enn ekki til í neinum
gögnum eða skjölum bandarískra
stjórnvalda. Í leyniskjölunum kemur
þó fram að svæðið hafi verið þar sem
OXCART-verkefni fór fram en þar
reyndu vísindamenn að hanna nýja
gerð njósnaflauga.
Sovétmenn fylgdust með
svæðinu
Þrátt fyrir að Svæði 51 væri leynilegt
og enginn utanaðkomandi fengi að-
gang að því þótti starfsmönnum CIA
ástæða til að leggja ýmislegt á sig til
að fela njósnaflaugina fyrir Sovét-
mönnum sem reyndu hvað þeir gátu
til að fá upplýsingar um verkefni
Bandaríkjahers. Í ljós kom að sovésk-
um njósnagervihnetti var reglulega
beint að Svæði 51. Bandarísku leyni-
þjónustunni tókst þó að halda OXC-
ART að mestu leyndu.
T.D. Barnes, fyrrverandi starfs-
maður á Svæði 51, sagði
í samtali við National Geog-
raphic að leyniþjónustunni hafi
tekist vel að fela svæðið fyrir Sovét-
mönnum. Barnes er ekki lengur
bundinn trúnaði um störf sín á svæð-
inu og gat því sagt frá upplifun sinni.
„Á morgunfundum okkar þar sem
við ræddum öryggismálin fengum
við lista yfir gervihnetti sem Sovét-
menn höfðu á lofti og við vissum ná-
kvæmlega hvenær þeim
yrði beint að okkur.“
Voru ávallt tilbúnir með
flugskýli
Njósnavélin sem OXCART snérist
um var meðal annars prófuð úti við.
Það skapaði stórt vandamál þar sem
flugvélin mátti aldrei sjást á gervin-
hattamyndum Sovétmanna. Barnes
segir að sérstök flugskýli hafi verið
sett upp sem auðvelt var að smeygja
flugvélinni undir svo að hún sæist
ekki á gervihnattamyndunum. „Ef
flugvél þurfti að vera úti við á með-
an gervihnöttur skannaði svæðið var
flugvélinni skutlað undir skýlið,“ út-
skýrði hann.
Annar fyrrverandi starfsmaður á
Svæði 51, Freedman, tók undir með
Barnes og sagði í samtali við Natio-
nal Geographic að þetta hefði gert
alla vinnu í kringum njósnavélina
mjög flókna.
„Að byrja á því
að vinna við flugvélina og þurfa
síðan að hlaupa með hana inn í skýl-
ið og síðan draga hana aftur út og
síðan hlaupa bara aftur með hana
inn og út – það verður erfitt til lengd-
ar,“ sagði Freedman.
Gerðu gerviflaugar
Þrátt fyrir að leggja mikið á sig við að
halda OXCART-verkefninu algjör-
lega leyndu komust njósnarar CIA
að því að Sovétmenn hefðu teikning-
ar af njósnavélinni í fórum sínum.
Töldu njósnararnir að teikningarnar
væru unnar út frá gervihnattamynd-
um sem teknar voru með innrauð-
um geislum. Þar sem sólin hitaði
jörðina í Nevada-eyðimörkinni á
Svæði 51 sást alltaf kald-
ur skuggi þar sem flug-
vélin hafði verið staðsett,
sama þótt hún væri undir
flugskýlinu. „Þetta var
eins og á bílastæði,“
útskýrði Barnes.
„Eftir að allir
bílarnir hafa
verið færðir er
enn hægt að sjá hversu margir bílar
voru á stæðinu vegna mismunandi
hitastigs í jörðinni.“
Eftir að þetta varð ljóst fóru starfs-
menn Svæðis 51 að smíða gerviflug-
vélar út frá eigin ímyndunarafli til að
koma í veg fyrir að Sovétmennirn-
ir gætu lesið eitthvað raunverulegt
í teikningarnar sínar. Þessar gervi-
flugvélar voru smíðaðar úr alls konar
hlutum, til að mynda pappakössum.
Allt var þetta gert til að aðrir skuggar
sæjust á myndum Sovétmanna en af
OXCART-njósnavélinni sjálfri.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
n Leyniskjöl um Svæði 51 hafa verið gerð opinber n Fyrrverandi starfsmenn af
svæðinu í viðtali við National Geographic n Gerðu allt til að blekkja Sovétmenn
Prófuð úti við Tilraunir voru gerð-
ar á njósnaflauginni undir berum
himni. Það skapaði ýmis vandamál
fyrir bandarísku leyniþjónustuna.
Engin geimskip Starfsmennirnir af Svæði 51 sem
National Geographic ræddi við segja njósnaflaugar hafi
verið þróaðar á svæðinu og að þar hafi engin geimskip verið.
Grjóthörð amma Ernestine kallar ekki
allt ömmu sína þegar kemur að líkamsrækt.
Hundurinn átti 230 milljónir:
Ríkasti hundur
heims dauður
Ríkasti hundur heims, Trouble,
er dauður. Hundurinn átti jafn-
virði um 230 milljóna íslenskra
króna en hann var þó arfleiddur
að tæplega 1,4 milljarða króna
auði húsbónda síns þegar hús-
bóndinn lést árið 2007. Það var
hóteleigandinn Leona Helms-
ley sem var húsbóndi þessa ríka
hunds en hún hafði auðgast vel á
hótelkeðjunni sinni. Enginn veit
hvað á að gera við fjárhæðirnar
sem Trouble átti því eðli máls-
ins samkvæmt hafði hann enga
erfðaskrá gert.
Dómari úrskurðaði, eftir að
Helmsley lést, að Trouble hefði
ekkert við hátt í 1,4 milljarða að
gera og lækkaði fjárhæðina í jafn-
virði um 230 milljóna króna. Pen-
ingarnir áttu að tryggja velferð
hundsins sem hafði verið besti
vinur Helmsley áður en hún dó.
Trouble var frá dauða Helmsley
í umsjá hótelstjórans á Helms-
ley Sandcastle Hotel í Sarasota í
Flórída í Bandaríkjunum.
Þó að nú fyrst berist fréttir af
dauða Trouble drapst hundur-
inn 13. desember síðastliðinn að
því er fram kemur í máli Eileen
Sullivan, talsmanns Helmsley-
góðgerðasjóðsins. „Hún var
brennd,“ sagði Sullivan í samtali
við erlenda fjölmiðla um málið.
Fjármunirnir sem voru í eigu
hundsins hafa verið færðir, í það
minnsta tímabundið, inn í góð-
gerðasjóðinn þar sem enginn veit
hvað á að gera við þá.
Helmsley vakti mikla athygli
þegar hún arfleiddi Trouble að
auðæfunum. Bandaríska fjár-
málatímaritið Forbes setti
ákvörðunina í þriðja sæti á lista
sínum yfir „101 heimskustu
augnablikin í viðskiptum“. Pen-
ingarnir áttu eins og áður segir að
nýtast í þann kostnað sem fylgdi
hundinum. Voru þá hótelstjóran-
um sem sá um Trouble greiddar
tæpar 1,2 milljónir króna á ári
fyrir að fylgjast með hundinum.
Bróðir Helmsley fékk jafnvirði
um 1,7 milljarða króna í arf en
hún valdi tvö af fjórum barna-
börnum sínum sem erfingja. Þau
tvö sem fengu arf eftir ömmu
sína fengu jafnvirði 1,2 millj-
arða króna í arð sem var talsvert
minna en hundurinn átti að fá.
Dómarinn sem ákvað að hundur-
inn fengi einungis 230 milljónir
ákvað að veita hinum barnabörn-
unum tveimur hluta þeirrar fjár-
hæðar sem hann svipti hundinn.
Þrátt fyrir að í erfðaskrá
Helmsley hafi skýrt komið fram
að hún vildi að hundurinn yrði
jarðaður við hlið sér var Trouble
brenndur. Ekki fékkst leyfi fyrir
því að jarða hundinn í kirkjugarði
sem ætlaður er mönnum.
adalsteinn@dv.is