Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Qupperneq 60

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Qupperneq 60
60 | Tækni Umsjón: Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is 15.–19. júní 2011 Helgarblað M iklar sviptingar hafa verið hjá stórfyrirtækjum innan tæknigeirans. Facebook hefur sogað til sín starfs­ menn frá öllum helstu tæknifyrir­ tækjum heims á meðan Microsoft, eitt stærsta hugbúnaðarfyrirtæki í heimi, virðist aðeins tapa starfs­ mönnum til samkeppnisaðilanna. Til að skoða nánar hvernig þró­ un síðustu ára hefur verið inn­ an tæknigeirans hefur bandaríska vefsíðan TopProspect tekið sam­ an lista yfir hvernig þróunin hefur verið. Twitter og Facebook hafa stækkað mest Til að fá sem nákvæmasta niður­ stöðu um hvaða fyrirtæki hefur stækkað mest með tilliti til þeirra starfsmanna sem þeir hafa náð frá samkeppnisaðilum sínum ákváðu starfsmenn TopProspect að reikna út hversu marga starfsmenn hvert fyrir­ tæki fékk á móti hverjum töpuðum. Samkvæmt þeim niðurstöðum kom í ljós að Twitter hefur náð til sín ríf­ lega 10 starfsmönnum á móti hverj­ um starfsmanni sem þeir hafa misst. Face book kemur næst í röðinni en fyrirtækið hefur ráðið rúmlega 8 starfsmenn á móti hverjum starfs­ manni sem þeir hafa misst. Facebook stækkar langmest Tæknifyrirtækin bjóða bestu og verð­ mætustu starfsmönnum sínum upp á margs konar samninga. Facebook virðist þó hafa eitt fram yfir hin fyrir­ tækin – að bjóða upp á eitthvað nýtt. Hraður vöxtur Facebook hefur verið ótrúlegur og hefur fyrirtækið náð fót­ festu á stórum mörkuðum á skömm­ um tíma. Þetta hefur heillað starfs­ menn tæknifyrirtækja sem sumir hverjir hafa fórnað betri launum og starfskjörum hjá Google og Micro­ soft til þess eins að taka þátt í Face­ book­verkefninu. Microsoft tapar flestum starfsmönnum Microsoft hefur að undanförnu misst rúmlega 30 starfsmenn á móti hverj­ um einum starfsmanni sem þeir hafa fengið frá Facebook. Að sama skapi hefur einn helsti keppinautur Face book á auglýsingamarkaðnum, Google, misst ríflega 15 starfsmenn á móti hverjum einum starfsmanni sem fyrirtækið hefur náð af Face­ book. Fyrirtækið er líka næstneðst þegar tölur um hversu marga starfs­ menn fyrirtækið hefur misst í heild á móti þeim starfsmönnum sem það hefur ráðið til sín. Sá samanburður leiðir í ljós að fyrirtækið hefur ein­ ungis náð til sín 0,3 starfsmönnum á móti hverjum einum sem það hefur misst. Yahoo og Microsoft Athyglisvert er að sjá í tölunum að bandaríska netfyrirtækið Yahoo er eina stóra tæknifyrirtækið sem miss­ ir fleiri starfsmenn yfir til Microsoft en það fær frá fyrirtækinu. Fyrirtækið hefur tapað tæplega 4 starfsmönnum fyrir hvern einn sem þeir hafa náð frá Microsoft. Bæði Microsoft og Yahoo eru þá einnig þau fyrirtæki sem misst hafa hvað flesta starfsmenn til sam­ keppnisfyrirtækja. Á þann lista kom­ ast einnig fyrirtækin eBay og Ama­ zon auk Google sem líkt og Microsoft er einnig á þeim lista sem náð hefur hvað flestum starfsmönnum af sam­ keppnisaðilum sínum. Kaupa birtingarhús fyrir tugmilljarða Google hefur keypt birtingarhúsið AdMeld fyrir 400 milljónir dala, sem er jafnvirði rúmlega 42 milljarða króna. AdMeld hefur sérhæft sig í auglýsingum á vefnum en það er helsta tekjulind Google, sem er eitt arðvæn- legasta tæknifyrirtæki heims. Fyrirtækið hefur verið starfandi frá árinu 2007 en það hefur safnað um 30 milljónum dala, jafnvirði um 3,5 milljarða króna, frá ýmsum fjárfestum í hlutafé. Forstjóri fyrirtækisins hefur góða reynslu úr auglýsingabransanum en hann sá um vefauglýsingar á MySpace allt þangað til Rupert Murdoch, eigandi MySpace, rak hann fyrir að ná ekki settu tekjumarki. Forstjóri Nintendo orðlaus Satoru Iwata, forstjóri Nintendo, segist hissa á viðbrögðum markaðarins við útkomu nýjustu leikjatölvu fyrirtækisins. Hlutabréf í Nintendo lækkuðu um nærri 10 prósentustig á fyrstu tveimur dögunum eftir að tilkynnt var um útgáfu tölvunnar sem á að vera næsta skref í Wii-línu fyrirtækisins. Í stað hefðbundins stýripinna eða fjarstýringar er tölvan búin eins konar spjaldtölvu. Sala á tölvunum hefst ekki fyrr en á næsta ári en miðað við viðbrögð fjárfesta er hún ekki líkleg til vinsælda. Facebook bætir útlitið Samfélagsvefurinn Facebook hefur fest kaup á hugbúnaðarhönnunarfyrir- tækinu Sofa. Fyrirtækið, sem staðsett er í Amsterdam í Hollandi, hefur verið starfrækt frá árinu 2006. Hefur fyrirtækið tekið þátt í að hanna merki og viðmót fyrir fjölda stórra hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Mozilla og Tom Tom. Það kemur því ekki á óvart að allir starfsmenn Sofa munu ganga til liðs við hönnunardeild Facebook. Það má því búast við því að Facebook fari að lappa upp á útlit síðu sinnar en viðmótsbreytingar á Facebook hafa lagst misvel í notendur síðunnar. BlackBerry PlayBook til Evrópu Stjórnendur BlackBerry PlayBook-spjaldtölv- unnar tilkynntu á föstudag að fyrirtækið ætli sér að hefja sölu á tölvunum í 16 löndum utan Norður-Ameríku á næstu mánuðum. Tölvan er talin vera líklegasta tölvan til að veita iPad-spjaldtölvunum frá Apple einhverja raunverulega samkeppni. Tækið hefur þó fengið misjafna dóma en það kom á markað í Bandaríkjunum og Kanada í apríl. PlayBook verður meðal annars seld í Frakklandi, Bret- landi og Þýskalandi á næstu mánuðum. Skype stefnt í Evrópu og Bandaríkjunum: Skype verst í tveimur heimsálfum Internetsímafyrirtækinu Skype hefur verið stefnt í Bandaríkjunum fyrir að meinta notkun á einkaleyfisbundinni hugbúnaðarlausn. Það er Via Vadis LLC, hugbúnaðarfyrirtæki í Lúxem­ borg, sem stefnt hefur Skype. Stefnan kemur fram aðeins einum mánuði eft­ ir að Microsoft lét í ljósi áhuga á því að fjárfesta í Skype fyrir 8,5 milljarða dala, sem er jafnvirði 981,6 milljarða króna. Fyrirtækið hefur einnig stefnt Skype í Evrópu, bæði í Þýskalandi og Lúxem­ borg, vegna sama máls. Dómstóll í Lúxemborg gaf út leitar­ heimild svo hægt væri að sækja gögn í höfuðstöðvar Skype í Lúxemborg. Skype hefur ekki viljað sýna neinum umrædda kóða, sem Via Vadis telur að séu hluti af einkaleyfisvarinni hug­ búnaðarlausn frá fyrirtækinu, og hefur áfrýjað úrskurðinum um leitarheim­ ildina. Stjórnendur Via Vadis vilja meina að Skype noti tvær mismun­ andi lausnir frá fyrirtækinu án leyfis. Stjórnendur Skype hafa ekkert viljað tjá sig um málið. Skype var brautryðjandi á sviði símaþjónustu í gegnum veraldar­ vefinn og högnuðust stofnendur og fyrstu fjárfestar í fyrirtækinu vel á fjárfestingunni. Fyrirtækið hefur vaxið mikið síðan það var stofnað en á sama tíma hafa samkeppnisað­ ilar skotið niður rótum. Fyrirtækið glímir því við sífellt fleiri samkeppn­ isaðila en Skype hefur að mestu náð að halda tryggri stöðu á markaðnum. Er áhugi Microsoft á fyrirtækinu gott dæmi um það. Via Vadis hefur farið fram á að Skype hætti undir eins að nota lausnir fyrirtækisins og hefur einnig farið fram á skaðabætur. Microsoft vill Skype Steve Ballmer, forstjóri Microsoft, og forstjóri Skype, Tony Bates, mánuði áður en Skype var stefnt. MYNd ReuTeRS Allir missa starfs- fólk til Facebook n Yahoo missir flest starfsfólk til samkeppnisaðila n Twitter og Face- book hafa stækkað mest n Allir missa starfsmenn yfir til Facebook Umferð starfsmannanna FACEBOOK GOOGLE YAHOO MICROSOFT LINKEDIN APPLE 15,5 á móti einum 30,5 á móti einum 11 á m óti einum 2 á m óti einum10 ,5 á m ót i e in um 3,6 á móti einum 7,6 á móti einum 43 á m óti einum 3,2 á m óti e inu m 1 á móti 1 1 á móti 1 22 á m óti ein um 4, 8 á m ót i e in um 5 á m ót i e in um 5,2 á m óti einum 1,3 á m óti einum Þessi mynd sýnir í hvaða hlutföllum starfsmenn flytjast á milli fyrirtækja. „ ...sumir hverjir hafa fórnað betri launum og starfskjörum hjá Google og Microsoft til þess eins að taka þátt í Facebook-verkefninu. Sogar til sín starfsfólk Mark Zuckerberg virðist hafa einstakt lag á að fá starfsfólk í vinnu til sín. MYNd RobeRT GAlbRAiTH / ReuTeRS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.