Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2011, Page 70
70 | Fólk 15.–19. júní 2011 Helgarblað
Davíð Guðbrandsson leikari er byrjaður á Séð og heyrt:
„Mig vantaði bara sumardjobb og
sótti um eftir að hafa séð auglýs-
ingu,“ segir Davíð Guðbrandsson
leikari. Hann er byrjaður að vinna
sem blaðamaður á Séð og heyrt þar
sem hann verður í sumar.
Davíð segir að það sé stund-
um þannig í leiklistinni að nokkur
tími geti liðið á milli verkefna. „Það
kemur stundum hálfgert örvænt-
ingartímabil á milli verkefna, þar
sem maður heldur að ferillinn sé
búinn þegar eitt verkefni klárast. En
svo kemur oftast eitthvað nýtt,“ seg-
ir hann spurður hvort leiklistin fái nú
að víkja.
Davíð hefur allt eins áhuga á því
að starfa í kringum fjölmiðla í náinni
framtíð. Hann segist vel getað hugs-
að sér að fást við dagskrárgerð í sjón-
varpi eða annað slíkt. „Ég hef verið
að pæla í að bæta við mig einhverri
menntun og var farinn að skoða fjöl-
miðlafræði og eitthvað þess háttar.
Ég veit ekki hvað ég geri en þetta er
alla vega ágætis leið til að prófa einn
anga þessa geira,“ segir hann.
Fyrsta verkefni Davíðs var að
skrifa dálk sem heitir „Móment“
en þar skrifa blaðamenn hugleið-
ingar um allt milli himins og jarðar.
„Ég hafði alveg frjálsar hendur. Það
var ekki gott að fá ekki skýrari leið-
beiningar en þær við fyrsta verk-
efnið, þannig að ég endaði á því að
skrifa einhverja bölvaða vitleysu um
mannanöfn,“ segir hann og hlær.
Hann segist kunna ágætlega við
starfið. „Við hérna í tímaritsdeild-
inni á Birtíngi erum öll undir sama
þaki og það er líf og fjör við skrif-
borðið. Hér vinnur skemmtilegt
fólk,“ segir hann. Aðspurður hvort
það muni ekki hjálpa honum í starf-
inu að þekkja marga leikara og ann-
að frægt fólk segir hann í léttum dúr:
„Það er fínt að hringja í félagana og
bögga þá aðeins. Ég ætla að vona að
ég eigi einhvers staðar einhverja vel-
vild inni og að ég standi ekki vinalaus
uppi eftir sumarið.“
baldur@dv.is
S
öngkonan Svala Björgvins-
dóttir trúlofaðist kærasta
sínum til margra ára, Ein-
ari Egilssyni, um síðustu
helgi. Þau búa saman í Los
Angeles þar sem þau vinna hörðum
höndum að því að koma hljóm-
sveit sinni Steed Lord á framfæri.
Lífið virðist leika við turtildúfurnar
í englaborginni þessa dagana því á
dögunum lönduðu þau samningi
við Fox-sjónvarpsstöðina um að
tónlist eftir Steed Lord yrði notuð
í þáttunum So You Think You Can
Dance.
Einar og Svala hafa verið saman
til fjölda ára. Fyrr á þessu ári sagði
Svala frá ástinni í viðtali við DV. „Ég
sá Einar fyrst á skemmtistaðnum
Tunglinu í desember 1993. Það var
ást við fyrstu sýn. Við byrjuðum
síðan saman 4. mars 1994 á stað
sem hét Ingólfscafe þar sem ég söng
í fyrsta skipti lagið Was That All It
Was með bandinu mínu Scope.
Við Einar hættum reyndar saman
nokkrum sinnum á menntaskóla-
aldrinum en gátum aldrei slitið
sambandinu alveg. Svo fórum við að
búa saman í janúar 2002 og höfum
búið saman síðan,“ sagði Svala, sem
er enn jafnástfangin og hún var þeg-
ar hún kynntist honum fyrst.
„Við erum sálufélagar og við
erum alltaf svo skotin hvort í öðru.
Við erum saman í hljómsveit og
við vinnum saman. Það er stund-
um erfitt og við rökræðum og ríf-
umst stundum um fáránlega hluti
en við förum aldrei ósátt að sofa.
Við ræktum sambandið með því
að skemmta okkur og hlæja og
hafa húmor fyrir lífinu. Ég er ekkert
mikið fyrir svona klisjulega róman-
tík þannig að mér finnast litlu hlut-
irnir skipta máli. Við lentum í bíl-
slysi saman og það að vita ekki hvort
maki manns lifi það af lætur mann
líta á lífið með öðrum augum. Mað-
ur er bara þakklátur fyrir hvern dag
sem við eigum saman,“ segir hún,
en eins og flestir vita þá lentu þau í
alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut-
inni árið 2009. Svala sagði einmitt
í þessu sama viðtali frá því hvernig
Einar bjargaði lífi hennar. „Það eina
sem bjargaði okkar lífi voru beltin.
Ég var nýbúin að spenna á mig belt-
ið þegar bíllinn kom á 100 km hraða
beint framan á okkur. Það var Einari
að þakka, hann suðaði í mér að fara
í belti aftur í. Sem betur fer gerði ég
það. Einar bjargaði lífi mínu,“ segir
hún og er virkilega ánægð með sinn
mann. „Það er svo dásamlegt að búa
með sálufélaga sínum og geta unnið
saman. Einar slasaðist lífshættulega
þegar við lentum í slysinu og hann
var í öndunarvél í fjóra daga. Við
vissum ekkert hvort hann myndi lifa
af aðgerðirnar. Þegar Einar vaknaði
þá var ég svo þakklát en við tók fjög-
urra mánaða spítalavist og aðgerðir.
Hann stóð sig svo vel, var svo mikil
hetja og alltaf svo jákvæður og sterk-
ur andlega. Ég fattaði þá hvað ég
væri heppin að eiga svo yndislegan
mann. Hann er 50 prósent öryrki í
dag en hann lætur ekkert stoppa sig
og það gerir mig svo stolta af hon-
um. Hann er algjör fyrirmynd.“
Að lokum var hún spurð út í
barneignir og sagði að vissulega
langaði þau til að fjölga í fjölskyld-
unni sinni með því að eignast barn
saman. „Við eigum kisubörn. Okkur
langar alveg til að eignast eitt stykki
alvörubarn. Það kemur bara þegar
það á að gerast.“
viktoria@dv.is
Sálufélagar
trúlofa sig
Svala og Einar í Steed Lord:
Ást við fyrstu sýn Einar og Svala hafa verið saman
í mörg ár og hafa nú sett upp hringa. mynD BraGi Þór Jósefsson
María Sigrún
og Travolta
Fréttakonan skeleggja María Sigrún
Hilmarsdóttir nýtur lífsins í Los Angeles um
þessar mundir. Á dögunum skoðaði hún
stjörnur fræga fólksins þar sem hún stillti
sér meðal annars upp við stjörnu leikarans
góðkunna Johns Travolta. Myndina lét hún
svo inn á Facebook-síðu sína þar sem vinir
fréttakonunnar veltu fyrir sér hvenær hún
fengi sína eigin stjörnu í stjörnuborginni.
DV1106104603 eða
DV1106107625
Fínt að bögga Félagana
Ánægður á séð og heyrt Davíð kann
vel við sig hjá Birtíngi. Fyrsta greinin hans
var „vitleysa um mannanöfn“ mynD rakel ósk
Anna Svava
bloggar um Tógó
Anna Svava Knútsdóttir og kvikmynda-
gerðarkonan Ásta Briem eru staddar í Tógó
og dvelja þar í sumar við sjálfboðastarf. Þær
halda úti bloggi þar sem þær lýsa reynslu
sinni á annasvavaogastaitogo.wordpress.
com. Anna Svava birti nýlega skemmti-
legar staðreyndir um muninn á verðlaginu í
Tógó og hér heima á Íslandi. Vatnið er til að
mynda frekar dýrt en 1,5 lítrar af vatni kosta
87 krónur og Anna Svava tekur fram að þær
stöllur drekki að minnsta kosti 2 lítra á dag.
Bananabúnt kostar 25 krónur – þetta eru
litlir bananar sem eru seldir út um allt. Að
fylla bensíntankinn kostar 5.000 krónur.
Laun kvennanna sem vinna á barnaheim-
ilinu sem Anna Svava vinnur á eru12.500
krónur og laun bankamanna í Tógó eru um
25.000 kr. á mánuði. Skólamatur barnanna í
hádeginu kostar aðeins 25 krónur.