Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Page 6
Vill að Davíð verði ávíttur n Guðni íhugar málsókn vegna greinar um forsetann É g hef aldrei séð jafn mikið orð- bragð og viðbjóð um forseta landsins sem ekki sæma manni úr þessari stétt,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, sem hefur tilkynnt guðfræðinginn Davíð Þór Jónsson til Biskupsstofu. Ástæð- an er grein hans um Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, sem birt- ist á bloggsíðu Davíðs daginn fyr- ir forsetakosningarnar 30. júní síð- astliðinn. „Maður sem gengið hefur í gegnum guðfræðideild og lært sið- fræði, og er falið það vandasama verk að vera í þjónustu fyrir börn og ung- linga. Þetta ber vott um að hann geti varla verið fær um það starf, nema hann hafi verið í einhverju annarlegu ástandi,“ segir Guðni. Greinin nefnist Að kjósa lygara og rógtungu, en í henni sagði Davíð Þór forseta Íslands hafa byggt kosn- ingabaráttu sína á ósannindum og níðrógi. Davíð starfar sem fræðslu- fulltrúi Austurlandsprófastsdæm- is en Guðni segir hann hafa ráðist að sér og vænt sig um að hafa verið í nasistaflokki. „Ég hef áður orðið fyr- ir þessari árás og vann það mál fyr- ir dómstóli, enda er enginn maður jafn fjarri nasistanum og ég og Ís- lendingar yfir höfuð,“ segir Guðni sem ræddi þetta við biskup Íslands. „Ég sagði biskupi að það væri erfitt á þessum tímum þegar kirkjan væri að endurskipuleggja sig að sitja uppi með svona þjón. Ég gerði kröfu til þess, sem kristinn maður og þjóð- kirkjumaður, að þessi maður myndi gjalda fyrir svona skrif um forseta Ís- lands og ráðast svona að æru minni. Auðvitað íhuga ég að fara með þetta mál fyrir dómstóla,“ segir Guðni. „Ég tel hárrétt að ávíta þennan mann og að biskup og kirkja skoði gang sinn að vera með svona þjón sem kemur svona fram við almenna borgara og forseta landsins.“ 6 Fréttir 6.–8. júlí 2012 Helgarblað Klagar Davíð Guðni Ágústsson, fyrr­ verandi ráðherra, hefur tilkynnt Davíð Þór Jónsson til Biskupsstofu. Þ að hefur margsinnis kom- ið fram og stendur skýrum stöfum í samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna að endan- lega ákvörðun um aðild Ís- lands að ESB mun íslenska þjóðin taka í sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis- ráðherra og formaður Samfylkingar- innar, í samtali við DV. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í við- tali sem birtist í mánudagsblaði DV að samkvæmt „plani stjórnvalda“ stæði til að hafa þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðild Íslands að ESB ráðgefandi en ekki bindandi. Algerlega rangt Jóhanna segir hins vegar að þessi full- yrðing Ólafs Ragnars sé alröng. DV leitaði viðbragða hjá Jóhönnu vegna þessara ummæla Ólafs og sendi Jó- hanna DV svar í tölvupósti. Þar seg- ir meðal annars: „Þegar endanlegur samningur liggur fyrir verður hann lagður fyrir þjóðina til samþykkt- ar eða synjunar og mun niðurstaða þeirrar atkvæðagreiðslu verða bind- andi um framhaldið. Hvort sem Al- þingi mun formlega ganga frá mál- inu eins og núverandi stjórnarskrá gerir ráð fyrir eða hvort hægt verð- ur að hafa þjóðaratkvæðagreiðsl- una formlega bindandi til dæmis í samræmi við fyrirliggjandi tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá, breytir engu um það að farið verður að vilja þjóðarinnar. Annað kemur einfaldlega ekki til greina.“ Í samræmi við samstarfsyfirlýsingu Þessi yfirlýsing er í samræmi við texta samstarfsyfirlýsingar stjórn- arflokkanna, Samfylkingarinnar og Vinstri grænna, en þar segir meðal annars: „Ákvörðun um aðild Íslands að Evrópusambandinu verði í hönd- um íslensku þjóðarinnar sem mun greiða atkvæði um samning í þjóðar- atkvæðagreiðslu að loknum aðildar- viðræðum. Utanríkisráðherra mun leggja fram á Alþingi tillögu um að- ildarumsókn að Evrópusambandinu á vorþingi.“ Óþörf aðkoma Ólafur Ragnar Grímsson lýsti því ít- rekað yfir í kosningabaráttunni að hann myndi tryggja að þjóðin fengi í sínar hendur úrslitavald um inngöngu Íslands í ESB. Samkvæmt þessari yf- irlýsingu Jóhönnu er aðkoma hans óþörf. Þóra Arnórsdóttir, helsti keppi- nautur Ólafs Ragnars um forseta- stólinn, hafði einnig lýst þeirri skoðun sinni að forsetinn þyrfti ekki að beita sér með þessum hætti í málinu. Beitir áhrifavaldinu Ólafur Ragnar Grímsson, sem er yfir- lýstur andstæðingur ESB-aðildar, tók einnig fram í viðtali við DV að hann hygðist miðla rökum gegn inngöngu í ESB til þjóðarinnar. Hann lýsti með- al annars fyrir blaðamanni hversu illa helstu ráðamenn Norðurland- anna hefðu talað um evruna. Slíkum sögum og fleirum væri hægt að koma til vitundar þjóðarinnar í krafti þeirr- ar athygli sem forsetinn fær. Aðkoma Ólafs Ragnars óþörf n Jóhanna segir fullyrðingu Ólafs um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu ranga Baldur Eiríksson blaðamaður skrifar baldure@dv.is Ráðgefandi Ólafur sagði í viðtali við DV að „plan stjórnvalda“ væri að hafa þjóðar at­ kvæðagreiðsluna ráðgefandi – ekki bindandi. Alltaf legið fyrir Jóhanna segir að aldrei hafi annað staðið til en að endanleg ákvörðun um aðild Íslands að ESB yrði í höndum íslensku þjóðarinnar. MynD ReuteRs slys við skattstofu suðurlands: Rann í hálku og fær bætur Íslenska ríkið er skaðabótaskylt vegna slyss sem kona lenti í fyr- ir utan Skattstofu Suðurlands í janúar 2009. Konan féll í hálku í tröppum við starfsmannainngang skattstofunnar og lenti illa. Í slys- inu hlaut konan samfallsbrot á hrygg og lá á sjúkrahúsi í þrettán daga af þeim sökum. Læknir mat örorku konunnar átján prósent eftir slysið. Þar sem fasteignin sem Skatt- stofa Suðurlands er staðsett í er eign Ríkissjóðs Íslands fór kon- an í mál við íslenska ríkið til að fá bótakröfu viðurkennda. Rök kon- unnar voru meðal annars þau að umræddar tröppur, þar sem hún rann, væru varasamar og ekkert handrið væri við þær. Þá væri ekki á það bætandi að engin hitalögn væri undir þeim. Lögmaður ís- lenska ríkisins krafðist sýknunar á þeim forsendum að um „óhappa- tilviljun“ hefði verið að ræða. Hér- aðsdómur Reykjavíkur féllst hins vegar ekki á þau rök og viður- kenndi skaðabótaskyldu íslenska ríkisins. Ákvörðun um bótafjár- hæð var ekki tekin í málinu. Skemmdar­ vargar á Akranesi Leikvöllur á Akranesi er nánast ónýtur eftir skemmdarvarga sem hafa brotið niður rólur og brennt net í fótboltamörkum. „Það er öm- urlegt að horfa upp á þetta,“ segir íbúi á svæðinu í samtali við hér- aðsfréttamiðilinn Skessuhorn sem hefur einnig greint frá skemmdar- verkum við Byggðasafnið í Görð- um. Þá hafa salernishús og gamli vitinn á Suðurflös orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum. Hafa þessi skemmdarverk verið kærð til lögreglu að sögn Tómasar Guðmundssonar, verkefnastjóra hjá Akranesstofu, en hann biður íbúa um að vera á varðbergi. 

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.