Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Side 18
Brasilíufanginn sem
fékk 10 í Bókfærslu
18 Fréttir 6.–8. júlí 2012 Helgarblað
S
verrir Þór Gunnarsson,
einnig þekktur sem Sveddi
tönn, var handtekinn
síðastliðinn mánudag af
brasilísku lögreglunni í
Rio de Janeiro. Sverrir er grun-
aður um að hafa skipulagt smygl
á 46 þúsund e-töflum til Bras-
ilíu frá Lissabon í Portúgal. Sverr-
ir var einn af höfuðpaurunum í
stóra fíkniefnamálinu svokall-
aða sem upp kom árið 1999 en þá
hlaut hann sjö og hálfs árs fang-
elsisdóm. Hann er sagður hafa
verið afar umsvifamikill í glæpa-
heiminum síðan hann losnaði af
Litla-Hrauni og hefur búið bæði í
Brasilíu og á Spáni auk þess sem
spurst hefur til hans í Amsterdam.
Íslenska lögreglan hefur ítrekað
reynt að hafa uppi á Sverri án ár-
angurs í tengslum við ýmis mál
hérlendis auk þess sem hans hefur
verið leitað af lögreglunni á Spáni
og Interpol.
Handtekinn á kaffihúsi
Sverrir var handtekinn á kaffihús-
inu Ipanema í Rio de Janeiro þegar
fíkniefnin höfðu verið gerð upptæk
seinnipart mánudags en þau voru
í farangri Renötu Araujo Neves,
26 ára konu frá Brasilíu. Renata
flaug til Rio de Janeiro frá Lissa-
bon í Portúgal og fundust efnin
við hefðbundið tollaeftirlit. Í far-
angri hennar voru um 46 þúsund
e-töflur og benti hún lögreglu á
tvo vitorðsmenn, Sverri og kærasta
sinn, Marco Dias Bittencourt e
Silva. Sagði hún að þeir ætluðu
að hjálpa henni við að selja eit-
urlyfin og hugðist hún hitta menn-
ina tvo á áðurnefndu kaffihúsi.
Að svo komnu máli framkvæmdi
lögreglan húsleit í íbúð Marcos
og fann þar nokkuð magn af sýru
ásamt marijúana. Sverrir hafði
komið með sama flugi og Renata
en lögreglan beitti sérstakri grein-
ingaraðferð sem sýnir hversu oft
hver farþegi flýgur og hvert. Þetta
er gert til þess að koma auga á
grunsamlegt ferðamynstur sem
getur gefið til kynna smygl. Sverrir
Þór gaf upp falskt nafn við komuna
til Rio de Janeiro og þóttist vera 43
ára Breiðhyltingur sem ekki verður
nafngreindur hér. Sá sagði í sam-
tali við blaðamann DV að hann
hefði ekki þekkt Sverri síðan í
gamla daga. Þegar nafnið var sent
íslenskum yfirvöldum komust þau
fljótlega að því að sá maður var alls
ekki í haldi lögreglu þar ytra. Það
var ekki fyrr en brasilískir fjölmiðl-
ar birtu myndir af hinum grunuðu
að borin voru kennsl á Sverri.
Burðardýr í Brasilíu
Íslendingar hafa áður verið teknir
höndum fyrir eiturlyfjasmygl í
Brasilíu. Árið 2006 var Hlynur
Smári Sigurðarson, þá 23 ára gam-
all, gripinn í Brasilíu með kókaín
í farteskinu og það sama var uppi
á teningnum árið 2007 þegar Karl
M. Grönvold var dæmdur til tæp-
lega fjögurra ára fangelsisvistar
í Sao Paulo. Karl hafði nokkrum
sinnum farið sams konar leiðangra
en þessi för til Brasilíu átti að vera
sú síðasta í hlutverki burðardýrs.
Svipað mál kom upp árið 2009
þegar Ragnar Erling Hermanns-
son, sem þá var 25 ára, var hand-
tekinn á flugvelli í borginni Reci-
fe í Brasilíu með tæplega sex kíló
af hreinu kókaíni. Athygli vekur
að á þeim tíma var Sverrir Þór bú-
settur í Recife. Árið 2010 kom upp
stórt smyglmál hérlendis þar sem
einn sakborninga viðurkenndi að
hafa verið í samskiptum við Sverri
Þór, sem þá var búsettur á Spáni,
og millifært á hann þrjár milljón-
ir króna. Þyngsta dóminn í málinu
hlaut Davíð Garðarsson, dæmdur
nauðgari, sem hafði verið á flótta
undan réttvísinni um nokkurt
skeið og meðal annars dvalist hjá
Sverri Þór í Brasilíu.
Stóra fíkniefnamálið
Árið 2000 féll dómur í stóra fíkni-
efnamálinu og markaði hann
ákveðin tímamót í íslenskri réttar-
n Sverrir Þór grunaður um aðild að fíkniefnasmygli í Brasilíu n Leiddist snemma út af beinu brautinni
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is
Nærmynd
Nokkrir Íslendingar hafa afplánað fangelsisdóm
í Brasilíu vegna fíkniefnasmygls og eru frásagnir
þeirra allar á sama veg: Aðstæður í brasilísk-
um fangelsum eru vægast sagt ömurlegar og
samkvæmt úttekt Amnesty International eru
mannréttindi þverbrotin í brasilískum fangelsum.
Hlynur Smári Sigurðarson var árið 2006 dæmdur
til þriggja ára fangelsisvistar í Brasilíu er kókaín
fannst í fórum hans. Það var lán í óláni fyrir Hlyn að
reynt hafði verið að svindla á honum og var það virt
til refsilækkunar að efnið reyndist að mestu vera
barnapúður. Á þeim tíma greindi Hlynur Fréttablað-
inu frá ómannúðlegum aðstæðum í fangelsinu. Þá
lýsti hann því hvernig samfangi hans hefði reynt að
drepa hann fyrir sígarettu og sagðist ganga með
tálgaðan tannbursta á sér ef ske kynni að einhver
réðist á hann á ný. Hlynur deildi þar tveggja manna
klefa með tíu öðrum föngum og fékk ekkert nema
myglað brauð og ormafullt vatn sér til næringar.
Jafnframt var Hlynur þess fullviss að lyfjum sem
halda niðri kynhvötinni væri blandað út í kaffi og
mat fanganna svo þeir nauðguðu ekki hver öðrum.
Karl M. Grönvold var staðinn að tilraun til
fíkniefnasmygls er sex kíló af kókaíni fundust
í fórum hans á flugvelli í Sao Paulo í Brasilíu og
hlaut hann tæplega fjögurra ára fangelsisdóm.
Karl er sagður hafa verið fyrirmyndarunglingur og
stundaði íþróttir af kappi. Skömmu áður en Karl
var handtekinn í Brasilíu varð hann annar í kjöri
um leikmann ársins í 1. deild karla í handbolta.
Saga hans er sögð í bók Jóhannesar Kr. Kristjáns-
sonar, Brasilíufanganum. Í bókinni koma fram
ótrúlegar lýsingar á lífinu innan fangelsismúranna
í Sao Paulo. Þar er nær ekkert hugað að hreinlæti,
læknis hjálp er lítil sem engin og ósjaldan sýður upp
úr á milli fanganna sem troðið er inn í fangelsin.
Einnig lýsir Karl þeim umfangsmiklu fíkniefna-
viðskiptum sem fram fara í fangelsunum, harðri
neyslu fanganna og ofbeldi. Enginn framsalssamn-
ingur er á milli Íslands og Brasilíu. Því verður að
öllum líkindum réttað yfir Sverri þar í landi. Ljóst
er að verði Sverrir fundinn sekur mun hann taka út
refsingu sína við einhvern ömurlegasta aðbúnað
sem fyrirfinnst í fangelsum heimsins.
Skelfilegar aðstæður
í fangelsum Brasilíu
n Enginn framsalssamningur milli Íslands og Brasilíu
sögu. Aldrei hafði verið dæmt í
svo viðamiklu og þaulskipulögðu
fíkniefnamáli hérlendis og aldrei
höfðu fallið jafnþungir dómar.
Sverrir Þór hlaut næstþyngsta
dóminn í málinu eða sjö og hálfs
árs óskilorðsbundið fangelsi. Auk
þess voru rúmlega 20 milljónir
króna gerðar upptækar hjá Sverri.
Honum var gefið að sök að hafa
móttekið 105 kíló af kannabisefn-
um yfir nokkurra mánaða tímabil.
Stóra fíkniefnamálið teygði anga
sína til Danmerkur, Hollands og
Bandaríkjanna og varðaði inn-
flutning á gífurlegu magni kanna-
bisefna, amfetamíns, kókaíns og
e-taflna. Að auki voru gerðar upp-
tækar haglabyssur, handjárn, loft-
rifflar og raflostbyssur. Í kjölfar
málsins var einnig dæmt í fyrsta
skipti fyrir peningaþvætti fyrir ís-
lenskum dómstólum en Sverr-
ir skipulagði það í gegnum kjöt-
vinnslufyrirtækið Rimax. Í þætti
Sannra íslenskra sakamála um
stóra fíkniefnamálið kemur fram
að Sverrir Þór hafi lifað mjög hátt.
Þar er hann sagður hafa átt miklar
eignir, góða bíla og ganga í mjög
dýrum fatnaði.
Kynlífsþrælar í Ármúlanum
Þó Sverrir hafi verið búsettur er-
lendis frá því hann lauk afplánun
vegna dóms í stóra fíkniefnamál-
inu hefur hann haldið tengslum
við Ísland og ætíð haft mörg járn í
eldinum. Hann hefur til að mynda
átt fasteignir víða, meðal annars
hús í Ármúlanum í Reykjavík en
lögreglan gómaði hóp af vændis-
konum sem höfðust þar við árið
2006. Vændiskonurnar reyndust
allar frá Brasilíu. Brasilísku stúlk-
urnar voru kynlífsþrælar og var
þeim ekið milli manna sem til-
búnir voru að greiða fyrir afnot af
líkama þeirra að því er fram kom
í umfjöllun DV frá 2006. Aldrei
var þó ákært í vændismáli tengdu
húsnæðinu. Einnig fundust fíkni-
efni á staðnum og íslenskt par sem
hélt þar til var sakfellt fyrir fíkni-
efnainnflutning frá Spáni. Karl-
maðurinn var vinur Sverris og
hafði leyfi hans til að nota hús-
ið. Félagar Sverris úr stóra fíkni-
efnamálinu héldu sumir upptekn-
um hætti eftir að fangelsisvistinni
lauk. Nokkrir þeirra voru hand-
teknir aftur og dæmdir fyrir kóka-
ínsmygl. Í einu smyglmáli kom
fram að smyglarinn hefði millifært
tugi milljóna króna til félags í eigu
Sverris Þórs í Panama. Smyglarinn
sagði í héraðsdómi að greiðslan
hefði verið vegna byggingafram-
kvæmda í Brasilíu.
Snemma beygist krókurinn
Sverrir Þór Gunnarsson er fæddur
árið 1972 og leiddist snemma út
af beinu brautinni. Hann var að-
eins 16 ára þegar hann var fyrst
„Þessi
gaur er
vingjarnlegur
og góður í að
tala fólk til