Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Qupperneq 19
tekur svona syrpur, græðir eitt-
hvað, klúðrar einhverju, græðir,
klúðrar – þetta er svona upp og
niður. Stundum hefur hann ekki
átt fyrir mat.“
Greiðir ekki meðlag
Sverri var stefnt fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur í tengslum við barns-
faðernismál árið 2010. Hann er
talinn vera faðir ungrar stúlku sem
fæddist árið 2006, en móðir stúl-
kunnar hafði ítrekað reynt að ná
sambandi við Sverri án árangurs.
Hún fór fram á að Sverrir greiddi
henni meðlag, en hann hafði ít-
rekað hundsað beiðni sýslumanns
um að koma á hans fund.
Vandræði í Brasilíu
Margt bendir til að Sverrir eigi sér
hatursmenn og sé misvel liðinn í
undirheimum hér landi. Það gæti
verið ein af ástæðum þess hve lítið
hann hefur haldið sig á Íslandi.
Samkvæmt heimildum blaðsins
mun þó Sverrir einnig hafa lent í
vandræðum í Brasilíu: „Á tímabili
var hann kominn í vesen þarna úti,
skuldaði hér og þar og gat ekkert
verið í Brasilíu.“ Sverrir hefur búið
víðar en í Brasilíu, meðal annars
á Spáni, í Hollandi og Danmörku.
„Sverrir er enginn aumingi, hann
er bara á millistiginu og hefur ef-
laust haft það bara ágætt síðustu
árin,“ er haft eftir viðmæland-
anum. „En hann er náttúrulega
búinn að étast alveg upp.“
„Góður í að tala fólk til“
Ef marka má frásögn þeirra sem
þekkja til Sverris er hann að jafn-
aði yfirvegaður í hátterni en æsist
þegar að honum er vegið. Hann
er þó sagður kurteis og koma vel
fram við fólk meðan hann er lát-
inn í friði. Þá þykir Sverrir nokkuð
mælskur: „Þessi gaur er vingjarn-
legur og góður í að tala fólk til.
Hann er þannig séð ósköp venju-
legur gaur,“ sagði einn af heim-
ildarmönnum blaðsins og bætti
því við að Sverrir væri vel gefinn.
Fréttir DV frá 2003 um námsár-
angur Sverris á Litla-Hrauni styðja
þessi ummæli, en á Litla-Hrauni
var hann vinsæll meðal kennara
og þótti afar samviskusamur. Við-
mælendur DV virðast almennt
sammála um að Sverrir sé tiltölu-
lega varkár og þannig hafi honum
tekist að forðast laganna verði um
nokkurt skeið. n
Fíkniefnasmygl frá Brasilíu
Mikið fíkniefnasmygl hefur
átt sér stað milli Brasilíu og
Evrópulanda síðustu ár. Fram-
boð kókaíns í Brasilíu er gríðar-
legt og verðið á því lágt. Hins
vegar er auðveldara að nálgast
hass í Evrópu. Fíkniefna-
höndlarar hafa nýtt sér þennan
verðmun með því að flytja hass
frá Evrópu til Brasilíu, skipta
því út fyrir kókaín og selja
kókaínið á uppsprengdu verið í
Evrópu. Kókaín er með dýrustu
fíkniefnum á Vesturlöndum.
Brasilíufanginn sem
fékk 10 í Bókfærslu
Fréttir 19Helgarblað 6.–8. júlí 2012
n Sverrir Þór grunaður um aðild að fíkniefnasmygli í Brasilíu n Leiddist snemma út af beinu brautinni
leiddur fyrir dómara og næstu árin
á eftir hafði lögregla ítrekað af-
skipti af honum vegna umferðar-
og fíkniefnabrota. Smám saman
urðu afbrot Sverris skipulagðari
og stórtækari og á árunum 1991–
1995 hlaut hann fjóra dóma fyrir
þjófnað, fjársvik og fíkniefna-
brot. Í undirheimum Reykjavík-
ur var Sverrir ævinlega þekktur
undir viðurnefninu Sveddi tönn
vegna tannlýtis. Blaðamaður DV
hafði samband við félaga Sverr-
is af Litla-Hrauni sem þekkir vel
til undirheima. „Hann var upp á
sitt besta fyrir árið 2000, en sá tími
mun ekki koma aftur. Þá var hann
áberandi í fíkniefnaheiminum á
Íslandi.“
Verðir með vélbyssur
„Á tímabili átti hann rosalega villu
í Brasilíu og þarna voru verðir með
vélbyssur og sundlaug og allt. Al-
gjört glæsihýsi,“ segir viðmælandi
DV sem sat um tíma í fangelsi með
Sverri Þór Gunnarssyni. Nokkrir
af félögum Sverris eru sagðir hafa
heimsótt hann til Brasilíu á síð-
ustu árum og dvalið þar í góðu yf-
irlæti. Aðspurður hvort Sverrir lifi
hátt segir heimildamaður DV að
það sé allur gangur á því: „Hann
Lærdómshesturinn
Sveddi tönn
Þegar Sverrir Þór sat á
Litla-Hrauni þótti hann
agaður og stundaði nám af
kappi við Fjölbrautaskól-
ann á Suðurlandi. Sverrir
þótti samviskusamur
námsmaður og sló í gegn
meðal kennara. Fjallað
var um námsárangur hans
í DV árið 2003, en um það
leyti var hann fluttur frá
Litla-Hrauni í fangelsið á
Akureyri. Sverrir fékk háar
einkunnir: 10 í bókfærslu,
10 í verslunarrétti, 9 í
stærðfræði og 8 í íslensku.
Ingi Ingason, þá kennslu-
stjóri á Litla-Hrauni, sagði
í viðtali: „Ég get alveg staðfest það að hann hefur staðið sig ákaflega
vel. Hann er mjög samviskusamur alla jafnan.“ Fram kemur í umfjöllun DV að
Sverrir Þór hafi einnig hlotið lífsleiknikennslu.
Ekki fyrir-
myndin
að Brúnó
Sögusagnir hafa gengið um að
persónan Brúnó í bókinni Svartur
á leik, og samnefndri kvikmynd,
sé að einhverju leyti byggð
á Sverri Þór. Þeir kunningjar
Sverris sem DV leitaði til hlógu
að þessu og sögðu að Sverrir
væri ekki ofbeldishneigður líkt
og persóna myndarinnar. Einn
þeirra benti á að menn í hans
ástandi væru ekki færir um mikið
ofbeldi. Þótt söguþráður Svartur
á leik byggi að hluta á stóra
fíkniefnamálinu segir Óskar Þór
Axelsson, leikstjóri myndarinnar,
að Sverrir sé ekki fyrirmyndin að
Brúnó. „Karakterinn byggir bara
á ýmsum, þetta eru allt svona
blöndur,“ segir Óskar.
„Á tímabili átti
hann rosalega villu
í Brasilíu og þarna voru
verðir með vélbyssur og
sundlaug og allt. Algjört
glæsihýsi.
Handtekinn Sverrir Þór
var handtekinn fyrir fíkni-
efnasmygl í Brasilíu síðast-
liðinn mánudag. Hann á
að baki nokkurn sakaferil
hér á landi en hefur búið
erlendis síðustu ár.