Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Side 27
Erlent 27Helgarblað 6.–8. júlí 2012
Afrísk drAugAborg
U
m 30 kílómetrum fyrir utan
borgina Lúanda, höfuð borg
Angóla í Afríku, er íbúða
hverfið Nova Cidade de
Kilamba. Þar er að finna 750
íbúða blokkir, nokkrar skóla byggingar,
þjónustu stofnanir og versl anir. Sá
galli er hins vegar á gjöf Njarðar að
nánast allar þessar byggingar standa
tómar – örfáar hræður búa í þeim. Að
eins eru tvö ár síðan framkvæmdum
á svæðinu lauk en það var kínverskur
fjárfestingarsjóður sem sá um að reisa
hverfið og tók framkvæmdin einung
is þrjú ár. Áætlanir gerðu ráð fyrir að
allt að 500 þúsund manns gætu búið
í hverfinu þegar framkvæmdum lyki.
Louise Redvers, fréttamaður breska
ríkisútvarpsins BBC, heimsótti drauga
hverfið fyrir skemmstu.
Ekki efni á að kaupa
„Ég kann mjög vel við þennan stað –
hér eru bílastæði og hér getum við spil
að fótbolta, körfubolta og hand bolta,“
segir hinn sautján ára Sebastiao Ant
onio sem stundar nám í skóla í hverf
inu. Skólinn var opnaður fyrir sex
mánuðum og í honum eru nemendur
sem nær allir búa í höfuðborginni, Lú
anda. Antonio ferðast í þrjár klukku
stundir á degi hverjum til að komast
í skólann og aftur heim að skóladegi
loknum. „Það er mjög rólegt hérna,
mun rólegra en í höfuðborginni. Hér
eru engir glæpir,“ segir Antonio en
þegar hann er spurður hvort hann
teldi að fjölskylda hans myndi einn
daginn flytja í hverfið stendur ekki á
svörum: „Það er ekki möguleiki, við
höfum ekki efni á að kaupa okkur íbúð
hérna. Og auk þess er enga vinnu að fá
fyrir foreldra mína.“
Jack Franiciso, 32 ára, tekur und
ir orð Antonios en hann fékk vinnu
sem götusópari í hverfinu fyrir fjór
um mánuðum. „Þú þarft að eiga mik
ið af peningum til að geta búið hérna.
Fólk eins og ég hefur ekki efni á því.“
Kostaði 440 milljarða
Fyrstu íbúðirnar í Kilamba fóru í sölu
fyrir rúmu ári. Af þeim 2.800 íbúð
um sem fóru á sölu hafa einungis
220 selst. Í umfjöllum Redvers kemur
fram að hún efist um að búið sé í öll
um íbúðunum sem seldar hafa verið
– fáir séu á ferli fyrir utan nokkra kín
verska verkamenn sem vinna við frá
gang í hverfinu. Þá séu engar verslan
ir sem selja nauðsynjavörur opnar.
Það var fjárfestingarsjóður í eigu
kínverska ríkisins, CITIC, sem byggði
hverfið og samkvæmt umfjöllun BBC
nam kostnaðurinn 3,5 milljörðum
dala, eða 440 milljörðum króna á nú
verandi gengi.
Erfitt að fá lán
Á netsíðu fjárfestingarsjóðsins, þar
sem íbúðirnar eru auglýstar til sölu,
má sjá að þær kosta á bilinu 120 til
200 þúsund dali, eða 15 til 25 milljón
ir króna. Það er mikill peningur fyrir
marga íbúa Angóla, en samkvæmt
umfjöllun BBC lifa tveir þriðju hlut
ar íbúa á undir tveimur dölum á dag,
eða 250 krónum. Á myndböndum,
þar sem íbúðirnar eru kynntar, má
sjá skælbrosandi fjölskyldur tjá sig
um hversu frábært sé að búa í hverf
inu. Þessar fjölskyldur búa þó ekki í
hverfinu því um leikara er að ræða.
Paulo Cascao, framkvæmda
stjóri Delta Imobilaria, fasteigna
sölu sem sér um sölu íbúðanna,
segir að verðið á íbúðunum sé ekki
of hátt – ekki ef litið er til gæða
þeirra. „Það gengur hægt að selja
þær vegna þess að fólk á erfitt með
að fá lán.“
Borgað með olíu
Yfirvöld í Angóla greiddu fyrir fram
kvæmdina með olíu sem þýðir að
í raun er búið að fjármagna fram
kvæmdina. Ef ekki tekst að selja
íbúðirnar munu yfirvöld í Angóla
hins vegar sitja uppi með gagnslausa
fjárfestingu og mikið tap. Manuel
Clemente Jùnior, iðnaðarráðherra
Angóla, segist þess fullviss að íbúð
irnar muni seljast og lýsir fram
kvæmdinni sem „algjörri snilld.“
Margir hafa gagnrýnt staðsetningu
hverfisins og sagt að það sé of langt
frá Lúanda. „Það eru alltaf einhverjir
sem eru reiðubúnir að gagnrýna en
við erum með góða vegi og það tek
ur einungis um 15 til 20 mínútur að
ferðast frá miðborginni.“
n Kínverjar byggðu risastórt hverfi í Angóla í skiptum fyrir olíu
Nokkrir bílar Hér má sjá eina af mörgum götum í Kilamba. Nokkrir bílar eru á bílastæðum
en afar fáir eru jafnan á ferli.
Ráðherra Manuel Clemente segist þess fullviss að íbúðirnar muni seljast. Hann vísar
gagnrýnisröddum á bug.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Þú þarft að
eiga mikið
af peningum til að
geta búið hérna
Kilamba Áætlað var að allt að
500 þúsund manns gætu búið
í hverfinu. Miðað við núverandi
ástand er ekki möguleiki að þær
áætlanir gangi eftir.