Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 06.07.2012, Blaðsíða 54
Þ essi drengur er bara draumur hvers þjálf- ara,“ segir Tómas Ingi Tómasson, aðstoðar- þjálfari U 21 árs lands- liðsins í knattspyrnu. Enska úr- valsdeildarfélagið Tottenham staðfesti á miðvikudag að fé- lagið hefði gengið frá kaupum á Gylfa Þór Sigurðssyni frá Hoff en heim. Tómas Ingi þekkir vel til Gylfa og þjálfaði hann meðan Gylfi var enn gjaldgeng- ur í 21 árs landsliðið. Tómas segir að enginn vafi leiki á því að risavaxið verkefni bíði Gylfa. Hæfileikar hans séu þó til stað- ar og Gylfi eigi góða möguleika á að stimpla sig rækilega inn í lið Tottenham. Þurfti stærra verkefni „Það bíður hans mjög verðugt verkefni að taka við leikstjórn- andastöðunni af Luka Modric sem er einn af bestu miðju- mönnum í heimi,“ segir Tómas en margt bendir til þess að Modric verði seldur frá Totten- ham í sumar. Gylfi vakti athygli margra stórliða í kjölfar magn- aðrar frammistöðu hans með Swansea á seinni hluta nýliðins tímabils. Gylfi skoraði sjö mörk í nítján leikjum og var valinn leik- maður marsmánaðar í ensku úrvalsdeildinni – fyrstur Ís- lendinga. „Það var engin önnur leið fyrir hann en að fara í ein- hver risaverkefni eftir það sem hann er búinn að vera að gera í vetur,“ segir Tómas. Tilbúinn Aðspurður hvort Gylfi sé til- búinn í verkefnið segist Tómas telja að hann sé það. „Já, ég held það. Þetta byggist þó að stóru leyti á trausti þjálfarans,“ segir Tómas en Andre Villas-Boas er nýtekinn við liðinu og svo virð- ist sem stjórinn hafi ekki haft neina milligöngu um kaupin á Gylfa. „Fótboltaleg geta hans held ég að sé til staðar fyrir þetta verk efni og hann mun spila með mjög góða leikmenn í kringum sig. Ég hef allavega fulla trú á að hann eigi eftir að standa sig frá- bærlega,“ segir Tómas og bætir við að gott hugarfar hans muni ekki skemma fyrir honum. „Mér finnst hann hafa burði og hugarfar til að ná virkilega langt.“ Flýgur ekki beint í liðið Tottenham-liðið endaði í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar síðastliðinn vetur og var lengi framan af í baráttunni um enska meistaratitilinn. Liðið er mjög vel mannað og því ekki sjálf- gefið að Gylfi muni ganga rak- leiðis inn í byrjunarliðið. „Ég held að það sé enginn að labba inn í liðið hjá Tottenham í dag. Menn þurfa að hafa mikið fyrir því. Jermain Defoe var á bekkn- um lengst af í vetur og það segir töluvert mikið um samkeppnina sem er um stöður í liðinu. Svo er Villas-Boas núna kominn og hann fær einhvern stærsta tékka sem Tottenham hefur snarað fram til kaupa á leikmönnum. Ef hann kaupir einhverja tvo til þrjá leikmenn í viðbót þá er við- búið að staðan hjá Gylfa muni þyngjast,“ segir Tómas. Hefði hentað Liverpool vel Lengi vel var talið að Gylfi Þór færi til Liverpool, ekki síst eftir að Brendan Rodgers var ráðinn stjóri á þeim bæ. Gylfi lék und- ir stjórn Rodgers hjá Read ing á sínum tíma og Rodgers var einmitt maðurinn sem fékk Gylfa að láni til Swansea í janúar síðastliðnum. Þeir þekkjast því vel en orðrómur hefur verið á 54 Sport 6.–8. júlí 2012 Helgarblað Ekki beint í liðið n Gylfi er „draumur hvers þjálfara“ n Mikil samkeppni hjá Tottenham Ferill Gylfa í atvinnumennsku Lið Leikir Mörk Stoðsendingar 2008–2009 Reading 3 0 0 Shrewsbury (á láni frá Reading) 6 1 1 Crewe (á láni frá Reading) 15 3 1 2009–2010 Reading 44 21 9 2010–2011 Reading 4 2 1 Hoffenheim 32 10 3 2011–2012 Hoffenheim 7 0 1 Swansea (á láni frá Hoffenheim) 19 7 3 Barátta um stöður Leikmannahópur Tottenham er stór og öflugur og eins og sjá má á meðfylgjandi lista er Tottenham-liðið ekki á flæðiskeri statt hvað öfluga miðjumenn varðar. Tómas Ingi hittir því líklega naglann á höfuðið þegar hann segir að Gylfi þurfi að hafa mikið fyrir því að komast í liðið hjá Tottenham. Athugið að á listanum eru einnig hreinræktaðir vængmenn á borð við Aaron Lennon og Gareth Bale. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is kreiki um að Liverpool hafi ekki viljað borga Gylfa nógu há laun. „Ég þekki ekki samningsstöð- una sem hann var í. Fótbolta- lega séð held ég að Liverpool hefði hentað honum mjög vel. Bæði af því að Brendan Rodgers er þjálfari sem þekkir Gylfa mjög vel og trúir og treystir á hann. Svo finnst mér Liverpool ekki vera með leikmenn eins og Gylfa,“ segir Tómas og bæt- ir við að hann telji að Gylfi hefði þar af leiðandi hentað Liverpool vel og aðstæðurnar hjá Liver- pool hentað Gylfa vel. „Það var af tveimur mjög góðum kostum að taka, finnst mér.“ n „Fótboltalega séð held ég að Liverpool hefði hentað honum mjög vel Ærið verkefni Gylfi Þór hefur alla burði til að slá í gegn hjá Tottenham, að mati Tómasar Inga. Hann þurfi þó að hafa mikið fyrir því. Þekkir Gylfa Tómas Ingi þekkir vel til Gylfa enda var Gylfi lærisveinn hans hjá U21 árs landsliði Íslands. Nýr stjóri Andre Villas-Boas er nýr stjóri Tottenham. Það er vonandi að hann gefi Gylfa tækifæri til að láta ljós sitt skína hjá félaginu. Tom Huddlestone Rafael van der Vaart Danny RoseSandro Aaron Lennon Luka Modric Jake Livermore Steven Pienaar Scott Parker Jermaine JenasDavid Bentley Gareth Bale Stattu þig, eða farðu Brendan Rodgers, nýráðinn knattspyrnustjóri Liverpool, hefur sent þau skilaboð til leikmanna sinna að þeir sem ekki séu tilbúnir að berjast um sæti í Meistara- deild Evrópu að ári geti allt eins yfirgefið félagið. Rodgers átti nýlega spjall við helstu stjörnu liðsins, Luis Suarez, en uppi hefur verið kvittur um að hann hygðist yfir- gefa Anfield í sumar. Suarez fullvissaði Rodgers hins vegar um að hann hefði engan áhuga á að yfirgefa Liverpool. Rodgers hrósaði Suarez fyrir viðhorf hans og segir að allir toppleikmenn vilji spila hjá toppliðum. Hann ætli að gera sitt til að koma Liverpool í fremstu röð að nýju, en það verði erfitt verkefni og aðeins fyrir þá leikmenn sem eru til- búnir. „Ef leikmenn eru ekki tilbúnir í það, þá munu þeir fara, það er ekkert flóknara.“ Hart barist um van Persie Ljóst að er fjölmörg stórlið í Evrópu eru í viðbragðs- stöðu í kjölfar yfirlýsingar Robins van Persie, framherja Arsenal, um að hann hyggist ekki framlengja samning sinn við Lundúnaliðið. Erki- fjendurnir í Manchester, City og United, eru sagðir fylgjast grannt með gangi mála og allt eins búist við því að fé- lögin geri tilboð í leikmann- inn. Sir Alex Ferguson, stjóri United, hefur lengi verið að- dáandi Hollendingsins sem varð markakóngur ensku úr- valsdeildarinnar í vetur. Van Persie hefur einnig verið orðaður við City að undan- förnu og ljóst að félagið getur boðið honum miklu hærri laun. Sjálfselskur Balotelli Ítalinn Paolo Di Canio, sem gerði garðinn frægan með West Ham, segir að landi sinn, Mario Balotelli, sé allt of sjálfselskur. Balotelli stóð sig ágætlega með Ítöl- um á EM og skoraði þrjú mörk í keppninni. Di Canio, sem jafnan er með munn- inn fyrir neðan nefið, segir að Balotelli þurfi hins vegar að líta í eigin barm og læra að spila fyrir liðið. „Balotelli er sjálfselskur. Hann gerði nokkra ágæta hluti á móti Þjóðverjum en hann er samt leikmaður sem spilar ekki fyrir liðið heldur fyrir sjálf- an sig. Hann er egóisti sem heldur að heimurinn snúist um hann. Leikmenn eins og Balotelli eiga frekar skilið löðrung en klapp á bakið.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.