Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Síða 10
Björn
10 Fréttir 28.–30. september 2012 Helgarblað
T
vær mismunandi hug
myndir voru uppi um
launahækkun Björns
Zoëga, framkvæmdastjóra
Landspítalans. Þetta kem
ur fram í tölvupóstsamskiptum
Landspítalans við velferðarráðu
neytið vegna launahækkunarinnar.
Tölvupóstarnir voru sendir í kjölfar
fundar Björns með Guðbjarti Hann
essyni velferðarráðherra þar sem sá
fyrrnefndi greindi ráðherranum frá
því að hann gæti fengið betur laun
aða vinnu annars staðar. Launa
hækkunin sem samþykkt var á end
anum hljóðaði upp á 530 þúsund
krónur á mánuði og átti að taka gildi
í byrjun mánaðarins.
Funduðu um málið í ágúst
Í svari velferðarráðuneytisins við
fyrirspurn DV kemur fram að Björn
og Guðbjartur hafi fundað 11. ágúst
þar sem starfskjörin og mögu
legar breytingar á þeim voru rædd.
Í kjölfar skiptust framkvæmdastjóri
mannauðssviðs Landspítalans og
ráðuneytisstjóri í velferðarráðu
neytinu á tölvupóstum þar sem
launahækkunin var rædd. Í tölvu
póstunum kemur fram að hækkun
in hafi tekið gildi 1. september síð
astliðinn en hún var dregin til baka
nokkrum vikum síðar.
Ríkisútvarpið greindi fyrst frá
launahækkuninni á vef sínum 6.
september, tæpum tveimur vikum
eftir að útfærsla launahækkunar
innar var samþykkt. Í kjölfarið gaus
upp mikil óánægja meðal starfsfólks
spítalans og fleiri aðila með launa
hækkunina en blóðugur niður
skurður var á rekstri spítalans allt frá
hruni. Þrátt fyrir að 19. september
hafi Björn og Guðbjartur sammælst
um að launahækkunin gengi til
baka er enn óánægja innan veggja
spítalans. Í dag, föstudag, er boðað
til mótmæla.
Hækkaði tvisvar sama daginn
Samkvæmt tölvupósti sem fram
kvæmdastjóri mannauðssviðs
Landspítalans sendi ráðuneytis
stjóra velferðarráðuneytisins 24.
ágúst síðastliðinn kemur fram að
bæta átti við fasta yfirvinnu um
32,26 tíma á mánuði auk þess sem
auka átti gæsluvakt um 48 tíma,
þar sem tímakaupið er rúmar 4.000
krónur, og aðra gæsluvakt um 32
tíma, þar sem tímakaupið er rúm
ar 1.400 krónur. Miðað við þessar
hækkanir hefðu laun forstjórans
verið orðin 2.500 þúsund krónur á
mánuði, 480.386 krónum meira en
hann hafði fyrir hækkunina.
Þetta breyttist í öðrum tölvupósti
sem sendur var síðar sama dag til
velferðarráðuneytisins. Þá var búið
að fjölga föstum yfirvinnutímum upp
í 42,45, eða um 10,19 tíma frá því sem
lagt var til fyrr um daginn. Miðað við
þessa hækkun, sem samþykkt var af
ráðuneytisstjóra velferðaráðuneyt
isins í samræmi við ákvörðun Guð
bjarts, áttu mánaðarlaunin að vera
slétt 2.550 þúsund krónur á mánuði.
Það jafngilti hækkun upp á 530.386
krónur. Árslaun Björns áttu því að
vera samtals 30.600 þúsund krónur
eftir hækkunina. n
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
11. ágúst
Guðbjartur og Björn
funda um starfskjör
þess síðarnefnda og
breytingar á þeim.
24. ágúst
Fyrsta tillaga um
launahækkanir
sendar í tölvupósti
frá mannauðsstjóra
Landspítalans til
ráðuneytisstjóra
í velferðarráðu-
neytinu.
Önnur tillaga að
launahækkun send
frá mannauðsstjóra
Landspítalans til
ráðuneytisstjóra
í velferðarráðu-
neytinu.
Ráðuneytisstjóri í
velferðarráðuneytinu
samþykkir formlega
launahækkun
Björns í tölvupósti
til mannauðsstjóra
Landspítalans.
6. september
Ríkisútvarpið greinir
frá launahækkun
Björns í fréttum
sínum.
7. september
Guðbjartur sendir
frá sér yfirlýsingu
þar sem hann segir
launahækkunina
tengjast störfum
Björns sem læknis á
spítalanum en ekki
forstjóra.
Formaður Lækna-
félags Íslands
gagnrýnir launa-
hækkunina í fréttum
Stöðvar 2.
19. september
Ráðuneytisstjóri
í velferðarráðu-
neytinu staðfestir
að fallið hafi verið
frá launahækkun-
inni í tölvupósti til
Landspítalans.
Svona var atburðarásin
Tölvupóstarnir DV hefur tölvupósta milli mannauðsstjóra Landspítalans og velferð-
arráðuneytisins undir höndum. Tölvupóstarnir voru afhentir í kjölfar upplýsingabeiðni til
ráðuneytisins.
n Tölvupóstsamskipti vegna launahækkunar Björns Zoëga
Bauðst annað starf Björn
fór á fund með Guðbjarti þar
sem hann greindi honum frá
því að honum byðist betur
launað starf annars staðar. Í
kjölfarið voru launin hækkuð
um rúma hálfa milljón á
mánuði. Mynd Eyþór Árnason
hækkaði
tvisvar á
sama degi
Drátturinn
aðfinnslu-
verður
Forseti Alþingis sendi ríkisendur
skoðanda bréf á fimmtudag þar
sem hann fer fram á að embættið
skili fullbúinni skýrslu um bók
haldskerfi ríkisins eigi síðar en
í lok októbermánaðar. Kastljós
ið hefur fjallað um málið síðast
liðna viku þar sem dregnar voru
fram upplýsingar úr skýrslunni
sem hefur legið óhreyfð inni á
borði ríkisendurskoðanda síðan
árið 2009 en beðið var um hana
árið 2004.
„Ég tel að dráttur á gerð skýrsl
unnar sé mjög aðfinnsluverður.
Slíkt má aldrei endurtaka sig.
Lagaheimild til þess að óska skýr
slna Ríkisendurskoðunar er einn
mikilvægasti þátturinn í eftirlits
hlutverki Alþingis. Með bréfi
þessu fer ég fram á það við Ríkis
endurskoðun að hún ljúki skýr
slugerðinni hið allra fyrsta og eigi
síðar en fyrir lok októbermánað
ar. Skýrslan verði þá þegar send
Alþingi eins og lög kveða á um,“
segir í bréfi forseta Alþingis til rík
isendurskoðanda.
Íhugi afsögn
Höskuldur Þór Þórhallsson, þing
maður Framsóknarflokksins, fer
fram á að Hrólfur Ölvisson, fram
kvæmdastjóri Framsóknarflokks
ins, íhugi afsögn. Lét Höskuldur
þessi ummæli falla í tilkynningu
sem hann sendi frá sér en hann
segir Hrólf hafa komið fram í fjöl
miðlum og sakað sig um lygar:
„Þrátt fyrir augljósar rangfærsl
ur og tilraunir til að breyta eftir á
raunverulegri atburðarás ákvað
framkvæmdastjóri flokksins,
Hrólfur Ölvisson, að koma fram í
fjölmiðlum og saka mig um lygar,“
skrifar Höskuldur sem harmar þá
stöðu sem upp er komin innan
Framsóknarflokksins.