Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Page 14
Hættuleg trampólín
Þ
að hafa orðið alvarleg slys
hér á landi; beinbrot og tann
áverkar sem er mjög kostn
aðarsamt að gera við,“ seg
ir Herdís Storgaard, forstöðumaður
Forvarnahússins, um trampólínslys
hér á landi. Þó svo að börn fái góða
hreyfingu og útrás við að leika sér á
trampólínum eru þau langt því frá
með öllu hættulaus. Heilbrigðissér
fræðingar í Bandaríkjunum vilja til
dæmis ganga svo langt að börnum
verði bannað að nota trampólín.
„Það er vissulega staðreynd að
trampólín geta verið mjög hættuleg.
Það eru til dæmi um mjög alvarlega
höfuðáverka, innvortis áverka og síð
an hefur fólk lamast á þessu,“ seg
ir Herdís. Árið 2009 urðu 100 þús
und trampólínslys í Bandaríkjunum.
„Læknar þurfa að hvetja til þess
að fólk dragi úr eða hætti að nota
trampólín. Þetta er ekki leikfang,“
segir Dr. Michele LaBotz, bæklun
arlæknir í samtali við NBC. LaBotz
hefur talað gegn trampólínnotkun
og segir að þau séu stórhættuleg. Þá
veiti öryggisnet í kringum trampólín
in falskt öryggi. Undir það tekur
Herdís. „Slysin hér á landi verða al
mennt ekki út af skorti á öryggisnet
um. Þau verða þegar það eru fleiri en
einn að hoppa í einu og börnin lenda
saman.“
Engar tölur eru til um fjölda slysa
hér á landi sem rakin eru trampólína
en Herdís segir þó að þau verði reglu
lega. Þrjú af hverjum fjórum trampó
línslysum sem verða í Bandaríkjun
um verða þegar það er fleiri en ein
manneskja að hoppa í einu. Yngri
og léttari börnin eru þar í stórum
áhættuhópi. Í samtali við NBC vís
aði LaBotz í rannsókn sem benti til
þess að í einu af hverjum tvö hund
ruð trampólínslysum verði þolendur
fyrir varanlegum taugaskaða.
Herdís segir að það væri ekki
rétta skrefið að börnum verði bann
að að nota trampólín „Mér finnst
það vera komið úr forvörnum yfir í
forræðishyggju.“ n
14 Fréttir 28.–30. september 2012 Helgarblað
Skemmtilegt Þó að trampólínin séu
þrælskemmtileg leiktæki fyrir börnin geta
alvarleg slys orðið.
n Börnum verði bannað að fara á trampólín n Slæm slys hér á landi
Vilja Píkusafn
Íbúahreyfingin í Mosfellsbæ vill
opna píkusafn í bæjarfélaginu.
Var það samþykkt á aðalfundi
hreyfingarinnar síðastliðið
þriðjudagskvöld. Íbúahreyf
ingin vill gera þetta vegna þess
að hún efast um að villidýrasafn,
sem bæjarstjórn Mosfellsbæj
ar hefur hug á að opna í Mos
fellsbæ, sé tímanna tákn. Telur
hreyfingin píkusafn vera í takt
við jafnréttisvakningu í þjóðfé
laginu á meðan villidýrasafnið
hampi gömlum karllægum gild
um. Finnst íbúahreyfingunni
mun meiri framsækni vera í
píku safni og segir áhuga á pík
um hafa verið mikinn og stöð
ugan í gegnum aldirnar. „Þó að
segja megi að ákveðnum há
punkti hafi verið náð hvað það
varðar á síðustu árum.“
Nú þegar er til staðar reða
safn í landinu og hefur það safn
gengið vel en munirnir á safn
inu spanna alla spendýrafánu
Íslands, segir í ályktun íbúa
hreyfingarinnar. „Þá hefur ekk
ert dýr verið drepið í þeim til
gangi að fá muni á safnið. Er
það mun sjálfbærri nálgun en
að deyða fágæt dýr beinlínis í
þeim tilgangi að setja þau á safn
í fjarlægu landi.“
Borgin vill
kaupa BSÍ
Reykjavíkurborg hyggst kaupa
Umferðarmiðstöðina og lóðina
sem fylgir henni fyrir 445 milljón
ir króna. Seljendur eru Mynni ehf.
og Landsbanki Íslands. Samkvæmt
fréttatilkynningu frá Reykjavíkur
borg er aðalástæðan fyrir kauptil
boðinu sú að Reykjavíkurborg
hyggst nýta Umferðarmiðstöð
ina sem miðstöð almennings
samgangna í Reykjavík. „Að auki
verður óvissu varðandi skipulagið
á þessu svæði eytt með kaupun
um þar sem Reykjavíkurborg mun
hafa fullt vald yfir svæðinu.“
É
g treysti Samfylkingunni al
veg til að velja minn eftirmann
á næsta landsfundi,“ segir Jó
hanna Sigurðardóttir, forsætis
ráðherra og formaður Samfylk
ingarinnar, aðspurð um hvern hún
telji líklegan eftirmann sinn. Jóhanna
tilkynnti flokksfélögum Samfylkingar
innar í dag að hún sæktist ekki eft
ir endurkjöri að kjörtímabilinu loknu.
„Það sem skiptir máli er að sá sem
tekur við keflinu, hvort sem það verð
ur karl eða kona, haldi áfram að leiða
flokkinn á þeirri braut sem við höfum
markað saman í minni ríkisstjórn og í
stjórnarflokkunum.“ Jóhanna vill ekki
lýsa yfir stuðningi við neinn aðila sem
eftirmann sinn.
Talaði við fjölskylduna
Hún segist hafa velt ákvörðuninni fyrir
sér í nokkurn tíma. „Ég hef nú verið að
velta þessu fyrir mér að undanförnu og
komst að niðurstöðu eftir samtöl við
fjölskyldu mína og félaga. Þá komst ég
að þeirri niðurstöðu að þetta væru þau
tímamót sem ég vildi nýta til þess að
hætta í stjórnmálum að loknu þessu
kjörtímabili.“ Jóhanna segir að margir
hafi hvatt hana til að halda áfram. „Mér
þótti að vísu vænt um að ég fékk hvatn
ingu frá mörgum af mínum félögum til
þess að halda áfram. Ég held að þetta
hafi verið rétt ákvörðun að segja þetta
gott eftir 35 ár í stjórnmálum.“
Arftakinn fylgi stefnunni
Nýlega sagði Jóhanna að Samfylkingin
ætli sér ekki að mynda ríkisstjórn með
flokki sem setji tafarlausa stöðvun að
ildarumsóknar að Evrópusambandinu
sem skilyrði. Þá hefur hún ítrekað lýst
yfir vilja á að Samfylking og VG starfi
saman eftir kosningar. Í nýlegu við
tali við DV sagði hún að of langt væri
á milli stefnumála Samfylkingar og
Sjálfstæðisflokks til að stjórnarmynd
um flokkanna geti talist raunhæfur
möguleiki. Hvort hún eigi von á að nýr
formaður færi flokkinn nær Sjálfstæð
isflokki til að opna á slíkan möguleika
segir Jóhanna; „Ég hef ekki hugmynd
um það en hver sem tekur við kefl
inu ber auðvitað að fara eftir stefnu og
markmiðum Samfylkingarinnar. Hver
hefur sinn stíl í forystu og við skulum
sjá bara sjá til hvað kemur út úr þessu.“
Stjórnmál til æviloka
Jóhanna sagði árið 2009 þegar hún
hafði verið kjörin formaður Samfylk
ingarinnar með um 97 prósentum at
kvæða á landsfundi flokksins að hún
væri ekki væri bráðabirgðaformaður.
Fræg eru ummæli hennar um þátt
töku ömmu sinnar, Jóhönnu Egils
dóttur í stjórnmálum til hundrað ára
aldurs. „Auðvitað var náttúrulega
glens í þessu,“ segir Jóhanna aðspurð
hvort hún sé með þessu ekki að fara
gegn fyrri orðum sínum. „Það er al
veg ljóst að þótt ég hætti í pólitík eft
ir þennan 35 ára feril, að loknu þessu
kjörtímabili, þá mun ég alveg örugg
lega vera viðloðandi pólitík eins lengi
og ég lifi. Þetta eru ákveðin kaflaskipti
í mínu lífi.“
Það er ljóst að Samfylkingin geng
ur til kosninga sem ríkisstjórnarflokk
ur sem þarf að verja störf sín og stefnu.
Þú sem formaður berð höfuð ábyrgð
á stefnu og gjörðum flokksins á kjör
tímabilinu. Ert þú með ákvörðun þinni
að gangast við gagnrýni á þín störf?
„Ég er mjög stolt af þeim árangri sem
við höfum náð á kjörtímabilinu. Hefði
það verið mín niðurstaða að gefa
kost á mér áfram og flokkurinn hefði
treyst mér til þess verks, hefði ég með
ánægju farið í að tryggja flokknum aft
ur að vera burðarflokkur í íslenskum
stjórnmálum. Sá sem tekur við keflinu
og þarf að verja árangur ríkisstjórnar
innar hefur engu að kvíða.“ n
n Formannsslagur á næsta landsfundi Samfylkingarinnar
Fékk hvatningu
til að halda áFram
Fyrsti kvenþingmaður Alþýðuflokksins „Hvarflaði ekki að mér að ég yrði kjördæma-
kjörin,“ sagði Jóhanna við Dagblaðið árið 1978 nokkrum dögum eftir að hún náði kjöri.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Síðasta
kjörtímabilið
Jóhanna Sigurðar-
dóttir sækist ekki
eftir endurkjöri að
loknu kjörtímabil-
inu. Hún settist á
þing árið 1978 fyrir
Alþýðuflokkinn.
„Sá sem
tekur við
keflinu og þarf
að verja árangur
ríkisstjórnarinn-
ar hefur engu að
kvíða