Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2012, Qupperneq 44
Sjóðheitir
Sóknarmenn
44 Sport 28.–30. september 2012 Helgarblað
Þ
eir Björn Bergmann Sigurðar-
son, Alfreð Finnbogason,
Kolbeinn Sigþórsson, Gylfi
Þór Sigurðsson og Aron Jó-
hansson eiga það ekki aðeins sam-
eiginlegt að hafa íslenskt ríkisfang
heldur hafa þeir allir verið iðn-
ir við kolann fyrir framan markið.
Saman hafa þeir skorað 66 mörk á
þessu ári. DV hefur tekið saman töl-
fræði um þessa marksæknu ungu
knattspyrnumenn. baldur@dv.is
n Hafa skorað 66 mörk á árinu n Tveimur þeirra líkt við Zlatan Ibrahimovic
Alfreð Finnbogason
Aldur: 23 ára
Uppeldisfélag á Íslandi: Fjölnir/Breiðablik
Félagslið: Heerenveen í Hollandi
Mörk með félagsliði á árinu: 22
Alfreð var á mála hjá Lokeren í Belgíu og hafði
skorað þrjú mörk fyrir félagið í upphafi árs
þegar hann var lánaður til Helsingborgar í Sví-
þjóð. Lánssamningurinn var til sex mánaða.
Alfreð var potturinn og pannan í sóknarleik
liðsins þann tíma og skoraði 12 mörk í 17 leikj-
um í deildinni, auk þess sem hann skoraði eitt í
Evrópukeppninni. Hann vakti athygli erlendra
liða með frammistöðu sinni en fór að lokum
til Heerenveen í Hollandi. Í vikunni gerði hann
sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk í einum og
sama leiknum. Hann hefur spilað fimm leiki með Heerenvenn og skorað í þeim sex mörk.
Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari hefur líkt Alfreði við sænsku goðsögnina Henrik Larsson:
„Vinnusemin, hreyfanleikinn, og öll hlaupin, bæði fyrir sjálfan sig og liðið.“
Björn
Bergmann
Sigurðsson
Aldur: 21 árs
Uppeldisfélag á Íslandi: ÍA
Félagslið: Wolves í Englandi
Mörk með félagsliði á árinu: 13
Björn gekk í raðir Lilleström árið
2009, aðeins 18 ára gamall.
Hann spilaði sig fljótlega inn í
byrjunarliðið og stóð sig vel. Það var þó ekki fyrr en á nýyfirstöðnu keppnistímabili í Noregi
sem hann sló rækilega í gegn. Hann skoraði 12 mörk í 17 leikjum og var lýst sem yfirburðar-
manni í norsku deildinni. Magnus Haslun, þjálfari Björns hjá Lilleström, gekk svo langt að
líkja honum við Zlatan Ibrahimovic. „Þegar Zlatan var á sama aldri var hann með mikla
líkamlega yfirburði líkt og Björn. Hann er fljótur, sterkur og með góða tækni. Hann er einnig
jafnvígur á báða fætur og góður skotmaður,“ sagði hann. Björn gekk í raðir Wolves í sumar og
hefur þar skorað eitt mark í fimm leikjum.
Kolbeinn Sigþórsson
Aldur: 22 ára
Uppeldisfélag á Íslandi: Víkingur/HK
Félagslið: Ajax í Hollandi
Mörk með félagsliði á árinu: 8
Kolbeinn Sigþórsson á aðeins fimm
meistaraflokksleiki á Íslandi að baki með HK
því hann fór ungur að árum til AZ Alkmaar
í Hollandi. Á fyrsta tímabili sínu í aðalliði
félagsins gerði hann sér lítið fyrir og skoraði
18 mörk í 43 leikjum. Þessi frammistaða
hans vakti risana í Ajax af værum blundi og
hann gekk til liðs við hollenska stórveldið
fyrir síðasta keppnistímabil. Hann skoraði
7 mörk í 17 leikjum á síðari helmingi keppn-
istímabilsins en ökklabrot settu stórt strik í
reikning þessa efnilega framherja í fyrra. Nú
er hann meiddur á öxl og hefur lítið spilað.
Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari hefur, eins
og fleiri, miklar mætur á Kolbeini og hann
hefur líkt honum við Zlatan Ibrahimovic.
„Þú sérð það á tölfræði hans að hann er
frábær markaskorari. Ef hann er ekki með
þá er það eins og að Svíþjóð væri án Zlatan,
það er eins.
Gylfi Þór
Sigurðsson
Aldur: 23 ára
Uppeldisfélag á Íslandi: FH/Breiðablik
Félagslið: Tottenham í Englandi
Mörk með félagsliði á árinu: 8
Gylfa Þór Sigurðsson þarf vart að
kynna enda hefur hann slegið í gegn
hvar sem hann hefur komið. Hann
fór ungur til Reading í Englandi
þar sem hann öðlaðist dýrmæta
reynslu. Hann varð fyrirliði liðsins og
kom að 30 mörkum í 40 leikjum á
sínu síðasta heila tímabili fyrir liðið;
skoraði 21 mark og lagði upp 9. Hann
var seldur til Hoffenheim í Þýska-
landi fyrir metfé og skoraði 9 mörk
í 29 leikjum. Tækifærin voru þó að
skornum skammti á öðru keppn-
istímabilinu og svo fór að hann var lánaður til úrvalsdeildarliðsins Swansea. Þar skoraði
hann sjö mörk og lagði upp þrjú í 18 leikjum og var valinn leikmaður marsmánaðar í ensku
úrvalsdeildinni. Í sumar var hann svo seldur til Tottenham þar sem samkeppnin er gríðarleg.
Hann hefur ekki skorað í fyrstu deildarleikjunum en skoraði eitt og lagði upp annað mark í
bikarleik núna í vikunni.
Aron Jóhannsson
Aldur: 21 árs
Uppeldisfélag á Íslandi: Fjölnir
Félagslið: AGF Aarhus í Danmörku
Mörk með félagsliði á árinu: 15
Fjölnismaðurinn Aron Jóhannsson vakti athygli hér heima
árið 2010 þegar hann skoraði 17 mörk í 26 leikjum í deild og bikar.
Liðið lék þá í fyrstu deildinni. Hann gekk eftir tímabilið til liðs
við AGF í Aarhus en hafði hægt um sig í markaskorun. Á
síðasta keppnistímabili skoraði þessi efnilegi piltur 8
mörk í 32 leikjum. Hann hefur greinilega borðað
vítamínin sín í sumar því eftir tíu deilarleiki er
pilturinn búinn að skora tíu mörk. Hann setti
met á dögunum þegar hann skoraði þrjú
mörk á tæpum fjórum mínútum. Alls skoraði
hann fjögur mörk á 16 mínútna kafla í einum
og sama leiknum - en hann skoraði öll mörk
liðsins. Landsliðsþjálfarar Íslands geta illa
horft fram hjá Aroni mikið lengur því hann
hefur leikið á alls oddi í deildinni þar sem
hann er markahæstur.
m
y
n
d
a
g
f.
d
k
m
y
n
d
r
eu
te
r
s
m
y
n
d
r
eu
te
r
s
m
y
n
d
w
o
lv
es
.c
o
.u
k
m
y
n
d
s
c-
H
ee
r
en
v
ee
n
.n
l
22 mörk
15 mörk
13 mörk
8 mörk
8 mörk