Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Page 6
„Hvaða máli
skiptir þetta?“
6 Fréttir 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
„Ég er ótrúlega glaður“
n Gunnlaugur búinn að greiða málskostnað Teits
G
unnlaugur M. Sigmundsson,
fjárfestir og fyrrverandi
alþingismaður, er búinn að
greiða málskostnað Teits Atla-
sonar vegna dómsmáls sem hann
höfðaði á hendur þeim síðarnefnda.
Meginatriðum málsins var vísað frá
héraðsdómi en annars var Teitur
sýknaður. Málið snérist um um-
mæli í bloggfærslu sem Teitur skrif-
aði í tengslum við upprifjun hans á
Kögunarmálinu.
Greiðslan barst frá Gunnlaugi
á þriðjudag í kjölfar bréfs sem lög-
fræðingur Teits sendi þar sem kraf-
ist var greiðslu á málskostnaði en
héraðs dómur hafði úrskurðað að
Gunnlaugur ætti að greiða málskostn-
að Teits. Teitur er að vonum ánægður
en hann telur að nú sé málinu lokið.
„Ég er ótrúlega glaður yfir þessu og
fegin að þessu máli sé lokið,“ segir
hann um málið.
Meðan á málaferlunum stóð
safnaði Teitur styrkjum til að standa
straum af kostnaði sem féll á hann
vegna málsins. Hann segir að í næstu
viku muni hann hefja endurgreiðslu
styrkjanna til þeirra sem lögðu söfn-
uninni lið. „Þetta eru nokkuð margir
aðilar og upphæðin er tæp milljón,“
segir hann um styrkina. „Það er ótrú-
lega mikilvægt að sýna fram á að með
samstöðu er hægt að verjast milljóna-
mæringum sem vilja stjórna umfjöll-
un um sjálfa sig.“
Til stendur að birta allar fjárhags-
upplýsingar í tengslum við söfnunina
á næstunni. „Ég mun birta allt bók-
hald og yfirlit yfir þessa söfnun þegar
ég er búin að borga öllum til baka.
Það stendur ekkert eftir.“ Teitur segir-
þó upphæðina sem Gunnlaugur hafi
þurft að borga ekki standa undir öll-
um lögfræðikostnaði sínum.
adalsteinn@dv.is
n Jóhannes í Iceland veit ekki hvernig hann á hlut í 1100 milljónum
J
óhannes Jónsson, yfirleitt
kenndur við Bónus en nú við
Iceland-keðjuna, átti þar til fyrr
á þessu ári stóran eignarhlut
í fjölmiðlafyrirtækinu 365. Í
opinberri umræðu hefur Ingibjörg
Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs,
sonar Jóhannesar, hins vegar alltaf
verið sögð eiga fjölmiðlafyrirtækið.
Þetta er ályktun sem ekki er annað
en hægt að draga við lestur á árs-
reikningi eignarhaldsfélags sem
var í eigu hans, Apogee ehf. Þetta
félag er alfarið í eigu lúxemborgska
eignarhaldsfélagsins Moon Capital
sem er stærsti einstaki eigandi fjöl-
miðlafyrirtækisins 365 með tæplega
44 prósenta hlut.
Ástæðan fyrir því að Jóhannes í
Iceland hlýtur að hafa átt stóran hlut
í 365 er sú að í mars var greint frá því
að hann hefði selt 50 prósenta hlut
í færeysku verslunarkeðjunni SMS í
gegnum áðurnefnt félag, Apogee ehf.
Þar sem Apogee ehf. var alfarið í eigu
Moon Capital og það félag átti nærri
helmingshlut í 365 hlýtur Jóhannes í
Iceland einnig að hafa átt hlut í 365.
Ingibjörg Pálmadóttir, sem sögð er
eigandi 365, var hins vegar ekkert
tengd við söluna á SMS jafnvel þó
sama fyrirtækið, Moon Capital, ætti
félagið sem átti 365 og SMS.
Jóhannes hverfur á braut
Í september, skömmu áður en
Apogee skilaði ársreikningi, var
heimilisfang félagsins fært af heimili
Jóhannesar og í húsnæði tengt Ingi-
björgu Pálmadóttur. Þá gaf Jóhannes
einnig eftir prókúru sína og stöðu
framkvæmdastjóra sem og að hverfa
úr stjórn. Ingibjörg tók við prókúru-
umboðinu og framkvæmdastjóra-
stöðunni og situr nú í stjórn félagsins
ásamt systur Jóns Ásgeirs, Kristínu
Jóhannesdóttur.
Miðað við þetta er Jóhannes í
Iceland ekki lengur einn af stjórn-
endum Apogee. Vel kann hins vegar
að vera að hann eigi ennþá hlut í
Moon Capital, sem hann hlýtur að
hafa átt þar sem hann var sagður
hafa selt SMS-keðjuna sem var í eigu
félags sem Moon Capital átti. Ef svo
er þá á Jóhannes ennþá hlut í 365.
Getur ekki útskýrt málið
Jóhannes getur aðspurður ekki út-
skýrt hvernig eignarhaldi hans
á SMS-keðjunni í Færeyjum var
háttað. Hann staðfestir hins vegar
að hann hafi átt umrædd hlutabréf.
„Já, ég átti það.“ Jóhannes segist til
dæmis ekki hafa átt hlutabréf í Moon
Capital. „Ekki svo ég viti til. Nei, ég
átti ekkert í því.“
En þegar Jóhannes er spurður
hvernig það fáist þá staðist að hann
hafi átt hlutabréf í SMS án þess
að eiga hlutabréf í Moon Capital,
þar sem Moon Capital átti einnig
Apogee, segir Jóhannes. „Á hvaða
forsendum ertu að finna það út?
Hvaða máli skiptir þetta?“
Þegar Jóhannes er spurður hvern-
ig þetta standist þá segist hann ekki
vita það. „Ég er bara ekki með skýr-
ingar á þessu hér hérna hjá mér. Þú
færð engar skýringar hjá mér og ég sé
ekki að þetta skipti neinu máli. Það
hljóta að vera eðlilegar skýringar á
þessu.“
Sterkt félag
Apogee er ansi sterkt félag miðað
við ársreikning þess og má segja að
einkennilegt sé að Jóhannes kannist
ekki við hvernig hann eigi svo eigna-
mikið hlutafélag. Félagið hagnað-
ist um tæplega 270 milljónir króna í
fyrra. Apogee er skráð fyrir eignum
upp á meira en 1.100 milljónir króna
en skuldar eingöngu tæpar 370 millj-
ónir. Félagið á óráðstafað eigið fé
upp á nærri 620 milljónir króna.
Miðað við eignarhald Jóhannesar á
SMS hlýtur hann að eiga að minnsta
kosti hluta af þessum miklu eignum.
Ef marka má ársreikninginn feng-
ust 3,75 milljónir danskra króna fyrir
eignarhlutinn í SMS, eða rúmlega
800 milljónir króna miðað við gengi
krónunnar í mars. Jóhannes hlýtur
að eiga þá peninga, ef marka má orð
hans sjálfs um að hann hafi átt SMS í
reynd, það er að segja. Eignarhald Jó-
hannesar í Apogee og hvernig því er
háttað er hins vegar enn á huldu eftir
samtalið við hann. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Það hljóta að vera
eðlilegar skýringar
á þessu.
Var eigandi 365 Jóhannes
í Iceland var og er hugsanlega
enn hluthafi í fjölmiðlafyrir-
tækinu 365. Hann kannast
hins vegar ekki við hvernig
eignarhaldi hans á eignum í
Færeyjum upp hundruð millj-
óna var háttað.
Málinu lokið Teitur býst ekki við öðru en
að greiðsla sé til marks um að málinu sé nú
lokið. Mynd Eyþór ÁrnaSon
Mengað vatn
á Eskifirði
Á Eskifirði hafa fundist kólígerlar
í neysluvatni. Íbúar hafa verið
beðnir um að sjóða allt neyslu-
vatn en það er þó talið óhætt að
baða sig upp úr vatninu og sjóða
kartöflur. Sýni var tekið úr vatns-
bóli bæjarins á miðvikudag og
niðurstöður bárust á fimmtu-
dag. Allir íbúar í bænum fengu
bréf þar sem þeim var tilkynnt um
þetta. Helga Hreinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Austurlands, sagði í samtali við
Vísi að þetta væri ekki í fyrsta sinn
með kólígerlar mældust í neyslu-
vatni á Eskifirði.
Ráðinn
aðstoðar maður
Katrínar
Arnar Guðmundsson hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Katrínar
Júlíusdóttur, fjármála- og efna-
hagsráðherra, og verður hann
annar tveggja aðstoðarmanna
hennar. Auk Arnars starfar Kol-
beinn Marteinsson sem aðstoðar-
maður Katrínar. Arnar var að-
stoðarmaður iðnaðarráðherra
2009 til 2011 og gegndi for-
mennsku í Auðlindastefnunefnd
ríkisstjórnarinnar og nefnd um
lagaramma orkumála.
Arnar hefur starfað sem verk-
efnastjóri hjá fjárfestingarsviði
Íslandsstofu síðustu ár. Hann
starfaði áður hjá hagdeild og
greiningardeild Landsbanka Ís-
lands, Fjárfestingarstofu og Út-
flutningsráði, Aflvaka – atvinnu-
þróunarfélagi Reykjavíkur og
Alþýðusambandi Íslands.
Arnar lætur af störfum hjá fjár-
festingarsviði Íslandsstofu meðan
hann gegnir starfi aðstoðarmanns
fjármála- og efnahagsráðherra.