Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Page 8
8 Fréttir 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
n Kærði stúlku sem kærði hann fyrir nauðgun n Kærði vitnin líka
E
gill Einarsson hefur kært 19 ára
stúlku fyrir rangar sakargiftir
en hún lagði fram nauðgunar
kæru á hendur honum og kær
ustu hans. Egill kærði einnig tvær
vinkonur stúlkunnar fyrir rangan
framburð en þær báru vitni í málinu.
Þá fór hann fram á lögreglurannsókn
á því hvort stúlkan hafi orðið fyrir
óeðlilegum þrýstingi um að leggja
fram kæru og hvort einhverjir hafi
beitt pólitískum völdum og áhrifum
til að ná fram ákæru.
Það var í sumar sem ríkissak
sóknari tók ákvörðun um að fella
nauðgunarmálið niður þar sem það
var ekki var talið líklegt til sakfellis
og um miðjan september vísaði lög
reglustjórinn á höfuðborgarsvæð
inu kæru Egils frá. Í byrjun mánað
ar krafðist ríkissaksóknari þess hins
vegar að sú ákvörðun yrði endur
skoðuð, en taldi þó ekki tilefni til
þess að rannsaka hvort pólitískum
völdum hefði verið beitt til þess að
knýja fram ákæru.
Egill hefur ávallt haldið fram sak
leysi sínu. Sagði hann „refsivert að
hafa samband við handrukkara í
þeim tilgangi að kúga fé út úr fólki“,
en lögmaður stúlkunnar þvertók fyr
ir að á Egil hefði verið sendur hand
rukkari á hennar vegum. Nú segist
Egill vonast til þess að hann verði
endanlega hreinsaður af þessum
alvarlegu ásökunum, það hafi verið
nánast óbærilegt að sitja undir gróf
um svívirðingum, glósum og and
styggilegum heitum vegna málsins.
Samkvæmt heimildum DV hafði
stúlkan ekki heyrt af kærunni fyrr
en fréttir voru fluttar af málinu í fjöl
miðlum. Hún vildi ekki tjá sig um
málið þegar eftir því var leitað og það
vildu vinkonur hennar heldur ekki
gera, en af þeim mátti skilja að þeim
hefði verið ókunnugt um kæruna.
leyndarhjúpur
um ferðakostnað
A
lþingi vill ekki láta DV hafa
upplýsingar um kostnað
sem þingið ber af ferðum
þingmanna og annarra
starfsmanna þingsins til
útlanda. Blaðið hefur sent tvær
fyrir spurnir um málið og ítrekað
þær, en án árangurs. Helgi Bern
ódusson, skrifstofustjóri Alþingis,
segir að upplýsingarnar liggi ekki
fyrir með þeim hætti sem DV óskar
eftir þar sem ferðum starfsmanna
sé ekki haldið aðgreindum í bók
haldinu.
Ekkert svar
„Flestar utanferðir starfsmanna
skrifstofu Alþingis tengjast alþjóð
legum samskiptum þingmanna,
þ.e. alþjóðanefnda þingsins, og for
seta Alþingis,“ sagði Helgi í svari
við fyrri fyrirspurn blaðsins vegna
málsins. Þar sagði hann enn fremur
að dæmi séu um að einstaka starfs
menn þingsins sæki fundi og ráð
stefnur á erlendri grund sem kollegar
þeirra standa að og rétt þykir að þeir
sæki. „Haldið er utan um kostnað
við hverja nefnd í heild innan hvers
árs. Sömuleiðis er haldið utan um
heildarútgjöld við ferðir starfsmanna
til útlanda og hliðstæða fundi og
ráðstefnur á Íslandi,“ sagði hann en
fyrir spurn DV snéri að ferðakostnaði
starfsmanna á Alþingi síðastliðin tvö
ár sundurliðað eftir einstaklingum
og ferðum.
Í kjölfarið á þessu svari sendi
blaðamaður nýja fyrirspurn til
Alþingis þann 16. október þar sem
óskað var eftir upplýsingum um hver
heildarkostnaðurinn væri, það er
að segja þær upplýsingar sem Helgi
hafði nefnt, í svari við fyrri fyrir
spurn, að væru til hjá starfsmönnum.
Tveimur vikum síðar var fyrirspurnin
ítrekuð þar sem spurt var hvað væri
að frétta af fyrirspurninni og var ein
falt svar sem barst: „Nei, það er ekk
ert frekar að frétta.“ Blaðamaður
spurði þá hvort að fyrirspurninni yrði
ekki svarað en engin viðbrögð hafa
komið frá þinginu nú rúmum tveim
ur vikum síðar.
Engin ársskýrsla komin út
Alþingi birtir reglulega ársskýrslu
um störf sín og rekstur þingsins. Síð
asta skýrsla sem birt var á vef þings
ins er vegna ársins 2009. Samkvæmt
þeirri skýrslu var kostnaður þings
ins vegna alþjóðasamstarfs rúmar 60
milljónir króna. Sá kostnaður er ekki
sundurliðaður neitt frekar. Í skýr
slunni er einnig fjallað um kostnað
vegna alþjóðasamstarfs árið 2008 en
hann var 79 milljónir króna, lækkun
upp á 19 milljónir átti sér því stað á
milli ára.
Þetta rímar við svar Helga við
fyrstu fyrirspurn DV um að ekki
væri hægt að sundurliða kostn
aðinn þar sem allt væri fært und
ir einn hatt í bókhaldi þingsins.
Enginn ársskýrsla hefur komið út
síðan skýrslan vegna 2009 var birt á
vef þingsins. Enn er því beðið eftir
skýrslu vegna 2010 og 2011 og ekki
er nema einn og hálfur mánuður
þangað til rekstrarárið 2012 líður
undir lok.
Borga hluta ferðakostnaðar
Samkvæmt reglum um starfskjör
þingmanna er greiddur ferða
kostnaður í samræmi við reglur
um greiðslu ferðakostnaðar á veg
um ríkisins sem ferðakostnaðar
nefnd gefur út og birtar eru í Lög
birtingablaði. Þingmenn eiga hins
vegar rétt á að fá greiddan gisti
kostnað og helming fullra dag
peninga til viðbótar. Starfsmenn
þingsins, aðrir en þingmenn, eiga
líka rétt á að fá ferðakostnað sinn
greiddan að einhverju leyti. n
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
„Nei, það er ekkert
frekar að frétta.
n Ekki fást svör við fyrirspurnum DV n Upplýsingarnar liggja ekki fyrir
Ekki til Skrifstofustjóri Alþingis, segir
upplýsingarnar ekki liggja fyrir. Hann segir
þó heildarkostnað vegna ferða starfsmanna
til útlanda liggja fyrir en hefur ekki svarað
spurningum DV um hver sá kostnaður er.
Fórnarlamba umferðarslysa
minnst:
188 látnir á
tíu árum
Minningarathöfn fer fram við
bráðamóttöku Landspítalans í
Fossvogi á sunnudag klukkan 11
þar sem fórnarlamba umferðar
slysa verður minnst. Það er starfs
hópur innanríkiráðuneytisins sem
annast undirbúning verkefnisins
og eru landsmenn hvattir til að
minnast á þessum degi þeirra sem
látið hafa lífið í umferðinni, að því
er segir í tilkynningu.
Á hverju ári látast um 1,2 til 1,4
milljónir manna í umferðarslysum
í heiminum og hundruð þúsunda
bíða varanlegan skaða. Á Íslandi
hafa 188 manns látist í 166 um
ferðarslysum síðastliðin 10 ár og
um 1.700 hlotið mikil meiðsli.
Þann 1. nóvember síðastliðinn
höfðu 965 látist í umferðarslysum
á Íslandi frá því að skipt var yfir í
hægri umferð þann 26. maí árið
1968. Við Landspítalann munu
koma saman fulltrúar þeirra
starfsstétta sem kallaðar eru til
þegar alvarleg umferðarslys eiga
sér stað. Einnig verða viðstaddir
forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra og Guðbjartur
Hannesson velferðarráðherra auk
annarra gesta.
Klukkan 10.45, rétt fyrir athöfn
ina sem hefst klukkan 11.00, mun
þyrla Landhelgisgæslunnar lenda
við þyrlupall Bráðamóttökunnar.
Að lokinni einnar mínútu þagnar
stund munu tveir aðstandendur
sem misst hafa ástvini sína í um
ferðarslysum segja stuttlega frá
reynslu sinni.
Smyglari
í fangelsi
32 ára karlmaður hefur verið
dæmdur í sjö mánaða fangelsi
fyrir innflutning á kókaíni.
Maðurinn var stöðvaður í
Leifsstöð við komuna frá Kaup
mannahöfn í apríl eftir að í fór
um hans fundust 197 grömm
af kókaíni. Efnið var 70 prósent
að styrkleika en að því er fram
kom í ákæru hefði verið unnt
að framleiða 644 grömm að
21,4 prósenta styrkleika úr efn
unum. Maðurinn faldi efnin í
sex pakkningum í líkama sín
um. Maðurinn játaði brot sitt
fyrir dómnum en hann vildi
ekki ljóstra upp um þá eða
þann sem skipulagði för hans.
Fjórir mánuðir af sjö eru skil
orðsbundnir
Hefur sætt svívirðingum Egill hefur
alltaf haldið fram sakleysi sínu.
Vill hreinsa nafn sitt