Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Blaðsíða 18
18 Fréttir 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Ég vissi ekkert hvað þetta var en svo
sá ég þetta. Þetta er bara eitthvað sem
allir hafa séð, tvær stelpur að troða
glasi á fæti upp í rassinn á annarri
þeirra og svo brotnar glasið inni í
henni. Ég var í sjokki eftir þetta.“
Salvör: „Það eru líka dæmi um að
fólk horfi á mjög gróf myndbönd sér
til skemmtunar. Vefsíður á borð við
eFucked helga sig ýktum og ógeðs-
legum myndböndum og það eru fullt
af krökkum sem sitja inni í matsal
skólans að horfa á svona myndbönd
og hlæja að þeim. Það myndi enginn
þora að segja að honum liði illa yfir
þessu, það er tabú. Þú átt að þola
þetta eins og hinir. Sem er fáránlegt.“
Nota klám sem skemmtiefni
Hjalti: „Það er svona vika síðan ég
gekk inn á nemendafélagsskrifstof-
una þar sem tveir strákar sátu saman
og voru að horfa á klám. Ég spurði
hvað þeir væru að horfa á og þá var
þetta viðtal við stelpu sem vildi leika
í klámmynd og það var verið að gera
ógeðslega hluti við hana og niður-
lægja hana á allan máta. Þeir sátu
bara hér og horfðu á þetta en ég
strunsaði út og sagði Sölku að strák-
arnir væru að horfa á klám og spurði
hvort hún væri ekki til í að fara inn og
öskra á þá. Þetta er svona viðurkennt,
þessir strákar eru ekkert slæmir
gaurar, þetta er bara kúltúrinn.“
Ester: „Ég geng svo oft inn í
aðstæður þar sem verið er að horfa
á myndband sem snýst um eitthvað
svona, fimmtán menn að fá það yfir
eina konu, og þeim finnst það ógeðs-
lega fyndið að hún sitji bara þarna
á meðan það er verið að „cumma“
yfir andlitið á henni. Þeim finnst
það bara geggjað, það er svo skrýtið.
En þegar maður segir eitthvað þá er
alltaf einhver sem segir manni bara
að slaka á, þetta sé bara djók en ekki
alvara. Í alvöru?
Ok, þetta er ekki hefðbundið
klám, það snýst meira um að einhver
karl sé að „pounda“ konu geðveikt
fast, „anal“ og meira að segja myndi
„triple penetration“ flokkast undir
hefðbundið klám. Það er líka svo al-
gengt í þessum myndböndum þessi
leikur þar sem hún segir nei, hann
heldur áfram og segir jú, hún neit-
ar aftur og svona gengur þetta þar til
nei-ið týnist og það fer allt af stað.
Engu að síður er þetta önn-
ur deild í klámi sem er jafn algeng
og venjulegt klám. Það eru allir að
spyrja hvort maður hafi ekki séð
þetta því það séu allir búnir að sjá
þetta. Eins og þessar „e-fucked“-síð-
ur og „4chan“. Þegar krakkar eru að
horfa á þetta ógeðsklám þá er eins
og þeir séu að horfa á einhvern þátt
í sjónvarpinu eða handboltaleik þar
sem þeir eru bara „ neeiiiiiii“. Þetta er
sjúkt. Það er engin hugsun á bak við
það sem þeir eru að gera, þeim finnst
þetta bara svo klikkað og ógeðslegt
að þeir horfa á þetta.“
Salvör: „Fólk fer alltaf að horfa á
grófara klám af því að það heldur að
þetta sé í lagi. Um leið og þú sérð að
einhver hefur gert þetta þá ferðu að
hugsa með þér að það sé kannski allt
í lagi að gera þetta.“
Steinarr: „Ég veit ekki hvort klám
sé alltaf að verða grófara. Ég held að
það sé aðallega þannig að þeir sem
horfa mikið á klám sækist í grófara
klám.“
Salvör: „Á meðan telja framleið-
endur sig þurfa að svara eftirspurn-
inni svo fólk fái ekki leið á kláminu.
Klámmarkaðurinn er ekki þarna til
þess að hjálpa neinum nema sjálf-
um sér. Hann er ekki þarna til þess
að kynna heilbrigð viðhorf, hann er
þarna til þess að græða peninga, rétt
eins og allur iðnaður, sama af hvaða
tagi hann er. Þess vegna verður að
draga úr eftirspurninni.“
Fólk sér ekki vandamálið
Salvör segir það líka áhugavert að
velta því fyrir sér hvað sé að gerast
hjá þeim sem leika í þessum mynd-
böndum: „Á hverjum degi byrja
stelpur í þessum bransa í von um
að verða næsta stórstjarna. Það er
líka áhugavert að skoða í hverju þær
hafa lent áður en þær enda þarna.
Oft hafa þær lent í slæmri kynferð-
islegri reynslu. Það þarf að breyta
mýtunni um að þetta sé gott líf, þetta
er bara ömurlegt fyrir alla sem koma
að þessu. Líka strákana sem vinna
við að halda „bóner“ í fimm tíma og
niðurlægja konur. Þetta eyðileggur
líf þeirra og margir svipta sig lífi. Það
er ekkert kúl við þennan heim.
En eldri kynslóðin veit ekki hvað
þetta er og hvað þetta er útbreitt og
vill ekkert endilega horfast í augu við
það. Fyrir þeim er þetta feimnismál,
viðhorfið er annað hjá yngra fólkinu
sem lítur frekar á þetta sem gaman-
mál.“
Vigdís Perla: „Ég held að það sé
aðallega það að fullorðið fólk veit
ekki af þessu, hversu eðlilegt þetta
þykir og hversu gróft þetta er. Það sér
ekki vandamálið.“
Steinarr: „Það áttar sig kannski
núna með þessari umræðu sem
hefur átt sér stað síðustu vikur.“
Hjalti: „Ég er mjög feginn að
þessi umræða eigi sér stað. Ég held
að nauðgunarkæran gegn Gillz hafi
haft mjög djúpstæð áhrif því fólk
fór að átta sig á því að þessi kúltúr
er ekki eitthvað sem gæti mögu-
lega einhvern tímann farið að hafa
áhrif heldur er þetta „mainstream“-
vandamál. Það er þarna og það hefur
áhrif. Um daginn var birt rannsókn
sem sýndi að strákar í grunnskóla
væru íhaldssamari en þeir voru fyrir
tuttugu árum. Það er ekki hægt að
horfa fram hjá því og þetta hefur
allt áhrif. Klámið meðal annars, það
smitar út frá sér.“
Vigdís Perla: „Það þarf að ná til
yngri krakka, fræða þá og stimpla
það inn í hugann á þeim að þetta sé
ekki í lagi. Það er allt of seint í rass-
inn gripið að ætla að byrja á 19 ára
strákum.“
Ester: „Ég held að það sé mjög
erfitt að banna þetta. Það væri far-
sælast ef eftirspurnin myndi hverfa,
sem gerist helst með fræðslu og al-
mennri viðhorfsbreytingu. Það væri
óskandi að klám væri ekki eitthvað
sem þú verður að hafa séð því það
eru allir að horfa á klám. Það á ekki
að vera normið.“ n
„Það er fullt af krökkum
sem sitja inni í matsal
skólans að horfa á svona
myndbönd og hlæja að þeim
Þreytt á kláminu Salvör, Steinarr, Ester, Hjalti og Vigdís Perla eru nemendur í MH. Þeim er slétt sama þótt þau séu stimpluð sem öfgafemínistar fyrir að gagnrýna klámnotkun sem á sér meðal annars stað í skólanum, enda segja þau
klámkúltúrinn hafa slæm áhrif á hugmyndir um kynlíf og kynhlutverk, eins og þau hafa upplifað sjálf. „Þær liggja bara
þarna. Síðan fara
stelpur inn í kynlífið án
þess að hafa skoðun á
neinu og halda að það sé
ekki þeirra völlur á meðan
strákarnir halda að þeir
séu sönn karlmenni ef
þeir „pounda“ hana geð-
veikt fast.