Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Page 27
„Femínistar
eru lúxusand-
stæðingar“
Viðtal 27Helgarblað 16.–18. nóvember 2012
Dalvegur 2
200 Kópavogur
Sama hús og vínbúðin
Verð 22.990,-kr. Verð 20.990,-kr.
Verð 23.990,-kr.Verð 21.990,-kr.
www.facebook.com/modabrasilia
Opið 16:30 - 18:30 mánudaga-föstudaga
12:00 - 16:00 laugardaga.
Við seljum handunna skó
og töskur úr gæða leðri
beint frá Brasilíu sem
tryggir frábært verð.
Einungis verða til 12 pör
í tegund hverju sinni.
NÝ VERSLUN
SÍMI: 662 5041
SJÁÐU
VERÐIÐ!
kynferðismálum. Við megum hafa
áhuga á kynlífi en það þarf að vera
pólitískt rétt til að verða samþykkt.“
Varðandi vændi telur Eva að
konur eigi að fá að stjórna því sjálf-
ar hvað þær geri við líkama sinn.
„Ég hef samúð með því fólki sem er
ekki boðið til umræðu um eigin mál-
efni, eins og flóttamönnum, föngum
og kynlífsþjónum. Því er enn haldið
fram að „hamingjusama hóran“
sé ekki til enda þótt myndbönd og
greinar með vitnisburði margra kyn-
lífsþjóna sanni hið gagnstæða og
samtök fólks í kynlífsþjónustu séu
starfrækt víða um heim.
Það er líka athyglisvert að þessi
hamingjukrafa skuli gerð til að-
eins einnar stéttar. Ekki var ég rass-
gat hamingjusöm við skúringar eða
saltfiskverkun en þó reyndi enginn
að banna skúringar eða saltfisk til að
„bjarga“ mér.
Framkoma yfirvalda við fólk
í kynlífsiðnaði er ömurleg. Fyrir
nokkrum vikum efndu þrjú ráðu-
neyti til ráðstefnu um klám og ekki
einum einasta fulltrúa klámiðnað-
arins var boðið. Ég kom inn á þetta
virðingarleysi gagnvart kynlífsþjón-
um í bókinni minni Ekki lita út fyrir
- sjálfshjálparbók handa sjálfri mér
og öðrum ýlandi dræsum, sem kom
út 2010. Ég hef líka skrifað ljóðabók
þar sem sjóninni er beint að fólki í
kynlífsiðnaði. Hún heitir Bláþræðir -
dagbók vændiskonu og er til á blogg-
formi á netinu en útgáfu var hafnað
með þeim orðum að viðfangsefnið
gæti seint talist ljóðrænt – ég á þetta
skriflegt. Þetta segir dálítið um af-
stöðuna til kvenna sem hafa valið að
vinna við kynlífsþjónustu, það má
ekki einu sinni yrkja ljóð um þær.“
Aðspurð hvort þessir bókatitlar vísi
í persónulega reynslu segir hún öll sín
skrif litast á einhvern hátt af reynslu.
„Yfirskriftin á persónulega blogginu
mínu er sú að góð saga sé ekki verri
þótt hún sé login. Ég ætla ekki að fara
út í það hvar mörkin milli skáldskapar
og veruleika liggja; bendi fólki bara á
að lesa það sem ég hef að segja.“
Eva segir að það sé ekki erfitt að
hafa femínista á móti sér. „Nei, alls
ekki. Það er mjög auðvelt að hrekja
málflutning femínista. Ég hef með
rökum og gögnum hrakið helstu
fullyrðingar sem þeir halda á lofti,
til dæmis því að kynlífsþjónusta sé
alltaf nauðung, að ofbeldi gegn kon-
um sé viðurkennd hegðun á Íslandi,
að réttarkerfi hygli nauðgurum og að
orsakasamband sé milli klámneyslu
og kynferðisofbeldis. Femínistar
reyna ekki einu sinni að svara þessu
með rökum. Stundum koma rökvillur
og útúrsnúningar sem þarf ekkert
að svara. Ég svara þeim oft, mér til
skemmtunar, en gagnrýni mín hefur
aldrei verið hrakin svo femínistar eru
algerir lúxusandstæðingar.“
Hamingjusöm og ástfangin
Eva segir tilganginn með skrifum sín-
um ekki vera að hneyksla heldur að fá
fólk til að endurskoða hugmyndir sín-
ar. „Mér finnst hressandi að fá blauta
tusku í andlitið og neyðast jafnvel til
að hugsa hlutina upp á nýtt.
Að sama skapi fæ ég kikk út úr því
ef mér tekst að fá einhvern til að efast
um það sem hann hefur gengið út frá
sem sannleika. Maður kemst ekki hjá
því að ganga fram af einhverjum ef
maður ætlar að hafa áhrif á samfélags-
umræðuna og ég stæði ekkert í þessu
nema af því að mig langar að hafa
áhrif. Ég hef gaman af að stuða fólk en
það hafa ekki allir sömu þolmörk.“
Eva eyðir drjúgum tíma í
bloggskrif en félagslíf hennar fer
einnig að miklu leyti fram á veraldar-
vefnum. „Þótt mér þyki vænt um vini
og ættingja hef ég ekki þörf fyrir stöð-
ugan félagsskap. Á netinu er auðvelt
að halda uppi samskiptum í stuttan
tíma í senn svo það hentar mér vel.
Þótt ég sé ekki með vinahópinn í
kringum mig hef ég aldrei orðið ein-
mana hér í Glasgow en Einar er líka
alltaf nálægur.“
Eva kynntist Einari á netinu og
flutti til hans í janúar. „Það er ekki
komin mikil reynsla á sambandið en
ég er mjög hamingjusöm.
Ég hef aldrei verið með manni
sem skilur mig svona vel og okkur
lyndir ákaflega vel saman. Við erum
sammála um það sem skiptir mestu
máli en við höfum oft komist að
sömu niðurstöðum út fá ólíkum
sjónarhornum og það býður upp á
mjög áhugaverðar samræður. Ég hef
þráð einmitt svona ástarsamband í
tvo áratugi og ég trúi því að það muni
endast.“ n
Alin upp við sjálfstæði Eva segir
umhverfisáhrif ofmetin. Systkini hennar hafi
verið alin upp á sama heimili en rífi þó ekki
kjaft á netinu eins og hún. myndir ingólfur Júlíusson
Fáðu greinar í heild sinni
á DV.is og vefáskrift
af prentútgáfu DV
* Verðið er 790 kr. fyrstu
3 mánuðina, en 1.790 kr. eftir það.
fyrir 790 kr.
á mánuði *
Sjáðu
meira