Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.2012, Page 54
Ásdís Rán
vill aukavinnu
Þ
etta tekur á, ég æfi þrisvar á
dag um þessar mundir, segir
Margrét Edda Gnarr sem æfir
stíft fyrir módelfitnesskeppni
sem fram fer laugardaginn 16.
nóvember næstkomandi. Hún vaknar
eldsnemma á morgnana til að taka
sína fyrstu æfingu, æfir aftur í hádeg
inu og svo seinna um daginn.
Vatnslosun fyrir keppni
Mataræðið fyrir keppni eins og þessa
er strangt. Margrét Edda segist borða
á tveggja tíma fresti. „Við þurfum að
vera há í prótínum og lág í kolvetnum.
Ég borða á tveggja tíma fresti og þrjár
stórar máltíðir á dag. Á morgnana fæ
ég mér hafragraut með kanil, í hádeg
inu kjúklingabringu og hrísgrjón og
í kvöldmat fæ ég mér oftast lax með
grjónum. Í millimál fæ ég mér oftast
grænmeti og poppkex.“
Eins og aðrir losar hún líkamann
við vatn áður en hún fer á svið svo
vöðvarnir sjáist betur. „Vatnslosun
in er það óhollasta við þessa íþrótt.
Við byrjum á því að drekka mikið af
vatni, sex lítra á dag. Svo minnkum við
magnið og plötum þannig líkamann
því líkaminn heldur áfram að losa sig
við mikið magn af vatni.“
Verður að vera sólbrún
Keppendur í módelfitness eru afar
sólbrúnir. Margrét Edda fer í sól
brúnkumeðferð og segir brúnkuna
nauðsynlega. „Þegar húðliturinn er
dekkri þá sést betur hversu vel vöðva
rnir eru skornir. Ég fer í sólbrúnku
meðferð hjá Miso og þar fæ ég
brúnkumeðferð sem keppendur úti í
heimi nota og er víst sú allra besta.“
Með svarta beltið í taekwondo
Margrét er 23 ára og byrjaði að æfa fit
ness í fyrra og hefur sinnt íþróttinni
af heljarkrafti. Eftir mótið um helgina
hefur hún tekið þátt í sjö keppnum á
árinu. „Þetta er búið að vera rosaleg
keyrsla, nú ætla ég að taka mér pásu
og einbeita mér að starfinu, en ég fékk
nýverið nýja vinnu sem einkaþjálfari
í Sporthúsinu. Þá ætla ég að byrja að
æfa taekwondo aftur. Ég fékk svarta
beltið í sumar en hef ekkert æft að ráði
vegna fitnessæfinganna. Það er eigin
lega ekki hægt, þegar maður er að
borða fæði sem er hátt í prótínum og
lágt í kolvetni er maður lengur að jafna
sig eftir meiðsli. Ég fékk til dæmis mar
blett á æfingu og hann var heilar fjórar
vikur að hverfa. Ég gat ekki hætt á það,“
útskýrir hún.
Brjálað að gera hjá pabba
Hún byrjaði ung í íþróttum. Hún var
fimm ára þegar hún byrjaði í fim
leikum. Hún færði sig svo í listdans á
skautum sjö ára og var fljót að ná ár
angri. Hún meiddist hins vegar illa á
ökkla og þurfti að hætta. „Þá kynntist
ég taekwondo, fór á eina æfingu og
heillaðist og fór ekki aftur á skauta. Ég
er með mikið keppnisskap og er því
venjulega oft mjög fljót að ná árangri
og svo varð einnig í taekwondo.“
Margrét Edda er dóttir borgar
stjóra Reykjavíkur, Jóns Gnarr.
„Mamma og pabbi reyna að
mæta, en það er auðvitað alltaf brjál
að að gera hjá pabba. En þau styðja
mig í öllu því sem ég tek mér fyrir
hendur.“ n
54 Fólk 16.–18. nóvember 2012 Helgarblað
Undur uppeldisins
n Með kúkalyktarröskun á háu stigi
S
vanhildur Hólm þekkir það
líkt og margir aðrir foreldrar
að barnauppeldi getur tekið
á líkt og hún sagði frá í stöðu
uppfærslu á Facebook. „Það er ekki
ofsögum sagt af undrum uppeldis
ins og þeim gjöfum sem manni eru
færðar,“ segir hún og lýsir því næst
þegar hún fór inn á bað gleraugna
laus til þess að þvo sér í framan.
„Var í þann mund að skella þvotta
stykkinu framan í mig þegar ég
uppgötva að af því er ekkert ann
að en ilmandi kúkalykt. (Þetta er
enn alvarlegra í ljósi þess að ég
er með kúkalyktarröskun á háu
stigi.) Yngsta dóttirin hefur sem
sagt ákveðið að það væri heppi
legt að skeina sig með þvottapoka
og skilja hann svo eftir á viðeigandi
stað,“ segir Svanhildur sem hlær
þó að uppátækinu. „Þessu hef
ur hún náð einhvern tímann milli
þess sem hún skúraði klósettið
upp úr heilli túpu af Sensodyne
tannkremi og drekkti hálfri kló
settrúllu. Í þessu sama klósetti. Og
já, það var hljótt og ég var senni
lega að tala í símann, borða og lesa
yfir ritgerð fyrir stjúpdóttur mína í
einu á meðan aðgerðir stóðu yfir.“
n Margrét Edda Gnarr er dóttir borgarstjórans, Jóns Gnarr
n Með svarta beltið í taekwondo
Æfir
þrisvar
á dag
Byssurnar
Margrét sýnir
„byssurnar“
September 2012 Margrét Edda æfir stíft
um þessar mundir, eða þrisvar á dag.
Sjöunda mótið Eftir laugardaginn hefur Margrét Edda keppt á sjö mótum á þessu ári.
Gjafir barnanna
Svanhildur ætlaði að
skella þvottastykkinu
framan í sig þegar
hún uppgötvaði að
dóttirin hafði ákveðið
að skeina sér með því.
S
jónvarpsmaðurinn Sigur
steinn Másson hefur verið
greindur bæði með geðhvörf,
sem valda maníuköstum, og
þunglyndi. Í viðtali í nýjasta tölu
blaði Séð og heyrt segir hann frá
skrautlegasta maníukastinu sínu
sem átti sér stað þegar hann vann
að þáttunum Aðför að lögum um
Guðmundar og Geirfinnsmálin.
Hann áttaði sig á því að á Íslandi
byggi hann ekki við það öryggi sem
hann taldi sig gera. „Ég varð væni
sjúkur og fór á flótta, faldi mig hjá
vinum mínum og í sumarbústöð
um og gerði alls kyns tilraunir til að
tryggja öryggi mitt.“
Sigursteinn vinnur nú að bók þar
sem hann fer yfir þau tímabil ævi
sinnar þegar hann þurfti að leggj
ast inn á geðdeild vegna veikinda
sinna.
n Sigursteinn gerir upp veikindatímabilin í nýrri bók
„Ég varð
vænisjúkur“
A
thafnakonan Ásdís Rán
virðist ætla að dvelja á Ís
landi í desember og jan
úar og fésbókarsíðu sinni
auglýsir hún eftir vinnu á þeim
tíma. „Atvinnuauglýsing: Er laus
í aukavinnu í desember og janúar
í Rvk ef einhver gæti hugsanlega
nýtt sér það :)“ skrifar Ísdrottn
ingin en tekur ekkert fram hvernig
vinnu hún sækist eftir. Ásdísi Rán
er vissulega margt til lista lagt svo
tilboðunum mun eflaust rigna yfir
hana.
Ásdís Rán býr í Búlgaríu þar
sem hún hefur haft nóg fyrir stafni.
Hún starfar sem fyrirsæta og rekur
verslun sem selur meðal annars
undirföt, förðunarvörur og kjóla í
Icequeentískumerkinu.
n Birtir atvinnuauglýsingu á Facebook
G
uðmundur Benediktsson, fyrr
verandi fótboltakempa og nú
verandi íþróttakynnir, eyddi að
faranótt fimmtudags á spítala.
Hann reyndist vera með blóðeitrun.
„Þetta er ekki alvarlegt, en ég eyddi
nóttinni á spítala. Ég hafði verið að
naga á mér neglurnar og fékk blóð
eitrun. Mér mun batna fljótt,“ sagði
Guðmundur.
n Eyddi nótt á spítala
fékk blóðeitrun af því
að naga neglurnar