Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2012, Blaðsíða 26
Sandkorn
B
jörgun Eiríks Inga Jóhanns-
sonar úr bráðum háska
og hrikalegum aðstæðum
undan ströndum Noregs er
dæmi um gríðarlegan lífs-
vilja og heppni sem á sér vart hlið-
stæðu. Við verstu aðstæður sökk
Hallgrímur SI, skip Eiríks og félaga
hans. Það var stórviðri og gríðar-
leg ölduhæð þegar skipið missti
stýrið og tók inn á sig sjó og sökk á
skömmum tíma. Harmleikur, sem
kostaðir þrjá af fjórum úr áhöfn-
inni lífið, hófst með bilun sem gat
virst léttvæg.
Þjóðin varð agndofa þegar Ei-
ríkur lýsti því í viðtali við Kastljós
Sjónvarpsins hvernig hann komst
af frá hildarleiknum. Í smáatrið-
um sagði sjómaðurinn frá örlaga-
deginum, allt frá því að áhöfn-
inni tókst með harðfylgi að komast
frá borði og í björgunarbát þar
sem einn þeirra lést. Tveir höfðu
komist í flotbúninga en hinir voru
léttklæddir. Brotsjór skall síðar á
björgunarbátnum með þeim af-
leiðingum að þremenningarnir
sem lifðu köstuðust fyrir borð. Þá
fórst annar félagi Eiríks.
Hildarleikurinn í hafinu hélt
áfram því leiðir skildi með þeim
tveimur sem eftir lifðu. Eiríkur Ingi
lýsti því hvernig hann hugsaði um
það eitt að lifa af í aðstæðum sem
eru öllu venjulegu fólki óskiljan-
legar. Gríðarleg ölduhæð og ær-
andi hávaði frá ólgandi hafinu.
Eiríkur Ingi hugsaði um það eitt
að halda á sér hita og spara orku
á meðan hann beið í þeirri veiku
von að honum bærist hjálp í tíma.
Öll skynsemi gat þó sagt honum að
líkurnar á að hann fyndist í ógnar-
víðáttu hafsins voru hverfandi. Þá
vissi hann sem var að tíminn sem
hann átti eftir ólifaðan í ísköldu
hafinu var naumur, örfáar klukku-
stundir. En hann gafst ekki upp og
hélt æðruleysi sínu.
Lýsing Eiríks á því þegar norsk
björgunarþyrla birtist lýsir enn
betur hetjulund hans. Þegar þyrlan
flýgur yfir hann og fjarlægist syndir
hrakinn sjómaðurinn af öllu afli í
áttina til hennar og lífsins. Krafta-
verkið gerðist og honum var bjarg-
að. Eiríkur Ingi er öllum Íslending-
um fyrirmynd þess hvernig hetjur
hugsa og hegða sér við hryllilegar
aðstæður. Hann tókst af skyn-
semi á við raun sem virðist vera
óbærileg og komst af. Á sama tíma
og fólk gleðst yfir björgun hans er
nístandi sorg vegna þeirra þriggja
félaga hans sem fórust. Skips-
skaðinn undirstrikar enn og aftur
hversu stutt er milli lífs og dauða
og hve ótrygg tilveran er hjá þjóð
sem lifir af sjósókn og stöðugri
baráttu við óblíð náttúruöfl. Saga
Eiríks undirstrikar nauðsyn Slysa-
varnaskóla sjómanna sem kennir
fólki réttu viðbrögðin í sjávarháska.
Eiríkur kunni það sem þurfti til að
lifa af.
Steinunn leitandi
n Einhverjir eru nú að setja
sig í startholurnar vegna yfir-
vofandi forsetakosninga. Á
meðal þeirra sem heitastir
eru fyrir embættinu er Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir sem
búsett er í Los Angeles ásamt
eiginmanni sínum, Stefáni
Karli Stefánssyni. Steinunn hef-
ur ítrekað tjáð sig á Facebook
um þessa þrá sína að setjast
að á Bessastöðum. Hún er nú
í heimsókn á Íslandi og er um
það pískrað að hún sé að leita
að kosningastjóra og húsnæði
fyrir skrifstofu.
Enn gjaldþrota
n Björgólfur Guðmundsson,
fyrrverandi formaður banka-
ráðs Landsbankans, lýsti sig
gjaldþrota
sumarið 2009.
Setti Björg-
ólfur þar vafa-
samt met,
þar sem allar
eignir hans
þurrkuðust
út í bankahruninu. Eftir sátu
hins vegar tæplega 100 millj-
arða skuldir. Björgólfur slapp
þar með við stefnu slitastjórn-
ar Landsbankans sem vill
milljarða króna frá stjórnar-
mönnum bankans. Björgólfur
sleppur ekki undir ný lög um
gjaldþrotaskipti einstaklinga,
þar sem þeir fá hreinan skjöld
á tveimur árum. Auðmaður-
inn fyrrverandi verður því að
öllum líkindum gjaldþrota
næstu tvö ár í viðbót.
Bingi ritstýrir
n Eftir að Karl Th. Birgisson og
Pétur Gunnarsson hröktust af
tenglasíðunni Eyjunni situr
útgefandinn, Björn Ingi Hrafns-
son á ritstjórastóli. Björn Ingi
hrökklaðist úr sæti ritstjóra
Pressunnar eftir að skýrsla
rannsóknarnefndar Alþingis
upplýsti um himinháar skuld-
ir hans sem urðu til á meðan
hann var í stjórnmálum. Þá
gerðist hann útgefandi. Á
undanförnum misserum hef-
ur aðsókn að vefmiðlum hans
hrunið og obbi starfsfólks er
hættur. Fullyrt er að reynt sé
að selja Eyjuna á slikk.
Óðinn beðinn
afsökunar
n Ranghermt var í sandkorni
að Óðinn Jónsson, fréttastjóri
Ríkisútvarpsins, hefði rekið
Björgu Evu
Erlendsdóttur
fréttamann
úr starfi á
sínum tíma.
Björg Eva
hætti sjálf-
viljug og fór
á dagblaðið 24 stundir. Vinstri
grænir hafa nú komið henni í
stjórn RÚV ehf. þar sem búist
er við að hún láti til sín taka
með afgerandi hætti. Björg
Eva hefur barist gegn ýmsum
breytingum sem fylgdu hluta-
félagavæðingu RÚV og þar
með hugmyndafræði Páls
Magnússonar. Björg Eva og Óð-
inn eru beðin afsökunar.
Ég gat valið á milli
DTV og Bloomsbury
Þetta er alltaf sárt
Rithöfundurinn Gerður Kristný gat valið á milli útgefenda. – DV Útvarpskonan Sigga Lund var rekin af Léttbylgjunni. – DV
Æðruleysi Eiríks
Leiðari
Reynir Traustason
rt@dv.is
„Kraftaverk-
ið gerðist
og honum var
bjargað
N
ú eru veður enn válynd í Fær-
eyjum. Færeyskt efnahagslíf
hrundi 1989–93 af svipuðum
ástæðum og Íslandi 2008. Allir,
sem vettlingi gátu valdið, voru inni á
gafli – uppi í rúmi! – hjá öllum. Að sitja
báðum megin borðs var partur af lífs-
stíl valdastéttarinnar eins og Eðvarð T.
Jónsson lýsir vel í bók sinni Hlutskipti
Færeyja 1994. Þar birtast Færeyjar
eins skrípamynd af Íslandi. Færeyinga
greinir enn á um, að hversu miklu
leyti þessi lýsing á lífinu þar á við
þjóðina eins og hún leggur sig frekar
en valdastéttina eina. Stjórnmála-
stéttin vill auðvitað, að allir séu taldir
ábyrgir, svo að tryggt sé, að enginn
þurfi að sæta ábyrgð. Sú varð raunin.
Í Færeyjum var engin rannsóknar-
skýrsla skrifuð, ekkert saksóknara-
embætti stofnað og enginn ákærður,
þótt vitað væri, að lög voru brotin í
stórum stíl eins og Hermann Óskars-
son, hagstofustjóri í Þórshöfn, lýsti í
fyrirlestri í Háskóla Íslands mánuði
eftir hrun 2008.
Upprifjun og samanburður
Hrun Færeyja 1989–93 var mun dýpra
en hrunið hér heima 2008. Lands-
framleiðsla Færeyja dróst saman
um þriðjung líkt og gerðist við hrun
kommúnismans í Sovétríkjunum um
svipað leyti. Fimmti hver Færeyingur
flúði land, en helmingur hinna brott-
fluttu skilaði sér heim aftur nokkru
síðar. Hér heima minnkaði lands-
framleiðslan um 10% eftir hrun, og
fólksfjöldinn er nú aftur kominn upp
undir 320.000, segir Hagstofan. Hrun
Færeyja varð þeim að ýmsu leyti til
blessunar þrátt fyrir erfiðleikana.
Hrunið leiddi þeim fyrir sjónir spill-
inguna og ábyrgðarleysið, sem leiddi
m.a. af ríflegum fjárveitingum Dana
til Færeyja fyrir hrun. Færeyingar tóku
sér tak. Þeir þiggja nú mun minni fjár-
stuðning frá Dönum en áður. Reglum
um sambandið milli landsstjórnar-
innar og lögþingsins í Þórshöfn var
breytt, svo að þingmenn verða nú að
hætta á þingi, verði þeir ráðherrar,
eins og mælt er fyrir um í frumvarpi
stjórnarlagaráðs til nýrrar stjórnar-
skrár hér heima. Frá 1995 hafa 20 til 25
ráðherrar þurft að segja af sér vegna
nýrra reglna um ráðherraábyrgð. Frá
2008 hefur landið verið eitt kjördæmi
til að girða fyrir landlægan hrepparíg
og sundrung. Færeyingar tóku alvar-
lega þörfina fyrir að draga úr líkum
þess, að efnahagur landsins hryndi
öðru sinni m.a. vegna bresta í stjórn-
sýslunni.
Næsta skref: Ný stjórnarskrá
Mörgum þótti meira þurfa til. Ríkis-
stjórn Jafnaðarflokksins, Sambands-
flokksins og Fólkaflokksins með 60%
atkvæða á bak við sig lét semja frum-
varp að stjórnarskrá handa Færeyj-
um 2009 og hét því að halda þjóðar-
atkvæðagreiðslu um frumvarpið 2010.
Frumvarpið er skínandi gott. Kaflinn
um auðlindir og umhverfi er til fyrir-
myndar. Hann felur í sér, að þjóðin á
auðlindirnar og tekur gjald fyrir afnot
þeirra eða tryggir öllum jafnan aðgang
að þeim og að umgengni við auðlindir
og umhverfi skal vera sjálfbær. Texti
Færeyinga er í góðu samræmi við auð-
linda- og umhverfisákvæðin í frum-
varpi stjórnlagaráðs og hefur mann-
réttindi í hávegum.
Svik á svik ofan
Nú hljóp snurða á þráðinn. Ríkis-
stjórnin á bak við stjórnlagafrum-
varpið liðaðist í sundur, og við tók
að loknum kosningum 2011 stjórn
Sambandsflokksins, Fólkaflokksins,
Miðflokksins og Sjálfstýrisflokksins
með 57% atkvæða að baki sér. Nýja
stjórnin hætti við að halda þjóðar-
atkvæðagreiðsluna, sem fyrri stjórn
hafði lofað. Sambandsflokkurinn og
Fólkaflokkurinn, sem sátu í báðum
stjórnum, sneru m.ö.o. við blaðinu.
Sambandsflokkurinn er vanur slík-
um vinnubrögðum. Honum tókst
ásamt jafnaðarmönnum að fá dönsk
stjórnvöld til að ógilda úrslit þjóðar-
atkvæðagreiðslu 1946, þar sem meiri
hluti Færeyinga lýsti sig fúsan til að
slíta sambandinu við Danmörku,
tveim árum eftir sambandsslit Ís-
lands og Danmerkur. Kannski Sam-
bandsflokkurinn beri því við nú, að
danska stjórnin mótmælti færeyska
stjórnlagafrumvarpinu á þeirri for-
sendu, að það jafngildi sjálfstæð-
isyfirlýsingu, sem samrýmist ekki
áframhaldandi veru Færeyja í danska
konungdæminu. Auðvelt hefði verið
að mæta þeirri aðfinnslu með einni
málsgrein um óbreytt samband
landanna án þess að salta frum-
varpið.
Nú hefur spurzt, að stjórnarþing-
menn í Þórshöfn hyggist bæta gráu
ofan á svart með því að leggja drög
að afhendingu auðlindarinnar í
hendur útvegsmanna með íslenzka
laginu í andstöðu við stjórnlaga-
frumvarpið frá 2009, í andstöðu við
lögin, sem kveða á um, að fiskimið-
in séu í eigu þjóðarinnar líkt og hér
heima, og í andstöðu við alþjóðleg
mannréttindaákvæði. Stjórnarand-
staðan streitist gegn þessum áform-
um, þ.m.t. Jafnaðarflokkurinn og
Þjóðveldisflokkurinn.
Ekki hafa Færeyingar lært mikið
af óförum Íslands, ef þeir ætla að
afhenda útvegsmönnum kvótann á
rússnesku silfurfati.
Gæti þetta gerzt hér?
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
26 3.–5. febrúar 2012 Helgarblað
Kjallari
Þorvaldur
Gylfason
„Ekki hafa Færey-
ingar lært mikið
af óförum Íslands, ef þeir
ætla að afhenda útvegs-
mönnum kvótann á rúss-
nesku silfurfati.