Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2012, Blaðsíða 34
34 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 3.–5. febrúar 2012 Helgarblað
B
erglind fæddist í
Reykjavík en ólst
upp í Hafnarfirði.
Hún var í Öldutúns-
skóla, stundaði nám
við Fjölbrautaskólann í Breið-
holti og síðar við Snyrtiskóla
Íslands og lauk sveinsprófi
2003.
Berglind stundaði versl-
unarstörf með skóla. Hún var
snyrtifræðingur á Nordica Spa
á árunum 2003–2005 en hef-
ur starfað við Íslandsbanka
(Glitni) frá 2007.
Berglind er formaður For-
eldrafélags leikskólans Kórs og
gjaldkeri húsfélagsins.
Fjölskylda
Eiginmaður Berglindar er Jó-
hannes Guðni Jónsson, f. 5.9.
1980, viðskiptafræðingur.
Dætur Berglindar og Jó-
hannesar Guðna eru Þóra Silla
Jóhannesdóttir, f. 11.7. 2005;
Árdís Embla Jóhannesdóttir, f.
29.10. 2009.
Bræður Berglindar eru
Þorsteinn Ingi Kristjánsson,
f. 18.6. 1966, húsasmiður, bú-
settur í Hafnarfirði; Albert
Víðir Kristjánsson, f. 16.8.
1968, bifvélavirki, búsettur í
Noregi; Jón Dagur Kristjáns-
son, f. 16.10. 1983, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Berglindar:
Kristján Albertsson, f. 28.4.
1944, d. 4.10. 2002, skipstjóri,
og Þóra B. Jónsdóttir, f. 6.3.
1950, myndlistar- og hand-
verkskona í Reykjavík.
R
agna fæddist á Efra-
Vatnshorni í Vestur-
Húnavatnssýslu en
ólst upp á Akranesi til
sex ára aldurs en síð-
an í Reykjavík við Laugaveginn.
Hún var í Austurbæjarskólan-
um og í Gagnfræðaskólanum
við Lindargötu. Þá stundaði
hún nám við Húsmæðraskóla
Reykjavíkur.
Ragna starfaði lengi á skrif-
stofu hjá rafverktakafyrirtækinu
Segli og síðan hjá Félagi lög-
giltra rafverktaka við Hólatorg.
Hún starfaði við Alþýðubank-
ann á árunum 1974–84 og síðan
hjá sýslumanninum í Reykjavík
á árunum 1984–2007.
Ragna starfaði með Mæðra-
styrksnefnd á árunum 1991–
2004. Hún var síðan einn af
fimm stofnendum Fjölskyldu-
hjálparinnar, árið 2005, og hef-
ur starfað þar í sjálfboðastarfi
síðan. Hún sat í stjórn Mæðra-
styrksnefndar og var ritari
hennar um árabil og hefur setið
í stjórn Fjölskylduhjálparinnar
frá stofnun. Þá starfaði Ragna
mikið fyrir sjálfstæðisfélagið
Hvöt og er í fulltrúaráði sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík.
Fjölskylda
Eiginmaður Rögnu er Pálmi
Ásgeir Theodórsson, f. 9.12.
1931, fyrrv. verslunarmaður.
Fyrri maður Rögnu var Jó-
hannes Árnason, f. 18.8. 1932, d.
18.7. 1971, vélstjóri.
Sonur Rögnu og Jóhannes-
ar er Sigurður Jóhannesson, f.
28.4. 1965, húsamálari, búsett-
ur í Reykjavík en sonur hans er
Rósant Máni.
Bræður Rögnu: Jón Ingi
Rósantsson, f. 20.4. 1928, d.
9.11. 1987, klæðskerameistari í
Reykjavík; Rósant Hjörleifsson,
f. 21.8. 1933, fyrrv. leigubifreiða-
stjóri, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Rögnu voru Rós-
ant Jónsson, f. 4.4. 1904, d. 22.12.
1933, barnakennari og bóndi á
Efra-Vatnshorni, og k.h., Þórunn
María Jónsdóttir, f. 10.1. 1897, d.
17.6. 1992, húsmóðir.
H
jalti fæddist á Akur-
eyri og ólst þar upp.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólann á Akureyri
1972, guðfræðiprófi frá guð-
fræðideild Háskóla Íslands
1977, doktorsprófi í guðfræði
frá Uppsalaháskóla 1983 og
prófi í uppeldis- og kennslu-
fræði frá sama skóla 1986.
Hjalti var sóknarprestur í
Reykholti í Borgarfirði 1977–
78, aðstoðarframkvæmda-
stjóri Nordiska Ekumeniska
Institutet í Sigtuna og Upp-
sölum í Svíþjóð 1983–86,
auk þess sem hann var á
sama tíma kennari við guð-
fræðideild háskólans í Upp-
sölum og aðstoðarprestur
í Högelid í Stokkhólmi. Þá
var hann prestur fyrir Ís-
lendinga, búsetta í Svíþjóð,
1985–86.
Hjalti varð lektor við Kenn-
araháskóla Íslands frá 1986,
var þar aðstoðarrektor 1987–
90 og starfandi rektor skólans
1990–91, var dósent við Kenn-
araháskólann frá 1991–92,
dósent í kirkjusögu við guð-
fræðideild Háskóla Íslands
1992–95 og hefur verið pró-
fessor við guðfræðideildina
frá 1995.
Hjalti var frá 1990, ritstjóri
fyrir Sögu kristni á Íslandi í
1000 ár, sem Alþingi lét semja
í tilefni þúsund ára afmæl-
is kristnitökunnar, og kom út
árið 2000. Hann var formaður
Listvinafélags Hallgrímskirkju
um skeið frá 1990, sat í stjórn
Félags háskólakennara og
formaður þess um skeið, sat
í stjórn Hagþenkis um árbil,
stjórn Félags fræðibókahöf-
unda, hefur verið deildarfor-
seti guðfræðideildar Háskóla
Íslands, hefur setið í ýms-
um nefndum háskólans, s.s
kennslumálanefnd skólans og
verið fulltrúi guðfræðideildar
á Kirkjuþingi.
Rit Hjalta: Bessastadasko-
len et forsök til prestskola pa
Island 1805–46, (doktorsrit-
gerð) útg. Uppsölum 1983;
Ritgerð um kristna trúarhætti
í íslenskri þjóðmenningu, V.
bindi, útg. í Reykjavík 1988; 1.
bindi af Kristni á Íslandi. Þá
hefur hann samið ýmsar rit-
gerðir og greinar um íslenska
kirkjusögu, um samband rík-
is og kirkju, og um trú í bók-
menntum, í íslensk og erlend
fagrit. Auk þess hefur Hjalti
verið fastur pistlahöfundur
um kirkju og þjóðfélagsmál
á ýmsum netmiðlum undan-
farin ár.
Fjölskylda
Hjalti kvæntist 29.2. 1976
Ragnheiði Sverrisdóttur, f.
19.1. 1954, djákna og sviðs-
stjóra Kærleiksþjónustusviðs
Biskupsstofu. Hún er dóttir
Sverris Axelssonar, vélstjóra
hjá Hitaveitu Reykjavíkur, og
k.h., Ásu Þorsteinsdóttur hús-
móður.
Börn Hjalta og Ragnheiðar
eru Hugrún R. Hjaltadóttir, f.
7.11. 1976, mannfræðingur og
sérfræðingur á Jafnréttisstofu
en maður hennar er Guðjón
Hauksson og er dóttir þeirra
Hulda, f. 2008; Markús R.
Hjaltason, f. 8.5. 1982, tækni-
maður hjá RÚV.
Systkini Hjalta: Anna Guð-
rún Hugadóttir, f. 20.10. 1948,
námsráðgjafi, búsett í Garða-
bæ, gift Guðmundi Hall-
grímssyni lyfjafræðingi og
eiga þau fjögur börn; Krist-
inn Hugason, f. 8.12. 1958,
hrossaræktarráðunautur hjá
landbúnaðar- og sjávarút-
vegsráðuneytinu, búsettur
í Reykjavík en kona hans er
Guðlaug Hreinsdóttir og eiga
þau eina dóttur.
Foreldrar Hjalta eru Hugi
Kristinsson, f. 24.6. 1924, fyrrv.
verslunarmaður á Akureyri, og
Rósa Hjaltadóttir, f. 21.2. 1923,
d. 12.12. 2007, húsmóðir.
Ætt
Hugi er sonur Kristins, b. á
Strjúgsá og í Ytra-Dalsgerði í
Saurbæjarhreppi Jónssonar
og Guðrúnar Guðmundsdótt-
ur úr Sölvadal í Eyjafirði.
Rósa er dóttir Hjalta hús-
gagnasmiðs Sigurðssonar,
b. á Merkigili í Eyjafirði Sig-
urðssonar, b. á Sauðadalsá í
Húnavatnssýslu Sigurðssonar.
Móðir Sigurðar á Merkigili var
Magdalena Tómasdóttir Sig-
urðssonar. Móðir Hjalta var
Guðrún Rósa Pálsdóttir, b. á
Kjartansstöðum Pálssonar og
Guðbjargar Björnsdóttur.
Móðir Rósu var Anna
Jónatansdóttir, b. á Litla-
Hamri í Öngulsstaðahreppi
Guðmundssonar, b. á Upp-
sölum Jónatanssonar. Móðir
Önnu var Rósa Júlíana Jóns-
dóttir, b. á Kotungsstöðum
Guðlaugssonar og Helgu Sig-
urðardóttur.
S
igurbjörn fæddist í
Reykjavík. Hann tók
sveinspróf í blikk-
smíði frá Iðnskólan-
um í Reykjavík 1973,
tók tamningapróf á vegum Fé-
lags tamningamanna 1977 og
meistarapróf í tamningum og
kennarapróf með réttindum
1985 og hefur öll réttindi varð-
andi dóma á íslenskum hest-
um, s.s. gæðinga- og íþrótta-
dómararéttindi og réttindi til
að útskrifa dómara á þessu
sviði.
Sigurbjörn var blikksmiður
hjá Nýju blikksmiðjunni 1971–
73 og hefur verið sjálfstæður
atvinnurekandi við hesta-
tamningar og sölu á hrossum
innanlands og erlendis frá
1973.
Hann hefur sinnt markaðs-
málum er lúta að kynningu og
sölu á íslenska hestinum og
unnið á margvíslegan hátt að
framgangi hans víða um heim
um langt árabil.
Sigurbjörn hefur kennt
reiðmennsku við Hólaskóla,
hefur verið einn helsti próf-
kennari skólans á því sviði og
unnið ötullega að uppbygg-
ingu hestabrautar skólans.
Hann hefur verið formaður
menntanefndar Félags tamn-
ingamanna og Hólaskóla. Sig-
urbjörn var formaður Félags
tamningamanna 1979–84 og
varaformaður Hestamanna-
félagsins Fáks 1983–88, auk
þess sem hann hefur gegnt
fjölda annarra nefnda- og
trúnaðarstarfa fyrir hesta-
íþróttina.
Sigurbjörn hefur unn-
ið á annað hundrað Íslands-
meistaratitla í hestaíþróttum
og fleiri slíka titla en nokk-
ur annar maður. Hann hefur
keppt á flestum heimsmeist-
aramótum íslenska hests-
ins og er fjórtánfaldur heims-
meistari auk þess sem hann
hefur sett fjölda Íslands- og
heimsmeta í skeiðgreinum.
Hann hefur fengið hæstu
einkunn fyrir kynbótahross
á sýningum og fyrstu verð-
laun fyrir ótal hross. Sigur-
björn hefur verið kosinn af
Landssambandi hestamanna
knapi ársins ótal sinnum og
besti skeiðreiðarmaður ársins
mörgum sinnum og kosinn
íþróttamaður ársins af Hesta-
íþróttasambandi Íslands og
Landssambandi hestamanna
í fjölda ára, var oft titlaður
íþróttamaður hestaíþróttar-
innar af hestaíþróttahreyfing-
unni, var valinn íþróttamað-
ur ársins 1993 af lesendum
DV og ýmist í efstu sætum
eða efstur á heimslista World
Rank Fife. Hann var kjörinn
íþróttamaður ársins árið 1993
og hefur fimm sinnum verið í
hópi þeirra tíu efstu sem þar
koma til álita.
Sigurbjörn er höfundur
bókarinnar Á fákspori, útg,
1982. Hann gaf út kennslu-
myndband í reiðmennsku,
Tölt, 1999, gaf út kennslu-
diskinn Skeið, 2001 og hefur
skrifað fjölda faggreina um ís-
lenska hestinn í íslensk og er-
lend tímarit.
Sigurbjörn var sæmdur
gullmerki og kjörinn heiðurs-
félagi Félags tamningamanna
árið 2002 og sæmdur riddara-
krossi íslensku fálkaorðunnar
árið 2004.
Fjölskylda
Kona Sigurbjörns er Fríða
Hildur Steinarsdóttir, f. 4.6.
1957, húsmóðir. Foreldrar
hennar: Steinar G. Jóhanns-
son, f. 23.7. 1928, nú látinn,
forstjóri og vélsmiður, og
Sigur björg Guðjónsdóttir, f.
2.5. 1930, forstjóri.
Börn Sigurbjörns og Fríðu
Hildar: Steinar, f. 27.5. 1977,
reiðkennari og tamninga-
maður í Bandaríkjunum en
kona hans er Kristín Ósk-
arsdóttir, starfsmaður við
bandarískt flugfélag og er
dóttir þeirra Fríða Hildur;
Styrmir, f. 6.3. 1980, nemi,
búsettur á Oddhóli í Rangár-
vallasýslu og er dóttir hans
Sigrún Heiða; Sylvía, f. 21.8.
1984, reiðkennari og tamn-
ingamaður frá Hólum, búsett
á Oddhóli en unnusti hennar
er Árni Björn Pálsson; Sara, f.
26.10. 1991, í framhaldsnámi
í hestafræði á Hólum; Sigur-
björn, f. 4.11. 1993, nemi við
Verkmenntaskólann á Sel-
fossi.
Systkini Sigurbjörns:
Ágústa Hafdís, f. 2.11. 1944,
húsmóðir í Reykjavík; Guð-
björg Ólafía, f. 11.11. 1945,
húsmóðir og matráðskona í
Reykjavík; Elínborg, f. 13.5.
1948, verkakona í Reykjavík;
Bárður Sigurður, f. 8.9. 1956,
borgarstarfsmaður, búsettur
í Reykjavík.
Foreldrar Sigurbjörns:
Bárður Sigurður Bárðar-
son, f. 14.7. 1918, d. 8.11.
1974, bifreiðarstjóri, og k.h.,
Helga Guðjónsdóttir, f. 15.5.
1920, d. 4.11. 2004, húsmóð-
ir. Bárður var bílstjóri Ólafs
Thors, Jóhanns Hafstein og
síðast Einars Ágústssonar.
Ætt
Bárður var sonur Bárð-
ar Sigurðssonar, togara-
sjómanns hjá Kveldúlfi, og
Guðbjargar Ólafíu Magnús-
dóttur húsmóðir, þau bjuggu
á Ísafirði og síðar í Reykjavík.
Foreldrar Bárðar Sigurðs-
sonar voru Sigurður Haf-
liðason á Ísafirði og Salome
Björg Bárðardóttir. Foreldr-
ar Guðbjargar Ólafíu voru
Magnús Oddgeirsson skip-
stjóri og Björg Ólafsdóttir.
Helga var dóttir Guð-
jóns, verkamanns og mót-
orista í Reykjavík Þorbergs-
sonar, á Ísafirði. Móðir
Guðjóns var Helga Jónsdótt-
ir. Móðir Helgu var Eggerts-
ína húsmóðir Eggertsdóttir,
verkamanns í Reykjavík Egg-
ertssonar. Móðir Eggertsínu
var Elínborg Magnúsdóttir.
Sigurbjörn Bárðarson
Tamningameistari og knapi
Berglind Ósk Kristjánsdóttir
Snyrtifræðingur og bankamaður
Ragna Rósantsdóttir
Húsmóðir og sjálfboðaliði við Fjölskylduhjálpina
Hjalti Hugason
Prófessor í kirkjusögu við Háskóla Íslands
60 ára sl. þriðjudag
30 ára á föstudag
80 ára sl. þriðjudag
60 ára á laugardag