Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 6
Nú förum
við að skoða
möguleikana
á því að
gera þetta
þannig að
kostnaður-
inn sé innan
þess ramma
sem íslensk
kvikmynda-
gerð ræður
við.
Ísland vermir fyrsta sætið í árlegri
úttekt Alþjóðaefnahagsráðsins
(World Economic Forum) á kynja-
jafnrétti, sjöunda árið í röð. 145 ríki
voru tekin til greina í úttektinni þar
sem lagt er mat á stöðuna á fjórum
sviðum; út frá aðgengi að heilbrigð-
is- og félagsþjónustu, aðgengi að
menntun, þátttöku í stjórnmálum
og efnahagslegri stöðu þar sem
horft er til atvinnuþátttöku, launa-
jafnréttis, heildaratvinnutekna og
hlutfalls kynja meðal stjórnenda og
sérfræðinga.
Það sem Íslandi er helst talið
til tekna er jafnt aðgengi stúlkna
og drengja að menntun og völd
kvenna, þ.e. í forsetastóli og í stóli
forsætisráðherra en fæðingaror-
lofið, sér í lagi 90 dagar fyrir feður,
á einnig þátt í þessum árangri Ís-
lands. Norðurlandaþjóðirnar eru
sem fyrr í efstu sætum listans en
það vekur athygli að Danmörk er
ekki í efstu sætum listans í ár, fellur
úr 5. sæti í það 14. Á eftir Íslandi
er Noregur í öðru sæti, Finnland í
þriðja og Svíþjóð í því fjórða.
Í úttektinni segir að tæp 20%
vanti á til að jafna stöðu kynjanna
að fullu meðal þessara þjóða. Í
fimmta sæti er Írland, Rwanda í
sjötta sæti og Filippseyjar í því
sjöunda. -hh
B orgarráð samþykkti í gær tillögu borgarstjóra um að ganga til við-ræðna við RVK Studios um alhliða
kvikmyndaver sem verður hluti af fram-
tíðarmynd Gufuness. Baltasar Kormákur,
kvikmyndaleikstjóri og einn eigenda RVK
Studios, segir hugmyndina á frumstigi og
næsta skref sé að skoða aðstæður, finna
fjárfesta og komast að samkomulagi um
verð. „Ef það gengur allt upp þá höfum við
mikinn áhuga á að sjá hvort hægt sé að
endurhanna húsið og byggja þarna kvik-
myndaver. Húsið er í hálfgerðri rúst eins
og er, þannig að það er margt sem eftir er
að skoða.“
Baltasar segist hafa haft þessa hug-
mynd lengi og bæði hann og aðrir fulltrúar
kvikmyndaiðnaðarins hafi átt í viðræðum
við marga borgarstjóra um möguleikann
á að reisa kvikmyndaver í Reykjavík.
„Þegar þessi möguleiki opnaðist ákvað ég
að skoða hvort ég og mitt fyrirtæki gæt-
um gert þetta og nú förum við að skoða
möguleikana á því að gera þetta þannig að
kostnaðurinn sé innan þess ramma sem ís-
lensk kvikmyndagerð ræður við.“
Spurður hvort hugmyndin sé að leigja
kvikmyndaverið jafnframt út til erlendra
kvikmyndafyrirtækja segir Baltasar að sá
möguleiki sé vissulega fyrir hendi. „Hér
hefur verið töluvert af erlendum kvik-
myndafyrirtækjum við tökur, mest auðvit-
að úti í náttúrunni, og það er ekkert því til
fyrirstöðu að sá möguleiki opnist að hægt
sé að taka meira upp hér. Hins vegar er
ekki síður mikilvægt að gera þetta þannig
að íslensk kvikmyndagerð geti nýtt sér
það. Ég hef sjálfur rekið kvikmyndaver í
Reykjavík, sem gekk bara mjög vel, en það
grundvallaðist á því að menn fengu þar að-
stöðu fyrir lítinn pening svo íslenska fram-
leiðslan réði við það. Það er grunnurinn
að því að þetta sé framkvæmanlegt, því
eftirspurnin erlendis frá er ekki það mikil
að hægt sé að gera ráð fyrir erlendum
verkefnum í tökum hér allt árið um kring.
Það þarf að hugsa þetta þannig að allir
möguleikar séu til staðar.“
Baltasar hefur þegar ráðið Pál Hjaltason
arkitekt til að forvinna hugmyndir að nýt-
ingu kvikmyndaversins og gera kostnaðar-
áætlun. „Ef fjárhagshliðin virðist vera yfir-
stíganleg förum við síðan að útfæra þær
hugmyndir.“
Eins og er hefur Íslenska gámafélagið
svæðið til umráða en leigusamningur þess
rennur út í árslok 2018. Baltasar segist þó
hafa vilyrði fyrir því að húsið losni mun
fyrr. „Það tekur tíma að endurbyggja og
skipuleggja og reyna að láta þennan draum
rætast. En vonandi gengur þetta allt saman
upp og íslenskt kvikmyndaver verður að
veruleika.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Úttekt „Ísland Best Í heimi“
Ísland í fyrsta sæti í kynjajafnrétti
Fæðingarorlofið, sér í lagi 90 dagar fyrir
feður, á stóran þátt í árangri Íslands.
kvikmyndir Borgin gengur til viðræðna við rvk studios
Baltasar vill byggja
kvikmyndaver í Gufunesi
Borgarráð hefur samþykkt að ganga til viðræðna við RVK Studios um byggingu kvikmyndavers
í Gufunesi. Baltasar Kormákur segir hugmyndina á frumstigi en gangi allt upp verði íslenskt
kvikmyndaver að veruleika á næstu árum.
„Eftirspurnin erlendis frá er ekki það mikil að hægt sé að gera ráð fyrir erlendum verkefnum í tökum hér allt árið um kring. Það
þarf að hugsa þetta þannig að allir möguleikar séu til staðar,“ segir Baltasar Kormákur um uppbyggingu íslensks kvikmynda-
vers.
TAXFREE
SÓFAR
Allir sófar á taxfree tilboði*
CLEVELAND
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga.
Dökk- eða ljósgrátt slitsterkt áklæði.
Stærð: 231 × 140 × 81 cm 96.766 kr. 119.990 kr.
ELLY
Þriggja sæta sófi. Litir: Ljós- og dökkgrár, gráblár,
sand bleikur og dustygrænn. Stærð: 183 x 82 x 85 cm 80.637 kr. 99.990 kr.
COSTA
Tungusófi. Vinstri tunga. Hvítt eða svart bongo áklæði.
Stærð: B:340 D:240/163 cm
322.573 kr. 399.990 kr.
Þú finnur
sófaTAXFREE
blaðið á
husgagnahollin.is
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum
og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður viðisauka-
skatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið
á kostnað Húsgagnahallarinnar. Gildir
ekki á Kamma afmælissófanum.
www.husgagnahollin.is
558 1100
TAXFREE
SÓFAR
Allir sófar á taxfree tilboði*
Reykjavík, Akureyri og Ísafirði www.husgagnahollin.is
Húsgagnahöllin 50 ára
* Taxfree tilboðið gildir bara á sófum og jafngildir 19,35% afslætti.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður viðisaukaskatt af söluverði. Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallar-innar. Gildir ekki á Kamma afmælissófanum.
CLEVELAND
Tungusófi. Hægri eða vinstri tunga. Dökk- eða ljósgrátt slitsterkt áklæði.Stærð: 231 × 140 × 81 cm 96.766 kr. 119.990 kr.
TAXFREE
SÓFAR
LÝKUR UM
HELGINA
NÝTTU TÆKIFÆRIÐ
íslensk hönnun í gulli og silfri
Líttu við hjá okkur
á nýjum stað
Skólavörðustíg 18
FRIDASKART.IS
G U L L S M I Ð U R - S K A R TG R I PA H Ö N N U Ð U R
6 fréttir Helgin 20.-22. nóvember 2015