Fréttatíminn - 20.11.2015, Síða 8
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
MEÐ VIRÐINGU
OG KÆRLEIK Í 66 ÁR
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
www.útför.is
Greiði fyrrum starfsmanni milljónir
Dómsmál lanDspítali DæmDur í héraðsDómi
l andspítalinn hefur verið dæmdur til að greiða fyrr-verandi starfsmannastjóra
spítalans 26,5 milljónir króna
auk dráttarvaxta og laun frá 1.
desember 2014 til 31. maí 2017.
Greiðslurnar eru í samræmi við
starfslokasamning sem gerður
var við hann í maí fyrir tveimur
árum. Landspítalinn taldi að Björn
Zöega, þáverandi forstjóri LSH,
hefði ekki haft heimild til að gera
umræddan starfslokasamning og
rifti honum.
Þá var staðhæft að starfsmanna-
stjórinn hefði hafnað boði um að
koma aftur til starfa og taka að sér
önnur verkefni hjá spítalanum.
Héraðsdómur féllst ekki á skýr-
ingar forsvarsmanna Landspítal-
ans. Einu fyrirvararnir sem starfs-
mannastjórinn hefði gert væru
að halda óbreyttum launakjörum
úr fyrra starfi. Þá taldi dómurinn
að þáverandi forstjóra spítalans
hefði verið heimilt að gera slíkan
samning.
Héraðsdómur dæmdi því spítal-
ann til að greiða starfsmannastjór-
anum 26,5 milljónir króna auk
dráttarvaxta og laun samkvæmt
starfslokasamningnum.
Björn Zöega, fyrrum forstjóri Land-
spítalans.
sveitarstjórnarmál Barátta um perlu Breiðafjarðar
Sveitarstjórn Reykhólahrepps segir að Flatey sé órjúfanlegur þáttur í sögu landsvæðisins þar sem
hreppurinn er nú. Íbúar Flateyjar leituðu álits sveitarstjórnar vegna hugmynda um að stjórnsýsla
þeirra færist til Stykkishólms.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps vill halda perlu Breiðafjarðar, Flatey, áfram innan sinna vébanda. Mynd/Kolbrún Ragna
m iklir hagsmunir eru fólgnir í því að stjórnsýsla um Flatey (Flateyjarhrepp hinn forna) sé
í höndum Reykhólahrepps, segir í svari
sveitarstjórnar Reykhólahrepps, þar sem
Flatey sé órjúfanlegur þáttur í sögu land-
svæðisins sem nú er Reykhólahreppur,
bæði í ættfræðilegu og menningarlegu
tilliti. Svarið er til komið vegna erindis
frá 6 íbúum Flateyjar, allra íbúa sem þar
hafa lögheimili, varðandi viðhorf sveitar-
stjórnar Reykhólahrepps til þess að stjór-
nsýsla Flateyjar færist til Stykkishólms.
„Reykhólahreppur á mikið land í Flat-
ey og myndi ekki hafa hagsbót af því að
Stykkishólmsbær færi með stjórnsýslu
eyjunnar. Þá markar eyjan einnig það
svæði sem heyrir undir Reykhólahrepp í
víðari skilningi, þ.e. undirstaða þorpsins
á Reykhólum veltur á því að Þörunga-
verksmiðjan geti sótt um eyjarnar þang
og þara. Sveitarstjórn Reykhólahrepps
á erfitt með að sjá grundvöll fyrir því að
það gæti komið íbúum Flateyjar betur
ef stjórnsýsla eyjunnar heyrði undir
Stykkishólmbæ. Íbúar í Flatey sækja
þjónustu í Stykkishólm, verslanir o.fl.
Það á líka við um aðra íbúa sveitarfélags-
ins þegar þeir leita til Búðardals, Hólma-
víkur eða Reykjavíkur. Þeim þáttum sem
falla undir þjónustu sveitarfélags hefur
Reykhólahreppur sinnt eftir bestu getu,
eins og félagsþjónustu, þjónustu bygg-
ingafulltrúa o.fl. og hafa íbúar ekki þurft
að sækja þá þjónustu annað. Alltaf má
gera samninga á milli sveitarfélaga um
tiltekna þjónustu, henti það íbúum betur,
það gæti átt við um félagsstarf aldraðra
o.þ.h.
En betur má ef duga skal og hafa íbúar
með erindi sínu komið á framfæri við
sveitarstjórn að þeim finnist þeir ekki til-
heyra sveitarfélaginu að fullu. Það verður
því verkefni sveitarfélagsins að taka
betur utan um íbúana og gera þá að meiri
þátttakendum í daglegri stjórnsýslu og
tekur sveitarstjórn því verkefni fagnandi
og mun gera sitt besta,“ segir í svari
sveitarstjórnar Reykhólahrepps sem
leggst gegn því að stjórnsýsla Flateyjar
færist til Stykkishólmsbæjar.
Flateyjarhreppur var einn þeirra
hreppa Austur-Barðastrandarsýslu sem
sameinaðir voru í Reykhólahrepp. -jh
Reykhólahreppur
vill halda Flatey
Reykhóla-
hreppur á
mikið land
í Flatey og
myndi ekki
hafa hags-
bót af því að
Stykkishólms-
bær færi með
stjórnsýslu
eyjunnar.
8 fréttir Helgin 20.-22. nóvember 2015