Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 16
H
Hryðjuverkin í París í liðinni viku vekja
sterkar tilfinningar, hrylling og ótta. Það er
að vonum þar sem saklausu fólki er slátrað
með viðbjóðslegum hætti. Við finnum jafn-
framt til samkenndar með þeirri þjóð sem
um sárt á að binda, eins og var eftir hryðju-
verkaárásirnar á Bandaríkin haustið 2001 –
og fleiri slíkar, fyrir skemmstu er rússnesk
farþegaþota, þéttsetin ferðamönnum, var
sprengd á flugi yfir Egyptalandi. Þá, líkt
og í París, lýstu hryðjuverka-
samtökin Ríki íslams hermd-
arverkinu á hendur sér.
Viðbrögð hernaðarvelda
eins og Bandaríkjanna, Rúss-
lands og Frakklands við
slíkum árásum eru fyrirsjá-
anleg. Bandaríkin brugð-
ust við af hörku fyrir fjórtán
árum. Rússlandsforseti hefur
heitið hefndum vegna voða-
verksins er farþegaþotan var
sprengd, lýst því yfir að þeir
sem bera ábyrgð á tilræðinu verðir leitaðir
uppi og þeim refsað. Hert verði á sprengju-
árásum í Sýrlandi vegna árásarinnar á flug-
vélina. Frakklandsforseti hefur með sama
hætti sagt Frakkland í stríði í kjölfar hinna
hörmulegu atburða í París. Sótt verði gegn
hryðjuverkamönnunum og þeim tortímt.
Forsetinn hefur fylgt þeim orðum eftir með
loftárásum á vígi Ríkis íslams og ljóst er að
Frakkar munu auka hernaðaraðgerðir sínar,
enda segir Frakklandsforseti Sýrland verk-
smiðju hryðjuverkamanna.
Brýnt er að finna ódæðismenn sem að
slíkum ógnarverkum standa sem og vitorðs-
menn þeirra um leið og öllum ráðum er beitt
til þess að koma í veg fyrir frekari hermdar-
verk, sem menn óttast vissulega. Þar verða
þjóðir að standa saman. Spurningin er hins
vegar hvernig á að bregðast við. Þar er þjóð-
arleiðtogum vandi á höndum. Ganga skal á
milli bols og höfuðs á hættulegum hryðju-
verkasamtökum en hvort mestum árangri
skilar að skjóta í tætlur það sem eftir er af
Sýrlandi skal ósagt látið. Fram hefur komið
hjá franska blaðamanninum Nicolas Hénin,
sem í tíu mánuði var gísl Ríkis íslams, að
slíkar sprengjuárásir geri illt verra. Hann
segir að sársauki þeirra sem fyrir hryðju-
verkum verða, sorg, vonir og líf snerti
hryðjuverkamennina ekki. Veröld þeirra sé
önnur. Þeir kynni sig fyrir almenningi sem
ofurhetjur, en séu í raun brjóstumkennan-
legir; götukrakkar á hugmyndafræði- og
valdafylliríi. Blaðamaðurinn lýsir reynslu
sinni af félögum Ríkis íslams, sem honum
fannst jafnvel heimskari en þeir voru illir
– en þó ætti aldrei að vanmeta heimsku til
morða. Hann metur það svo að sprengju-
árásir í hefndarskyni séu tákn um réttláta
reiði, en engu að síður mistök. Hryðjuverka-
samtökin geri ráð fyrir sprengingum, það
sem þau óttist sé samstaða. Með aðgerðum
sínum reyni þau að sá fræjum sundrungar.
Samtökin muni falla en það verði vegna póli-
tískrar samstöðu.
Á svipuðum nótum talaði Ólöf Nordal inn-
anríkisráðherra þegar hryðjuverkin í París
voru rædd á Alþingi. Ekki mætti ala á ótta
í kjölfar hryðjuverkanna heldur reisa fána
frelsis enn hærra á loft þegar ráðist væri
á grunngildi samfélagsins. Eina leiðin til
að nálgast ógn af þessu tagi væri að taka
höndum saman við samstarfslönd gegn
ógnarvánni.
Um leið verða vestræn lönd að líta sér
nær. Mörg dæmi eru um það að ungir menn
sem þar hafa orðið utanveltu finni sér sama-
stað í öfgasamtökum. Á það benti Árni Páll
Árnason alþingismaður í sömu umræðu og
sagði það merkilegt að ungir múslimar sem
fremdu hryðjuverk og ungir menn vestan-
hafs sem fremdu fjöldamorð ættu sér sam-
eiginlegan bakgrunn. Í hryðjuverkum væri
oftast um að ræða unga múslima sem alist
hefðu upp í viðkomandi ríkjum en upplifðu
sig félagslega veikburða og fyndu sig hvorki
í vinnu né skóla. Lausnin fælist í félagsleg-
um aðgerðum heima fyrir.
Danir eru meðal þeirra þjóða sem orð-
ið hafa fyrir árásum róttækra íslamista.
Sterkasta svar þjóða sem fyrir slíku verða
er, að mati forsætisráðherra Dana, „að halda
áfram að lifa og hafna því að vera ögrað.
Ef við þorum ekki lengur að sitja á verönd
kaffihúsa, þá höfum við tapað.“
Viðbrögð við hryllingnum í París
Hafna ber ögruninni
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA HjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39
Nýjar rannsóknir hafa
leitt í ljós að mannleg
eymd er margbrotnari
en fyrri rannsóknir
sýndu. Þetta breytir
öllu, útkoman er
nánast allt önnur.
LÓ
A H
LÍN Samfélags-
röntgen
16 viðhorf Helgin 20.-22. nóvember 2015