Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.11.2015, Page 18

Fréttatíminn - 20.11.2015, Page 18
F yrir fimm árum kom upp sú hugmynd að gera heimildarmynd um KK og mér leist strax vel á hugmyndina. Bókhaldsdeildinni leist ekki eins vel á hana, en ég hef gaman af svona gæluverkefnum,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson, útgefandi hjá Forlaginu. „Með myndinni er svo safnplata með átján lögum, þar af tveimur sem ekki hafa komið út áður,“ segir Jóhann. „Svo er 64 síðna bók þar sem Kristján talar um tildrög hvers lags, sem Árni Matthíasson skrifar. Í rauninni er þetta eins og bókaútgáfa með tveimur diskum. Einum hljóðdisk og einum mynd- disk,“ segir Jóhann Páll. „Heimildarmyndin um Kristján er gerð af kvikmyndargerðar- manninum Steingrími Karlssyni sem meðal annars gerði mynd Sigur Rósar, Heima. Mest af upp- tökunum voru gerðar á árunum 2010 og 2011,“ segir Jóhann. „Svo hafa þeir bara verið að dúlla sér við þetta. Af minni hálfu langaði mig að gera portrett af listamann- inum KK fyrir framtíðina, og ég var ekkert í einhverjum útgáfupæl- ingum endilega. Nú er þetta komið í mjög vandaðan pakka,“ segir Jóhann sem er ekki ókunnugur plötuútgáfu þó hann hafi starfað við bókaútgáfu í áratugi. „Ég gaf út Á bleikum náttkjólum með Megasi og Spilverki þjóðanna á sínum tíma, sem og Vísnaplöturn- ar sígildu og fyrstu plötu Bubba Morthens, Ísbjarnarblús,“ segir hann. „Svo gaf ég út plötuna Svona eru menn, með KK árið 2008. Ég er bara í gæluverkefnum þegar kemur að tónlist.“ Kristján er vanari því að hlusta á sjálfan sig, en að sjá sig á mynd. Hann er hlédrægur að eðlisfari. „Þú hefur ekki heyrt mig mikið tala um þessa mynd,“ segir hann kíminn. „Ég er ekki að ljóstra upp neinum leyndarmálum í myndinni. Ég er aðallega að baksa eitthvað í bátnum og tala um leið um lífið og tilveruna. Ég er samt mjög ánægð- ur með útkomuna,“ segir hann. Pakkinn kemur út á þriðjudag og í tilefni af því verður útgáfufögn- uður í Bíó Paradís, þriðjudaginn 24. nóvember klukkan 17. Fyrst verða léttar veitingar og KK tekur lagið, en klukkan 18 verður sýning á myndinni og ókeypis inn. Þetta verður eina skiptið sem myndin verður sýnd í kvikmyndahúsi. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Gæluverkefni sem vatt upp á sig Kristján Kristjánsson, KK, er þjóðargersemi og hefur verið frá því hann stökk inn í íslenskt tónlistarlíf með sinni fyrstu plötu fyrir hálfum þriðja áratug. Á þeim tíma hefur hann gefið út fjölmargar sólóplötur en einnig plötur með Magnúsi Eiríkssyni og öðrum. Undanfarin fimm ár hefur verið unnið að heimildarmynd um KK sem gefin verður út í næstu viku. Í heimildarmyndinni Á Æðruleysinu fylgjumst við með KK og félögum á tónleikum og bregðum okkur í róður með honum á trillunni Æðruleysinu þar sem hann segir okkur frá sjálfum sér og deilir með okkur sýn sinni á lífið og tilveruna. Einnig fylgir geisladiskur með átján perlum úr lagasafni KK, þar á meðal tvö lög sem ekki hafa verið gefin út áður og í ríkulega mynd- skreyttum bæklingi deilir KK með okkur sögunum á bak við hvert lag. Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi segir verkefnið gæluverkefni, en er þó ekki í fyrsta sinn að gefa út tónlist. KK og Jóhann Páll Valdimarsson um borð í Æðruleysinu. Ljósmynd/Hari „Ég er aðallega að baksa eitthvað í bátnum og tala um leið um lífið og til- veruna. Ég er samt mjög ánægður með útkomuna.“ KK um heimildar- myndina Á æðruleysinu. 18 viðtal Helgin 20.-22. nóvember 2015 Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.