Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 18
F yrir fimm árum kom upp sú hugmynd að gera heimildarmynd um KK og mér leist strax vel á
hugmyndina. Bókhaldsdeildinni
leist ekki eins vel á hana, en ég hef
gaman af svona gæluverkefnum,“
segir Jóhann Páll Valdimarsson,
útgefandi hjá Forlaginu.
„Með myndinni er svo safnplata
með átján lögum, þar af tveimur
sem ekki hafa komið út áður,“
segir Jóhann. „Svo er 64 síðna bók
þar sem Kristján talar um tildrög
hvers lags, sem Árni Matthíasson
skrifar. Í rauninni er þetta eins og
bókaútgáfa með tveimur diskum.
Einum hljóðdisk og einum mynd-
disk,“ segir Jóhann Páll.
„Heimildarmyndin um Kristján
er gerð af kvikmyndargerðar-
manninum Steingrími Karlssyni
sem meðal annars gerði mynd
Sigur Rósar, Heima. Mest af upp-
tökunum voru gerðar á árunum
2010 og 2011,“ segir Jóhann. „Svo
hafa þeir bara verið að dúlla sér
við þetta. Af minni hálfu langaði
mig að gera portrett af listamann-
inum KK fyrir framtíðina, og ég
var ekkert í einhverjum útgáfupæl-
ingum endilega. Nú er þetta komið
í mjög vandaðan pakka,“ segir
Jóhann sem er ekki ókunnugur
plötuútgáfu þó hann hafi starfað
við bókaútgáfu í áratugi. „Ég gaf
út Á bleikum náttkjólum með
Megasi og Spilverki þjóðanna á
sínum tíma, sem og Vísnaplöturn-
ar sígildu og fyrstu plötu Bubba
Morthens, Ísbjarnarblús,“ segir
hann. „Svo gaf ég út plötuna Svona
eru menn, með KK árið 2008. Ég
er bara í gæluverkefnum þegar
kemur að tónlist.“
Kristján er vanari því að hlusta
á sjálfan sig, en að sjá sig á mynd.
Hann er hlédrægur að eðlisfari.
„Þú hefur ekki heyrt mig mikið
tala um þessa mynd,“ segir hann
kíminn. „Ég er ekki að ljóstra upp
neinum leyndarmálum í myndinni.
Ég er aðallega að baksa eitthvað í
bátnum og tala um leið um lífið og
tilveruna. Ég er samt mjög ánægð-
ur með útkomuna,“ segir hann.
Pakkinn kemur út á þriðjudag og
í tilefni af því verður útgáfufögn-
uður í Bíó Paradís, þriðjudaginn
24. nóvember klukkan 17. Fyrst
verða léttar veitingar og KK tekur
lagið, en klukkan 18 verður sýning
á myndinni og ókeypis inn. Þetta
verður eina skiptið sem myndin
verður sýnd í kvikmyndahúsi.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Gæluverkefni
sem vatt upp á sig
Kristján Kristjánsson, KK, er þjóðargersemi og hefur verið
frá því hann stökk inn í íslenskt tónlistarlíf með sinni fyrstu
plötu fyrir hálfum þriðja áratug. Á þeim tíma hefur hann
gefið út fjölmargar sólóplötur en einnig plötur með Magnúsi
Eiríkssyni og öðrum. Undanfarin fimm ár hefur verið unnið
að heimildarmynd um KK sem gefin verður út í næstu viku. Í
heimildarmyndinni Á Æðruleysinu fylgjumst við með KK og
félögum á tónleikum og bregðum okkur í róður með honum á
trillunni Æðruleysinu þar sem hann segir okkur frá sjálfum sér
og deilir með okkur sýn sinni á lífið og tilveruna. Einnig fylgir
geisladiskur með átján perlum úr lagasafni KK, þar á meðal
tvö lög sem ekki hafa verið gefin út áður og í ríkulega mynd-
skreyttum bæklingi deilir KK með okkur sögunum á bak við
hvert lag. Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi segir verkefnið
gæluverkefni, en er þó ekki í fyrsta sinn að gefa út tónlist.
KK og Jóhann Páll Valdimarsson um borð í Æðruleysinu. Ljósmynd/Hari
„Ég er aðallega að baksa
eitthvað í bátnum og tala
um leið um lífið og til-
veruna. Ég er samt mjög
ánægður með útkomuna.“
KK um heimildar-
myndina Á æðruleysinu.
18 viðtal Helgin 20.-22. nóvember 2015
Í S L E N S K H Ö N N U N O G S M Í Ð I
LAUGAVEGI 61 KRINGLUNNI SMÁRALIND