Fréttatíminn - 20.11.2015, Page 24
Mér fannst
á tímabili að
konur gætu
gert allt sem
þær ætluðu
sér en eftir
því sem ég
eldist hef
ég komist
að því að
það er ekki
alveg rétt.
bókina, án þess þó að gefa stelpunum
hana í jólagjöf. Þá náði hugsunin ekk-
ert lengra, en allavega náði ég að klára
hana og það var áfangi í sjálfu sér. Ég
vissi þó að ég yrði ekki sátt við það og
fékk Óðinsauga til að gefa hana út. Eftir
að það var ákveðið tók hún miklum
breytingum og ég fullkláraði hana ekki
fyrr en núna í sumar.“
Flókið fjölskyldumynstur
Kápumynd Leitarinnar að Gagarín er
eftir eiginmann Sifjar, Búa Kristjáns-
son listmálara, sem hún giftist 27 ára og
gekk sonum hans þremur í móðurstað,
en þá átti hún sjálf eina dóttur úr fyrra
sambandi. Síðan hafa tvær dætur bæst í
hópinn og það liggur beint við að spyrja
hvernig hún hafi komið öllu þessu í
verk með sex börn á heimilinu og hvort
ekki hafi verið flókið að púsla þessum
tveimur fjölskyldum saman. „Ég kem úr
mjög normal fjölskyldu, mamma, pabbi
og sex börn, og fer yfir í mjög flókið
fjölskyldumynstur. Maðurinn minn var
ekkill með þrjá syni, ég átti eina dóttur
og síðan eignumst við tvær dætur. Það
eru sex börn samtals búin að vera með
lögheimili hjá okkur í gegnum tíðina og
það hefur oft verið flókið að púsla þessu
saman, en við eigum góða að, góðar
ömmur og afa og það hefur allt gengið
vel. Í dag eru þær tvær yngstu einar
eftir á heimilinu, þannig að það er orðið
mun rólegra hjá okkur.“
Föðurmissir kveikjan að skrifunum
Sif byrjaði að skrifa Leitina að Gagarín
fljótlega eftir að faðir hennar, Sigfús J.
Johnsen, dó og í sumar þegar hún var
að ganga frá bókinni til prentunar dó
barnsfaðir hennar eftir sex mánaða
veikindi. Það hafði allt sín áhrif. „Það
er þetta kaos í lífinu, þessi lífsreynsla
sem maður lendir í sem fær mann til
að skrifa. Ég missti pabba minn fertug,
sem er svo sem ekkert ungt, en ég
hafði alltaf verið mikil pabbastelpa og
mér fannst það mjög erfitt. Ég er yngst
af systkinunum og þegar ég var sex
ára fór mamma að vinna úti þannig
að ég varð lyklabarn. Ég er alin upp á
Háaleitisbraut. Síðan bjuggum við í
Garðabæ og fluttum svo í Breiðholtið
þegar ég var níu ára, sem er mér mjög
minnisstætt. Þetta var barnafjölmenn-
asta hverfi Reykjavíkur, mér fannst
þetta hálfgert kaos og bókabíllinn varð
mjög góður vinur minn fljótlega eftir
að við fluttum. Ég var dálítið mikið ein,
búin í skólanum eitt, hálf tvö og fannst
þá hálf eilífð þangað til mamma kæmi
úr vinnunni. Ég las allt sem ég náði í,
byrjaði pínulítil á Öddubókunum og svo
lá leiðin í gegnum Fimmbækurnar og
Ævintýrabækurnar en í dag er Auður
Ava í miklu uppáhaldi og sömuleiðis
Gerður Kristný. Þó ég hafi aldrei lent
beinlínis í lífshættu þá er það þessi
kaótík í lífinu sem kemur manni til að
skrifa og vilja segja sögur. „
Skrifar meðan aðrir prjóna
Þrátt fyrir ástina á bókmenntum segir
Sif sér aldrei hafa dottið í hug að fara í
íslensku í háskólanum, eftir BA-prófið í
enskum bókmenntum valdi hún mark-
aðsfræðina en vegna stórs heimilis kom
ekki til greina að fara utan í framhalds-
nám. Hún stundaði námið á kvöldin og
segir oft hafa verið flókið púsluspil að
láta þetta allt saman ganga upp. „En
það hafðist, maður finnur sér tíma fyrir
það sem maður vill gera. Margir spyrja
mig núna hvenær eiginlega ég hafi haft
tíma til að skrifa þessa bók en ég bendi
þeim þá á að það fer tími í allar tóm-
stundir fólks, sumir prjóna, aðrir horfa
á framhaldsþáttaraðir og ég skrifaði á
meðan vinkonur mínar voru að prjóna
og horfa á þætti. Við höfum öll einhvern
tíma fyrir okkur sjálf, þetta er bara
spurning um hvernig við veljum að ráð-
stafa honum.“ Maður finnur sér tíma fyir það sem maður vill gera. Ljósmynd/Hari
Axis húsgögn ehf • Smiðjuvegur 9
200 Kópavogur • Sími 535 4300 • axis@axis.is • axis.is
í tilefni af 80 ára afmæli Axis ætlum við að bjóða
viðskiptavinum okkar afslátt af öllum fataskápum.
Mikið úrval af skápum til sýnis í björtum og fallegum
sýningarsal í verslun okkar við Smiðjuveg 9.
Opið mánud. - föstud. frá kl. 9-18.
Laugardag kl. 10-15.
Verið velkomin
20%
afmælisafsláttur
af öllum fataskápum!
17
4.
19
1/
11
.1
5
24 viðtal Helgin 20.-22. nóvember 2015 viðtal 25