Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 28

Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 28
„Golfið hefur alltaf verið líflínan mín og ég hlakka til að bæta mig enn frekar þar. Ég veit ekki hvar ég væri án þess og allra minna góðu vina.“ Ljósmynd/Hari Sigurþór Jónsson, fyrrverandi landsliðsmaður í golfi, lifði að því er virtist eðlilegu lífi allt þar til hann missti tökin fyrir fimm árum. Hann var fjölskyldumaður í góðri vinnu sem spilaði og keppti í golfi þegar tími gafst til. Undir sléttu yfirborðinu kraumuðu afleiðingar erfiðleika og sorgar úr æsku en sársaukann deyfði hann með áfengi og kókaíni flestar helgar. Þegar faðir hans lést, árið 2010, missti Sigurþór tökin á lífi sínu og nokkrum mánuðum síðar hafði hann misst allt. HEFUR OPNAÐ STOFU Í KLÍNÍKINNI ÁRMÚLA 9 Halla Fróðadóttir, sérfræðingur í lýtalækningum Sérgrein: almennar lýtalækningar, fegrunaraðgerðir, fylliefni og botox Tímapantanir í síma: 519 7000 Klíníkin Ármúla · Ármúla 9 · 108 Reykjavík · Iceland · www.klinikin.is É g fann snemma fyrir einhverskonar ókyrrð. Frá því ég man eftir mér fyrst var ég á einhvern hátt ófullnægður á öllum sviðum og hagaði mér eftir því. Ég fann bara aldrei neina eirð,“ segir Sigurþór Jóns- son, 34 ára gamall Hafnfirðingur og fyrrverandi lands- liðsmaður í golfi, sem til ársins 2010 lifði því sem virtist vera hamingjusamt og innihaldsríkt líf. „Ég kem frá góðu heimili. Mamma var góðri vinnu og fósturpabbi minn var skipstjóri og vélstjóri. Mig skorti aldrei neitt í æsku. Ég átti gott samband við pabba minn en það var lítið, við hittumst bara um helgar. Ég fékk í raun allt sem ég vildi en sambandið við fósturpabba minn var erfitt, mér fannst hann aldrei samþykkja mig. Og ég held að hann hafi aldrei gert það. Hann vildi bara Kókaínið varð mitt aðalefni í tólf ár fyrir utan einhverja tímapunkta þegar ég var á fullu í golfinu. Bjó á götunni fyrir tveimur árum mömmu mína og ég upplifði mig alltaf sem bagga á þeirra sambandi. Ég sá líka hluti í þeirra sambandi sem lítil börn ættu ekkert að upplifa án þess að fara eitthvað nánar út í það. Ég var oft hræddur og kvíðinn sem barn en það eru til- finningar sem lítil börn eiga ekki að upplifa.“ Fann sig í golfinu „Það var allskonar rugl á mér í skóla. Ég lenti í slagsmálum og einelti og lagði sjálfur aðra í einelti. Ég var til vandræða en samt ekkert alltaf og ég var alls ekki vondur. Ég átti mjög erfitt með að læra og leið ekki vel, var ekki í jafnvægi en gat samt aldrei talað um það. Ég byrgði allt inni og svo þegar eitt- hvað kom upp á þá bara sprakk ég. Ég náði ekki að eignast nána vini, og fór því bara eitthvert annað til að tengjast. Svo gerist það að móðurbróðir minn dró mig með sér í golf þegar ég var ellefu ára. Þá bara gerðist eitthvað, ég náði allt í einu að einbeita mér og fannst gaman. Þarna fann ég fjölina mína og það var ekkert aftur snúið,“ segir Sigurþór varð fljótlega mjög efnilegur golfari og keppti þrettán ára á fyrsta mótinu sínu. „Ég var öll sumur á golf- vellinum og dagana sem ég átti að vera að læra undir samræmdu prófin var ég á golfvellinum.“ Kynntist kókaíni tvítugur „Ég byrjaði svo að drekka sextán ára og fann þar leið til að sleppa tökunum og hleypa öllu út. Feimnin fór, ég fékk útrás og varð oftast mjög erf- iður. Eftir nokkur fyllirí fór ég svo að nota eiturlyf, fikta við hass og amfetamín en neyslan var ennþá bara tengd við helgar á þessum tíma. En fiktið komst upp og ég var sendur í meðferð. Ég var samt alls ekkert á leið í meðferð til að hætta að drekka, fannst ég bara hafa verið að hlaupa af mér hornin, og þegar ég var tvítugur datt ég í það aftur. Og þá kynntist ég kókaíni. Kókaínið varð mitt aðal- efni í tólf ár fyrir utan einhverja tímapunkta þegar ég var á fullu í golfinu. Ég var það sem kallað er „fúnkerandi alkóhólisti“. Ég var í góðri vinnu sem verslunarstjóri í herrafataverslun, átti konu og tvö stjúpbörn og var á fullu að keppa í golfinu. Var landsliðsmaður frá 2007-2010 og lífið virtist vera í góðu lagi utan frá. En allar helgar snerust um að detta í það og taka kókaín. Auðvitað missti ég stjórnina öðru hverju, var aðeins of lengi á djamm- inu, hvarf stundum í einn eða tvo daga og eyddi allt of miklum peningum, en ég gat samt alltaf komið heim aftur og var alltaf fyrirgefið því ég er góður strákur inn við beinið. Ég var ekki að skaða neinn nema sjálfan mig á þessum tíma, að mér fannst.“ Missti allt á nokkrum mánuðum Þegar Sigurþór komst í landsliðið árið 2007 fór Samhjálp leitar til landsmanna Samhjálp keypti Hlaðgerðarkot af Mæðrastyrks- nefnd árið 1974 og hefur rekið þar meðferðarheimili allar götur síðan. Húsnæðið var upphaflega byggt af vanefnum og er núna í mjög slæmu ástandi og því löngu tímabært að ráðast í endurbætur og nýbyggingu til að hægt sé að uppfylla kröfur yfirvalda. Ef engin hjálp fæst er fyrirséð að starf- semin muni leggjast af og hefur því verið sett af stað lands- söfnun sem verður í opinni dagskrá á Stöð 2 á morgun, laugardaginn 21. nóvember. n 60-70 manns eru jafnan á biðlista í Hlaðgerðarkoti. n 400 einstak- lingar þurftu frá að hverfa árið 2014. n Yfir helmingur skjólstæðinga Hlað- gerðarkots er á aldrinum 18-39 ára. n Samhjálp rekur einnig áfangaheim- ilin Brú og Spor. n Kaffistofa Samhjálpar, þar sem hægt er að fá morgunkaffi og heitan mat í hádeginu, er opin alla virka daga. Framhald á næstu opnu 28 viðtal Helgin 20.-22. nóvember 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.