Fréttatíminn - 20.11.2015, Blaðsíða 40
Edda Lára vinnur við fyrirtækjaráð-
gjöf í Íslandsbanka en skrifaði bókina
um Lárus litla sem er að eignast
systkini í frítíma sínum. Ljósmynd/Hari
Eddu Láru Lúðvígsdóttur hafði lengi dreymt um að gefa út bók þegar hún ákvað að skrifa barnabókina Lárus eignast systkini.
Hugmyndin að bókinni kom til hennar þegar hún var barnshafandi að öðru barni sínu og fann enga skemmtilega sögu um þá
upplifun að eignast systkini. Hún ákvað að láta drauminn rætast, ekki síst til að vera sonum sínum góð fyrirmynd.
Langar að vera góð fyrirmynd
Þ egar ég var að verða mamma í annað sinn lang-aði mig að lesa sögu fyrir
son minn sem gæti undirbúið fyrir
þá upplifun að verða eldra systk-
ini,“ segir Edda Lára Lúðvígs-
dóttir viðskiptafræðingur sem gaf
nýverið barnabókin Lárus eignast
systkini.
„Við maðurinn minn fórum
með eldri son okkar í bókabúð en
fundum enga bók við hæfi og síðar
heyrði ég það útundan mér að
fleiri hefðu staðið í þessum sömu
sporum. Og þar sem ég hafði lengi
gengið með þann draum að gefa út
mína eigin bók ákvað ég að gera
þessa bók bara sjálf. Ég fann það
svo sterkt eftir að ég varð mamma
hvað það skiptir miklu máli að
vera góð fyrirmynd. Og ég held
að ef maður eigi sér draum þá eigi
maður að láta hann verða að veru-
leika. Með þessari útgáfu langar
mig að sýna þeim að þeir geta gert
allt sem þeir vilja í lífinu, bara með
hörkuvinnu og trú á sjálfum sér.“
Mikið fjör á heimilinu
Synir Eddu Láru eru þriggja og
eins árs í dag og segir hún fjöl-
skyldulífið ganga eins og í sögu.
Bókin hafi líka hjálpað til. „Það
hjálpar alltaf að ræða hlutina, allar
þessar skemmtilegu áskoranir
sem verða á vegi okkar þegar börn
eignast systkini. Það eru tuttugu
mánuðir á milli Ármanns og Jó-
hannesar þannig að heima hjá
okkur er mikið fjör,“ segir Edda
Lára sem hefur passað vel upp á
að eldri bróðurnum líði aldrei eins
og hann hafi misst sína stöðu.
„Við gerðum ýmislegt sem okkur
fannst hjálpa til. Maðurinn minn
náði til dæmis í eldri strákinn okk-
ar úr pössun til afa síns og ömmu
og þeir komu saman á spítalann að
ná í okkur Jóhannes. Og við fórum
saman heim sem fjölskylda í stað
þess að hann kæmi beint heim úr
pössuninni og sæi okkur saman
með litla barnið í höndunum. Svo
vorum við líka mjög meðvituð
þegar heim var komið að sjá alltaf
um hann líka.“
Börnin gefa bestu meðmælin
Edda Lára vinnur við fyrirtækja-
ráðgjöf í Íslandsbanka en notaði
frítíma sinn til að skrifa bókina.
„Ég hafði svo mikinn áhuga á
þessu að ég nýtti frítímann þegar
eldri strákurinn var sofnaður til
að vinna. Það skiptir líka máli að
eiga mann eins og ég á sem hefur
verið einstaklega hvetjandi og
haft trú á verkefninu frá byrjun,“
segir Edda Lára sem getur vel
hugsað sér að skrifa aðra bók.
„Þetta er búin að vera mjög
skemmtilega reynsla og ég get vel
hugsað mér að gera þetta aftur.
Það er einstaklega gefandi að sjá
þennan draum verða að veruleika
og ekki síst að hafa fengið mörg
skilaboð á hverjum einasta degi
frá ánægðu fólki sem hefur keypt
bókina. Líka frá börnum sem
finnst hún skemmtileg. Það eru
bestu meðmælin.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
40 viðtal Helgin 20.-22. nóvember 2015