Fréttatíminn


Fréttatíminn - 20.11.2015, Page 62

Fréttatíminn - 20.11.2015, Page 62
Einföld og virk lausn við óþægilegri líkamslykt Perspi-Guard® vörurnar henta fólki með ofvirka svitakirtla S vitalykt og óþægileg lík-amslykt er eitthvað sem við viljum vera laus við í okkar daglega amstri. Sumir glíma hins vegar við það vandamál að líkaminn framleiðir of mikinn svita (hyper hydrosis) og því fylgir oft á tíðum mjög sterk svitalykt. Þessir einstak- lingar vita oftast af vandamálinu og hafa reynt allt sem þeir geta til að bregðast við. Afleiðingar slæmr- ar líkamslyktar, og athugasemda vegna hennar, er andleg vanlíðan sem oft leiðir til félagslegrar einangrunar þess sem á við vandamálið að etja. Unglings- árin geta verið sérstaklega erfið hvað þetta vandamál varðar og getur jafnvel haft áhrif á mótun einstaklingsins til framtíðar. Nú er hins vegar hægt að koma, á einfaldan hátt, í veg fyrir þetta vandamál með Perspi-Guard vörunum. Sprey gegn óþægilegri líkamslykt Perspi-Guard® Maximum 5™ er líkamssprey sem vinnur bug á erfiðustu til- fellum af óþægilegri lík- amslykt. Perspi-Guard® Maximum 5™ er sterk- ur svitalyktareyðir sem hannaður er til að koma í veg fyrir svita og svitalykt hjá einstaklingum með of- virka svitakirtla. Spreyið má nota á alla venjulega húð til að koma í veg fyrir vandamál sem tengjast miklum svita og svitalykt. Virkni Maximum 5™ er svo mik- il að einungis þarf að nota efnið tvisvar í viku. Í mjög erfiðum til- fellum gæti þó reynst þörf á meiri notkun. Til að ná bestum árangri skal úða spreyinu á hreina og þurra húð á meðferðarsvæðið að kvöldi til áður en farið er að sofa. Þvoið svæðið sem bera skal á og þurrkið vel. Úðið í 2-3 skipti á meðferðar- svæðið og látið þorna. Spreyið má nota undir hendur, á brjóstkassa, hendur, kálfa og fætur. Notið ekki annan svitalyktareyði á sama tíma þar sem það gæti truflað meðferð- ina. Bakteríusápa við slæmri líkamslykt Perspi-Guard® Control™ er bakt- eríusápa til að eyða bakteríum sem myndast á húðinni í kjölfar mikill- ar svitnunar. Venjuleg sturtusápa ræður ekki við þessa bakteríusýk- ingu og því er nauðsynlegt að nota Perspi-Guard® Control™ sápuna sem meðferð við slæmri líkamslykt. Perspi-Guard® vörurnar eru fáan- legar í öllum apótekum að undan- skildum verslunum Lyfju. Unnið í samstarfi við Ýmus ehf. Innihaldsefni Maximum 5: Ethyl Alcohol, Aqua, Aluminium Chloride, Aluminium Chlorohydrate, Glycerin, Alcloxa, Dimethicone Copolyol, Propylene Glycol, Triethyl Citrate. Innihaldsefni Control bakteríusáp- unnar: Aqua, Sodium lauryl ether sulfate, Ammonium lauryl sulfate, Cocami- dopropyl betaine, Glycerin, Cocamide diethanolamine, Silicone oil, Sodium chloride, Tocopherol, Citric acid, Triclosan, ilmefni. Viðvaranir: Ef vart verður við ertingu á þeim svæðum sem Maximum 5™ var borið á skal hætta notkun strax. Notist ekki á svæði sem eru með sára eða skadd- aða húð. Ekki skal spreyja á líkamssvæði sem eru nýrökuð. Einungis til notkunar útvortis. Forðist að efnið berist í augu. Geymið þar sem börn ná ekki til. Geymist við stofuhita, fjarri beinu sólarljósi. Ef innbyrt, hafið strax samband við lækni og hafið fylgiseðilinn við höndina. Efnið er eldfimt. Smyrslin Sárabót og Hælabót eru hluti af íslensku vöru- línunni Gandi. Smyrslin eru mýkjandi, frískandi og rakagefandi krem unnin úr minkaolíu og íslenskum jurtum. M inkaolía og handtíndar íslenskar jurtir eru uppi-staðan í vörunum frá Gandi. Minkaolía hefur óvenjuhátt hlutfall af ómettuðum fitusýrum sem gefa henni einstaka eiginleika í snyrtivörum. Hún er græðandi og mýkjandi náttúruleg afurð fyrir húð bæði manna og dýra. Minkaolían sogast hratt inn í húðina og getur þannig hjálpað til við að loka sárum og sprungum sem í kjölfarið gróa hraðar. Í smyrslunum er einnig að finna handtíndar íslenskar jurtir, bývax og E-vítamín. Heldur exeminu niðri Klara Helgadóttir prófaði Sárabót fyrir átta ára gamlan son sinn sem berst við exem og er með mjög þurra húð. „Við höfum prófað ansi mörg exem krem, þar á meðal stera- krem og ekkert hefur virkað jafn vel og Sárabót frá Gandi. Við höldum exeminu alveg niðri með Sárabót.“ Frískir og nærðir fætur Hjördís Anna Helgadóttir notast við Hælabót í starfi sínu sem fótaaðgerðafræðingur. „Í dag nota ég nær eingöngu Hælabót frá Gandi eftir fótaaða- gerðir og mæli ég hiklaust með þessu kremi. Það þarf ekki mikið magn af því. Kremið smýgur mjög vel inn í húðina og það er mjög gott að nudda upp úr því. Hælabótin er sérstaklega góð á sprungna hæla og þurra fætur.“ Hjördís er einnig hrifin af myntunni í kreminu sem gefur fótunum frísk- leika. „Ég hef unnið með þetta krem í um það bil fimm mánuði og bæði ég og viðskiptavinir mínir erum mjög hrifin af Hælabótinni frá Gandi,“ segir Hjördís. Sárabót og Hælabót eru fáanleg í apótek- um og heilsuhillum stórmarkaðanna. Unnið í samstarfi við Icecare Nærandi smyrsl úr íslenskum jurtum Hælabót er mýkjandi, nærandi og frískandi húðsmyrsl sem hefur reynst vel á þurra og sprungna hæla. Hælabót inniheldur minkaolíu, bývax, vallhumal, tea tree- og piparmyntu kjarnaolíur auk E-vítamíns. Vallhumall hefur lengi verið notaður sem lækningajurt á Íslandi, þekktur fyrir græðandi og mýkjandi eiginleika sína. Tea tree olía er talin hafa sótthreinsandi áhrif og piparmyntan þykir auka blóðflæði. Sárabót er mýkjandi, græðandi og kláðastillandi smyrsl. Sárabót inniheldur minkaolíu, bývax, haugarfa, vallhumal og klóelfting, lavender og rósmarín kjarnaolíur auk E-vítamíns. Klóelfting og haugarfi hafa sömu eiginleika og vallhumall en haugarfinn þykir einnig kláðastillandi. Hjördís Anna Helgadótt- ir, löggiltur fótaaðgerða- fræðingur, notar Hæla- bót eftir fótaaðgerðir. „Kremið smýgur mjög vel inn í húðina og það er mjög gott að nudda upp úr því.“ SÍÐAN 1964 LAGER SALA 30-70% AF ÖLLUM VÖRUM MÁN-LAU 13-18 OG SUN 13-17 ASKALIND 2 KÓPAVOGI Helgin 20.-22. nóvember 201562

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.