Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Síða 2
FIMM ÁRUM ELDRI
EN FULLYRT VAR
2 Fréttir 11.–13. janúar 2013 Helgarblað
Kennitöluflakkið
skoðað
3 Friðjón Björg-vin Gunnars-
son, eigandi net-
verslunarinnar
buy.is, hefur skipu-
lega fært starf-
semi netverslun-
arinnar buy.is á milli kennitalna á
undanförnum árum til að losna við
að greiða aðflutningsgjöld. Starf-
semi buy.is felst að mestu í sölu raf-
tækja en þegar þau eru flutt inn þarf
að greiða af þeim tolla og virðis-
aukaskatt eða svokölluð aðflutnings-
gjöld. Er nú svo komið að ýmis félög
sem tengjast Friðjóni samkvæmt
fyrir tækjaskrá skulda um 50 milljónir
króna í opinber gjöld. Friðjón hefur
áður látið hafa eftir sér að kennitölu-
flakk sé hvorki siðlaust né ólöglegt.
„Endurmet líf mitt“
2 Jónas Hvann-berg, sér-
fræðingur í bækl-
unarlækningum
í Svíþjóð, fagnaði
35 ára afmæli sínu
hér á landi þann
5. janúar í skugga
krabbameins.
Hann er búsettur í
Gautaborg í Svíþjóð ásamt sambýl-
iskonu sinni, Anniku Wiel Fredén.
Í viðtali við DV á mánudag sagði
Jónas meðal annars frá baráttu sinni
við krabbamein sem hann greindist
með í ristli og lifur. Jónas segist hafa
endurmetið líf sitt í kjölfar grein-
ingar krabbameinsins. „Ég endur-
met líf mitt þegar ég stend frammi
fyrir þessu. Maður sér hvað maður
hefur og hvað maður er þó heppinn
að mörgu leyti.“
„Ég játa mín brot“
1 „Ég skal segja þér eitt. Ég er
trúaður og ég veit
hvað er rétt og hvað
er rangt. Ég hef gert
rangt þó að ég viti
að það sé rangt,
hvernig sem á því
stendur,“ sagði Karl
Vignir Þorsteins-
son í viðtali við DV á miðvikudag
en hann játaði í Kastljósi á mánu-
dagskvöld að hafa brotið kynferðis-
lega gegn allt að 50 börnum. Hann
sagðist vita upp á sig sökina og sagði
í viðtali við blaðamann að hann
myndi játa sín brot í yfirheyrslum hjá
lögreglu. „Ég skila mínum málum á
réttan stað. Ég játa auðvitað öll mín
brot, ég geri það. Ég hitti lögregluna
í dag,“ sagði Karl Vignir en viðtal DV
við hann var tekið á þriðjudag.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
n Neytendur leiddir í gildru n Umboðin vernduð af reglugerð
„Umboðin börðust
fyrir því að þetta
yrði svona og rökin hjá
þeim voru að bíll væri nýr
þangað til hann væri tek-
inn í notkun.
A
kureyringurinn Garðar
Ingvi Gunnarsson keypti
aldeilis köttinn í sekknum
þegar hann keypti
Mercedes Benz C 200-bif-
reið í fyrra. Hann komst að því að
bíllinn reyndist ekki vera 2006 ár-
gerð, líkt og haldið var fram, heldur
heilum fimm árum eldri.
Hvernig getur svona lagað átt
sér stað gætu einhverjir spurt sig
en svarið er að finna í reglugerð um
nýskráningu bíla. Þar er einungis
ákvæði um að bílar séu nýskráðir í
íslenskri bifreiðaskrá þegar þeir eru
keyptir í fyrsta skiptið, burt sé frá því
hvaða ár þeir eru framleiddir. Það
þýðir í raun að ef bíll er framleidd-
ur árið 2001 en keyptur í fyrsta skipt-
ið árið 2006, er hann skráður árgerð
2006 á Íslandi.
Í engu samræmi við raunvirði
Þegar Garðar leit bílinn augum
á bílasölu sá hann að bíllinn var
skráður sem árgerð 2006. Hann
festi kaup á bílnum og ók honum
heim, norður á Akureyri. Fljótlega
fóru að gera vart við sig ýmiss kon-
ar bilanir, líkt og gangtruflanir og
bilaðir skynjarar. Í grein Félags ís-
lenskra bifreiðaeiganda um málið
kemur fram að við aldursgreiningu
á bílnum hafi komið í ljós að hann
var alls ekki framleiddur árið 2006
heldur árið 2001. Verðið sem Garðar
greiddi fyrir bílinn var því í engu
samræmi við raunvirði bílsins.
Samkvæmt grein FÍB um málið
var bíllinn forskráður í september
árið 2005 en skráður á götuna í maí
árið 2006. Fyrsti skráði eigandi bíls-
ins átti hann fram í mars 2011 en
eftir það eignaðist SP fjármögnun
bílinn, síðan Landsbankinn, síðan
Hömlur B&T og svo aftur Lands-
bankinn sem setti bílinn á sölu hjá
bílasölu í Reykjavík. Ávallt var geng-
ið út frá því að bíllinn væri 2006 ár-
gerð.
Neytendur leiddir í gildru
„Þetta er allt of algengt,“ segir Stef-
án Ásgrímsson, hjá Félagi íslenskra
bifreiðaeigenda, um ranga ný-
skráningu á bílum. Fyrir um það bil
fjórtán árum var reglugerð um ný-
skráningu bíla breytt og segir Stefán
neytendur vera leidda í gildru með
þeim breytingum. „Bílar voru skráð-
ir eftir árgerðum. Nýjar árgerðir
koma oft seint á árinu og það var
skráð í bifreiðaskrá. Nú þarf ekki að
skrá neitt annað en hvenær bíllinn
er skráður í íslenska bifreiðaskrá,
það er að segja þegar hann er keypt-
ur í fyrsta skiptið,“ segir Stefán.
Þetta þýðir í raun að bílar geta
staðið árum saman en skráningar-
árið þeirra verður ekki skráð fyrr en
einhver kaupir bílinn. „Umboðin
börðust fyrir því að þetta yrði svona
og rökin hjá þeim voru að bíll væri
nýr þangað til hann væri tekinn í
notkun.“
Stefán segir það fara eftir velvilja
umboðsaðila hvort bifreiðaeigendur
geti komist að því hver raunveruleg-
ur aldur bíla þeirra sé. Bílaframleið-
endur, en þó ekki allir, setja upp-
lýsingar um framleiðsluviku eða
mánuð bíla í kennitölu þeirra, VIN-
númer eða framleiðslunúmer, en
þær upplýsingar eru kóðaðar og oft
og tíðum ekki skiljanlegar og neita
sum bílaumboð að gefa upp hvað
þær þýða. n
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
Alltof algengt Stefán Ásgrímsson, ritstjóri FÍB, segir það of algengt að bílar séu með
rangt skráningarár á Íslandi.
Fimm ára gamall Þetta er bíllinn sem Garðar Ingvi keypti. Hann reyndist vera framleiddur árið 2001 en Garðar keypti hann á þeirri
forsendu að hann væri árgerð 2006.
Kirkjan verji
mismunun
Ásatrúarfélagið tekur upp hanskann
fyrir Þjóðkirkjuna með ályktun sem
félagið sendir frá sér um fyrir hugaða
söfnun kirkjunnar fyrir tækjakaup-
um fyrir Landspítalann, þar sem
söfnuninni er fagnað. En í sömu
andrá segir félagið að kirkjan verji
mismunun í sína eigin þágu. Agn-
es M. Sigurðardóttir biskup sagði í
nýársávarpi sínu frá fyrir ætlunum
kirkjunnar um að safna fé til tækja-
kaupa. Það varð meðal annars til
þess að Sigríður Ingibjörg Ingadótt-
ir þingkona gagnrýndi kirkjuna,
enda hefði Þjóðkirkjan barist mikið
fyrir auknum fjárveitingum til sín er
fjárlög voru gerð í desember í fyrra.
Sagði þingkonan það skjóta skökku
við að kirkjan sem ríkisstofnun væri
að standa fyrir söfnun fyrir spítal-
ann en hafi um leið barist fyrir því
að fá auknar fjárveitingar úr sama
sjóði og Landspítalinn fær sínar fjár-
veitingar.
Ásatrúarfélagið fagnar í ályktun
fyrirhugaðri söfnun þjóðkirkjunn-
ar en segir þó að félagið sé mót-
fallið aukaframlögum til kirkjunn-
ar: „Samþykktin er að sjálfsögðu
óháð því að Ásatrúarfélagið hefur,
ásamt fleiri trúfélögum, lengi barist
gegn því misrétti að ríkisvaldið
mismuni trúfélögum með rífleg-
um aukaframlögum til Þjóðkirkj-
unnar úr sameiginlegum sjóðum
okkar allra.“ Telur Ásatrúarfélagið
að ríkis valdið sé með þessum fram-
lögum að mismuna fólki eftir trúar-
skoðunum: „Þannig skipa yfirvöld
þeim fjórðungi landsmanna, sem
kýs að standa utan Þjóðkirkjunnar,
skör lægra en annað fólk og sjálf ver
kirkjan mismunun í sína þágu með
oddi og egg.“
Lokkaði stúlkur
Karlmaður í bíl hafði afskipti af
tveimur stúlkum í Árbæjarhverfi í
Reykjavík á miðvikudag og fer kyn-
ferðisbrotadeild lögreglunnar í
Reykjavík með rannsókn málsins.
Heimildir DV herma að manninum
hafi tekist að tæla stúlkurnar upp
í bifreið sína, en það hefur ekki
fengist staðfest.
Foreldrar barna í Árbæjarskóla
fengu í gær bréf frá skólastjóranum
þar sem talað er um að í hverfinu sé
á ferð einstaklingur sem hefur það
að „markmiði að tæla börn upp í
bifreið sína,“ og að lögreglan leggi
áherslu á að maðurinn finnist.
Foreldrar eru hvattir til að ræða
þessi mál við börn og ítreka að þau
ekki ekki að fara upp í bifreiðar hjá
ókunnugum.