Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Qupperneq 17
næst í beinni útsendingu í Kastljósi á þriðjudagskvöld. Skömmu áður en þátturinn fór í loftið hafði hún frétt að Karl Vignir hefði beitt góða vin- konu hennar kynferðislegu ofbeldi. Hún viðurkennir að það hafi þyrmt yfir hana. Viðbrögðin við umfjölluninni hafa verið gífurleg. Kveðjum og þökk- um hefur rignt yfir þær stöllur á Face- book og svo virðist sem ákveðin vit- undarvakning sé að eiga sér stað. Erna segir þær vera að fá ákveðna lokun í máli sem þær eru búnar að berjast í allt of lengi. „Að hann sé tek- inn núna og færður í gæsluvarðhald er líka ákveðin viðurkenning sem nefndin gat ekki gefið okkur. Ég vona bara að þetta hafi þau áhrif að þjóð- félagið vakni upp. Þá er þetta þess virði,“ segir Erna. Ánægð með viðbrögð lögreglunnar María tekur undir það. Hún segir til- finningarnar þessa dagana þó vera hálf blendnar og finnst athyglin sem þær fá helst til mikil. „Ég kem af fjöll- um hve mikið er talað um okkur, en ég er ofsalega ánægð með það hvað lögreglan hefur brugðist vel við eftir Kastljósið,“ segir hún. „Nú verðum við bara að hugsa glöð til framtíðar og koma í veg fyrir að svona mál séu þögguð niður. Þetta eru gleðitímar, annars vegar er Karl Vignir kominn inn og forsætisráð- herra hyggst skipa starfshóp þriggja ráðuneyta vegna málsins. Ég trúi því ekki að þetta sé að gerast loksins.“ María getur ekki leynt gleði sinni með árangurinn en segir þær ekki vanar svona jákvæðum viðbrögðum og viti varla hvernig þær eigi að taka þeim. Þær vonast til að barátta þeirri skili frekari árangri og að í fram- tíðinni verði mál af þessu tagi ekki þögguð niður. Þá binda þær einnig vonir við að viðeigandi úrræði fyr- ir barnaníðinga líti dagsins ljós sem fyrst. „ Hugur okkar er með fórn- arlömbunum og hetjunum sem hafa komið fram,“ segir María að lokum. n Fréttir 17 Helgarblað 11.–13. janúar 2013 n „Á meðan við erum öll að kafna úr meðvirkni þá er verið að mis- nota börnin okkar“ n Snýst ekki um að hengja einhvern á torgi Rænd baRnæskunni Þ að eru mörg bæjarfélög sem eiga dónakall, það kannast flestir við þetta. Börnum er bannað að fara í ákveðin hús til dæmis til að selja merki og slíkt,“ segir Thelma Ásdísardóttir hjá Dreka- slóð, fræðslu- og þjónustumiðsstöð fyrir þolendur alls kyns ofbeldis og aðstandendur þeirra. Hún segir nauðsynlegt að taka það alltaf alvarlega ef börn segja frá því að einhver fullorðinn hafi reynt að lokka þau inn til sín með sæl- gæti, verið dónalegur eða látið þau horfa á klámmyndir. „Það á alltaf að bregðast við, í hvert einasta skipti. Viðbrögðin þurfa ekkert að vera flókin, til dæmis bara að hringja í barnavernd. Ef margar kvartanir koma vegna sama mannsins þá á ekki að sætta sig við að hann sé bara dónakallinn sem eigi að láta í friði. Frekar að bregðast við og hugsa að mín viðbrögð geti orðið til þess að bjarga framtíðarþolanda.“ Thelma segir það of algengt að heilu sam- félögin hafi vitneskju um mál af þessu tagi án þess að tekið sé á þeim. Kannski búa börn á heimilinu Hún veit að margir veigra sér við að að bregðast við vegna þeirrar áhættu að bera menn röngum sök- um. „Fólk verður hins vegar að treysta yfirvöldum til þess að grípa ekki til aðgerða nema ástæða þyki til. Með því að gera ekki neitt og komast að því seinna að þessi að- ili hafi verið að meiða börn þá situr fólk uppi með það.“ Thelma telur að sjálfsásakanirnar verði þyngri ef sú reynist raunin. Hún bendir jafn- framt á að yfirleitt sé einhver ástæða að baki því að börnum sé sagt að varast ákveðna einstaklinga. „For- eldrar sem vilja ekki að börnin sín fari og leiki inni á ákveðnu heimili í bænum mega ekki bara staldra við þar, heldur velta fyrir sér að þar búi kannski börn sem eru beitt ofbeldi.“ Það var þannig í tilviki Thelmu en faðir hennar beitti hana og systur hennar kynferðisofbeldi og leyfði öðrum mönnum að gera slíkt hið sama. Börnin í hverfinu máttu ekki fara heim til hennar. „Ég skil það mjög vel enda var þetta stór- hættulegt heimili. En það má ekki stoppa þar.“ Ofbeldið þrífst í aðgerðaleysi Thelma segir meðvirknina vera mjög ríkjandi í íslensku samfé- lagi og sú meðvirkni sem mynd- aðist í kringum Karl Vigni sé síður en svo einsdæmi. „Það vill enginn vera manneskjan sem stígur fram og segir eitthvað. Á meðan við erum öll að kafna úr meðvirkni þá er verið að misnota börnin okkar. Þetta snýst ekki um að hengja ein- hvern á torgi, heldur bregðast við og láta ekki eins og ekkert sé. Það er í því sem þetta þrífst.“ Þau hjá Drekaslóð hafa með- al annars verið að hvetja vinnu- staði til að setja upp aðgerðaáætl- un þegar svona mál koma upp. „Þetta eru ofboðslega erfið mál, sérstaklega þegar um ræðir sam- starfsfélaga, fjölskyldumeðlim eða trúarleiðtoga. Aðila sem fólk hefur kynnst og líkar vel við.“ Gott að skrá brotin Eftir að mál Karls Vignis voru tek- in til umfjöllunar í Kastljósi í byrj- un vikunnar hafi fleiri og fleiri fórn- arlömb stigið fram. Þá hafa enn fleiri leitað sér aðstoðar í kjölfarið til að að vinna úr afleiðingum of- beldisins. Margir í fyrsta skipti. Thelma segir það algengt að fórnarlömb kynferðisofbeldis fari og láti skrá brot hjá lögreglu þrátt fyrir að þau séu fyrnd. „Þá eru brot- in skráð hjá lögreglu. Það er líka gott fyrir þolendur að einhvern veginn skila af sér brotinu til yfir- valda þrátt fyrir að vitað sé að það fari ekki lengra.“ Thelma hvetur alla sem orðið hafa fyrir ofbeldi af einhverju tagi að vinna úr sínum málum. „Ekki sitja einn með þetta, gerðu frekar eitthvað í málunum.“ Hún segir enga aðferð vera þá einu réttu en fyrir hana sjálfa skipti það öllu máli að geta talað við aðra þolendur og deilt reynslu sinni. Ekki láta dóna- kallinn í friði Erna Agnarsdóttir Fædd: 1956 Kom á Kumbaravog: 1965 Aldur: 9 ára Fór: 1975 María Haraldsdóttir Fædd: 1958 Kom á Kumbaravog: 1966 Aldur: 8 ára Fór: Strauk árið 1975 Meðvirknin mikil Thelma segir að fólk verði að kasta með- virkninni og bregðast við ef grunur leikur á kynferðisofbeldi. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.