Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Blaðsíða 21
Þ
að voru ekki margir sem
tóku því alvarlega þegar
óperutónskáldið og list-
málarinn Vladimir Franz
ákvað að bjóða sig fram í
forsetakosningunum sem fram fara
í Tékklandi um helgina. Franz, sem
er fæddur árið 1959 í höfuðborginni
Prag, er þakinn húðflúri og töldu
margir að um hreint og klárt grín-
framboð væri að ræða. Þá hefur hann
enga reynslu úr stjórnmálum og í
raun enga þekkingu á efnahagsmál-
um eins og hann viðurkenndi fúslega
eftir að hafa tilkynnt um framboð sitt.
Keppinautar hans um forsetastólinn
í Tékklandi hafa þó fulla ástæðu til
að taka Franz alvarlega enda hefur
hann notið töluverðs fylgis í skoð-
anakönnunum fyrir kosningarnar
um helgina.
Fischer og Zeman líklegir
Níu frambjóðendur berjast um hylli
landsmanna fyrir kosningarnar og
samkvæmt skoðanakönnunum er
Franz í þriðja sæti. Samkvæmt út-
gönguspám mun Franz fá á bilinu
11–14 prósent atkvæða sem mun
duga skammt. Flest bendir til þess
að Jan Fischer og Milos Zeman, sem
báðir hafa gegnt embætti forsætis-
ráðherra Tékklands, muni berjast
um forsetastólinn. Að því gefnu að
enginn fái yfir 50 prósent atkvæða
í kosningunum um helgina verður
aftur kosið á milli tveggja efstu
manna helgina 25–26. janúar og
gera skoðanakannanir ráð fyrir að
þar muni Fischer og Zeman berjast.
Zeman, sem var forsætisráðherra frá
1998 til 2002, nýtur stuðnings 25 pró-
senta kjósenda samkvæmt skoðana-
könnunum en Zeman, sem gegndi
embættinu 2009 og 2010, um 20 pró-
senta.
Það bendir því fátt til þess að
Franz nái kjöri sem forseti Tékklands
en honum hefur engu að síður tekist
að hrista rækilega upp í stjórnkerfinu
landsins.
Dáður af ungum Tékkum
„Stjórnkerfið hér er svo heillað af
sjálfu sér að það hefur tapað eigin-
leikanum til sjálfskoðunar,“ sagði
Franz í viðtali við AP-fréttastof-
una í vikunni. Hann ákvað að bjóða
sig fram eftir að kunningjar hans
skoruðu á hann. Markmiðið var í
raun aldrei að vinna kosningarnar
heldur vekja athygli á því sem betur
mætti fara. Snjóboltinn rúllaði og
var fljótur að stækka og á Franz nú
mjög dygga fylgismenn, sérstaklega
meðal ungra Tékka. Í umfjöllun
breska blaðsins Guardian um fram-
boð hans kemur fram að virtur tékk-
neskur hagfræðingur hafi boðið hon-
um ráðgjafastarf án greiðslu og þeir
sem vinna að framboði hans gera
það einnig frítt. Franz hefur sjálfur
ekki eytt krónu í framboðið og til að
mynda ekki hengt upp nein kosn-
ingaplaköt. Framboð hans til þessa
hefur kostað 3,3 milljónir króna sem
greiddar hafa verið af stuðnings-
mönnum hans.
Á móti ESB
Þó að stutt sé til kosninga eru í raun
aðeins nokkrir dagar síðan Franz til-
kynnti formlega um framboð sitt.
Það gerðist í lok árs 2012 þegar Franz
skilaði inn 88 þúsund undirskriftum,
en frambjóðendur þurfa einungis að
skila inn 50 þúsund undirskriftum.
Hann hefur heitið því að berjast gegn
spillingu í tékknesku stjórnkerfi,
bættu siðferði en einnig talað mikið
fyrir mikilvægi menntunar. Þá hefur
hann talað gegn Evrópusambandinu
við öll tækifæri en Tékkar gengu í
sambandið árið 2004. Til marks um
vinsældir hans meðal yngri kyn-
slóðarinnar má geta þess að á dögun-
um voru nemendur í rúmlega 440
menntaskólum landsins látnir segja
hug sinn fyrir kosningarnar og hvern
þeir myndu kjósa. Það er skemmst
frá því að segja að Franz vann þá at-
kvæðagreiðslu með yfirburðum og
hlaut 40 prósent atkvæða.
Húðflúrið breytir engu
Þó svo að Franz sé dálítið skugga-
legur með allt sitt húðflúr virðist það
ekki hafa áhrif á fólk – það er ekki
beint algengt að einstaklingar með
húðflúr í andlitinu sigri í forsetakosn-
ingum. „Húðflúrið skiptir að mínu
mati engu máli,“ segir Jakub Fisera,
stúdent í Prag, í viðtali við Guardian.
Fisera bætir þó við að reynsluleysi
Franz í stjórnmálum veki meiri
áhyggjur. Sjálfur segir Franz að húð-
flúrið sé einfaldlega listaverk og for-
setakosningarnar séu ekki fegurðar-
samkeppni. „Húðflúr er merki um
frjálsan vilja,“ segir hann. n
Húðflúrað tónskáld
Hristir upp í tékkum
Erlent 21
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
„Húðflúr er merki
um frjálsan vilja.
n Vladimir Franz berst um forsetastólinn n Ekki eytt krónu í framboðið úr eigin vasa
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Helgarblað 11.–13. janúar 2013
Með stuðningsmönnum Húðflúr þekur 90 prósent af líkama Franz. Hér er hann með stuðningsmönnum sínum á framboðsfundi á
dögunum. MynD REuTERS