Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2013, Page 26
26 Viðtal 11.–13. janúar 2013 Helgarblað af mörgum sem eitthvað bla bla. Á sama tíma er það æpandi, að það sem er einna mest að í þessu samfé- lagi er einmitt skortur á samvinnu og trausti á svo mörgum sviðum. Þarf ekki að vinna í því? Það er viss tilhneiging í gangi, að vilja afgreiða vel meinandi fólk sem léttvægt og innihaldslaust. Mér var til dæmis bent á um daginn að Styrmir Gunnarsson hefði kallað mig puntustrák í bloggi. Þetta var eftir ræðu sem ég flutti í þinginu, þar sem ég var virkilega að reyna að segja á fimm mínútum hvað það er sem mér finnst mikilvægt.“ Guðmundur fórnar höndum. „Tölum aðeins um þessa gömlu, reiðu menn. Það eru svona menn sem eru sífellt að segja okkur, sem erum að taka við, að við séum stefnu- og hugsjónalaust fólk upp til hópa, merkingarlaust fólk sem veður áfram og á helst bara að gera það sem þeir vilja eða fara heim og skammast sín. Þessi umræða um sjálfhverfu kynslóðina um daginn, heil kynslóð afgreidd sem hún væri bara að hugsa um afturendann á sjálfri sér. Þetta er kynslóðin sem er að vaxa upp sem ég þekki ekki af öðru en því að taka mjög alvarlega því að taka við samfélaginu. Þetta fólk hefur bara margt aðrar hugmyndir og ann- an stíl en áður tíðkaðist. Talar saman öðruvísi. Það er svo mikilvægt að þeir sem eru farnir af sviðinu reyni að hlusta og skilja. Þegar ég segi til dæmis að flokkurinn sem við vor- um að stofna sé víðsýnn, grænn og hann sé frjálslyndur, þá veit ég al- veg að þessi hugtök eru margnot- uð og útjöskuð. Ég held að það sé mjög mikilvægt að í stað þess að af- greiða þetta sem merkingarleysu og mig sem mann sem bullar að reyna að skilja hvað ég á við með þessum orðum. Hvað meinar maðurinn? Það er alltaf lykilspurningin. Ég veit að maður þarf til dæmis að útskýra orð eins og frjálslyndur, vegna þess að það er búið að ofnota það. Algjör- lega. En það þýðir mikilvæga hluti fyrir mér. Það þýðir að maður leggur áherslu á fjölbreytni og rétt einstak- linga til að tala sínu máli. Til að upp- fylla drauma sína og taka ábyrgð á sjálfum sér. Og að það sé hlutverk stjórnmálamanna að skapa skilyrðin til þess. Svo þarf að spá í það hvort við séum raunverulega að gera það eða ekki. Eru þessi markmið tekin nógu alvarlega? Ég held ekki.“ Guðmundur nefnir að á móti þýði ekkert annað í stjórnmálum en að hafa skráp fyrir palladóm- um, aðferðum og leikjum sem þess- um. „Æðruleysið, æðruleysið,“ dæsir hann og brosir. Eins og Georg Bjarnfreðarson Blaðamanni leikur forvitni á að vita um menntun Guðmundar. Hvert lá leiðin? Það kemur í ljós að hann hefur skrifað tvær meistaraprófs- ritgerðir í heimspeki, í Bretlandi og Svíþjóð, nánast um sama efnið. „Nú fer ég að hljóma eins og Georg Bjarnfreðarson, sem var með fimm háskólagráður,“ segir hann og brosir breitt. „Ég lærði íslensku og heimspeki og hallaðist alltaf meira að heim- speki, þar kenndi mér Þorsteinn Gylfason sem var alveg ótrúlega mikill lærdómur að kynnast. Hans hugsun og hans skýra nálgun var mér innblástur. Hann var leiðbein- andi minn þegar ég skrifaði ritgerð um málspeki, tungumálaheimspeki og merkingarfræði sem gengur svo mikið út á að greina merkingu orða og hvaða öfl séu þar að verki. Og við sátum alltaf lengi og ræddum mál- in. Ég fór í heimsókn til hans og sat þá oft í fjóra eða fimm tíma, með- an hann reykti, ég veit ekki hvað margar sígarettur. Með þennan ráma hlátur og leiftrandi kímnigáfu og magnaðar greiningar sem maður fór í gegnum með honum. Ég fór að stúdera Wittgenstein, sem er ekkert einfaldur heimspek- ingur og báðar meistaraprófsrit- gerðir mínar fjölluðu um hann og málspeki hans sem er eins konar nálgun á lífið og tilveruna út frá greiningu á tungumálinu. Mér finnst það mikið veganesti í pólitík. Tungumálið er leikur að orð- um. Orð sækja merkingu sína í samhengið. Fólk þarf að tala saman til þess að komast að merk- ingu orðanna og skapa skilning sín á milli. Og þá þarf oft að kafa dýpra. Mörg rifrildi eru vegna þess að þetta er ekki gert. Mörg rifr- ildi enda til dæmis á: já meintir þú það? Ég meinti ekki það! Það get- ur tekið tíma að finna út úr þessu. Mörg rifrildi og deilur snúast um mismunandi skilning á merkingu orða. Þetta eru mannlegar aðstæð- ur, að þurfa að komast að því hvað fólk á við. Sé það gert, þá verður allt svo miklu betra. Fjölmiðlar virka til dæmis þannig að þeir taka hluta af því sem maður segir og slá því upp. Það sem er svo leiðinlegt að sjá er að fyrirsagnir eða þetta eina komment sem er haft eftir manni útskýrir svo lítið og er ekki í samhengi. Svo lesa gömlu reiðu mennirnir þetta og berja í borðið: Sjáið þið þetta! Sjálf- hverfa kynslóðin!“ Guðmundur vill gera það að ver- kefni sínu að ná upp betri samræðu og auka traust og skilning milli fólks. „Það er eitthvað sem ég vil stuðla að í stjórnmálum að við tölum miklu meira saman. Misskilning- ur er tímafrekur og leiðir til sóunar. Leiðir til rangra ákvarðana og verri geðheilsu. Það er svo margt í sam- félaginu sem hefur verið rifist um í árabil. Stundum hafa menn viljað skapa misskilning. Þetta er kallað smjörklípuaðferðin, þá er reynt að skapa glundroða. Ef samfélagið er í upplausn, þá myndast kjöraðstæð- ur fyrir ákveðna tegund af pólitík, einkum þá sem þolir illa dagsljósið.“ Bókin sem lyktaði af táfýlu Guðmundur hefur líka skrif- að bækur. Hann segir fyrstu skáld- sögu sína, Áhrif mín á mannkyns- söguna, hafa hlotið harða útreið af gagnrýnendum. Einn sagðist finna af henni táfýlu. Hann hlær dátt að því atviki. „Hún fékk skelfilega dóma. Ég var rakkaður niður, það var alveg svaka- leg gusa í andlitið. Ég var virkilega búinn að eyða miklum tíma í þessa bók. Svo fékk ég fyrsta dóminn. „Það er táfýla af þessu,“ sagði Páll Baldvin í sjónvarpinu og henti henni til hlið- ar. Ég sagði bara fjandinn og ókei. Fólk verður bara að segja það sem því finnst. Einhverjum líkaði þó bókin. Fyrir mér var hún lýsing á hugarástandi mínu.“ Af slysavarðstofunni á barinn „Bókin var frekar nýhilísk. Ég var nýkominn úr námi og nýfráskilinn að væflast um miðborg Reykja- víkur. Þetta var Kaffibarstímabilið mitt, þar sem ég fékk þetta ör,“ seg- ir hann og bendir á augabrún. „Ég var að grípa vin minn sem að ætl- aði að taka sviðsdýfu af borði í hita leiksins. Ég fór upp á slysavarðstofu og lét sauma heilmörg spor og kom svo aftur á barinn og hlaut fyrir það mikla virðingu, skal ég segja þér, meðal annars forláta viðurkenn- ingarskjal frá Gullfossi og Geysi, sem ég er reyndar búinn að týna. Mig langaði að skrifa sögu um mann sem flaut áfram eins og rekaviður. Rekaviður frá Ströndum. Mann sem vaknar og man ekki neitt og endar á að hitta einhvern mann sem ber hann í mauk og dularfulla konu sem virðist þekkja hann. Þetta átti að vera lýsing á tilvistarlegum aðstæðum. En það kveikti auðvitað enginn á þessu,“ segir hann og hlær dátt. Barnabók um svín Hann segist hafa týnt áttum um tíma. Hann samsinnir blaðamanni um að árin milli tvítugs og þrítugs séu oft ansi erfið. „Þá heldur maður að maður eigi að vita allt. Ég var svona 25 ára og hélt ég væri orðinn ráðsettur og væri með allt mitt á hreinu. Þá var ég giftur og bjó í út- löndum og hélt ég væri orðinn full- orðinn. Svo fór allt á annan veg og maður allt í einu orðinn þrítugur og kominn aftur í herbergið sem mað- ur ólst upp í hjá mömmu og pabba. Og bara, já ókei. Þetta er svona þá.“ Barnabókin um svínið Pétur fékk hins vegar góða dóma. „Ég skrif- aði hana í rosalegu kasti, það var hið herrans ár 2007. Það var ekkert sérstaklega gott ár fyrir mig,“ segir Guðmundur og ygglir sig. „Ég var þá varaþingmaður og ég hafði alltaf haft lífsviðurværi mitt af fjölmiðlum og þær dyr voru allar allt í einu lok- aðar. Ég var eiginlega, eftir á að hyggja, atvinnulaus. Var í stöðugu harki, að reyna að redda mér. Ég passaði ekki inn í þetta samfélag. Maður gat ekki farið á tónleika án þess að það væri partí hjá einhverj- um bankamönnum í herberginu við hliðina á. Barnabókin um svín- ið Pétur er sprottin úr þessari líð- an minni, um svín sem heldur bara sínu striki þótt samfélagið sé farið út í móa. Ég hugsa að ég skrifi aðra bók um svínið Pétur. Þar á hann að fara í kapp í kringum Ísland við hin dýrin sem skora á hann. Hin dýrin falla hins vegar öll í gildrur hvers annars, þannig að Pétur sigrar í rólegheitum.“ Hann segist vera búinn að skrifa aðra skáldsögu sem honum þykir ekki nógu góð. „Ég fékk algert ógeð á henni stuttu eftir að ég skrifaði hana, svo las ég hana reyndar aftur fyrir stuttu og fannst hún ágæt. Ég sendi hana eitthvert en fékk engin svör. Þá er hún líkast til alls ekki í lagi,“ segir hann og skellihlær. „Mér finnst bara gott að skrifa og með því að vinna í þessari skáldsögu var ég líklega, að endurspegla eig- ið sálarástand og sýn á samfélagið á einhvern hátt eins og í þeirri fyrri.“ Þriggja daga sveitabrúðkaup Guðmundur og leikkonan Alexía Björg Jóhannesdóttir felldu hugi saman árið 2005 og giftu sig að Kletti árið 2011. „Alexía á mjög fjölbreyttan vinnudag,“ segir Guðmundur. „Auk þess að vera leikkona er hún með leiðsögumannapróf, kennir börnum leiklist, útlendingum íslensku, er með sjálfsstyrkingarnámskeið í Hringsjá og „casting“ fyrirtæki. Það er enginn dagur eins. Hún er líka með uppistand og leikur þá pöru- piltinn Nonna Bö, sem er vægast sagt sóðalegur og ruddalegur piltur. Það er vinsælt hjá fyrirtækjum að fá Pörupiltana í heimsókn. Stundum byrjar grínið snemma á morgnana og þá hefur hún þurft að fara í gervi með strákinn okkar á leikskóla, sem er svolítið kómískt. Við giftum okkur 2. júlí 2011 að Kletti. Þar í einni laut bjuggum við til skógarkirkju með söguðum trjá- bekkjum og héldum þriggja daga veislu og það var alveg frábært,“ segir hann með bros á vör. „Mér finnst ég hafa verið mjög heppinn að hitta Al- exíu. Mér finnst ógnarmikilvægt að verja sem mestum tíma með henni og börnunum. Við eigum einn strák saman, Jóhannes Hermann, sem er að verða fjögurra ára og ætlar að vera Superman, Spiderman, Batman og kennari, segir hann. Svo átti ég áður Eddu Liv, sem er að verða níu ára. Hún er hjá okkur viku og viku í senn. Fjörug fimleikastelpa í Melaskóla. Þetta er mikilvægasta fólkið í lífinu.“ Ekki valdatæki sérhagsmuna Guðmundur segist vilja vera í stjórnmálum til að bæta líf fólks og hann er nokkuð sáttur við afrakstur- inn á þessu kjörtímabili. „Ég lagði niður fyrir mig nokkur skýr markmið, um það hvar ég gæti helst gert gagn að þessu sinni. Mig langaði til þess að vinna að réttarbótum í barnalög- um og er mjög ánægður með að það hefur að mestu komist í gegn. Svo vildi ég beina sjónum að því auka fjölbreytni í atvinnulífinu, með meiri áherslum á grænan iðnað, skapandi greinar, ferðaþjónustu, nýsköpun og þróun. Fjárfestingaáætlun ríkis- stjórnarinnar, sem við í Bjartri fram- tíð áttum frumkvæði að, gengur út á þetta. Þannig að þarna er annað dæmi um eitthvað sem ávannst.“ Guðmundur hefur einnig varið miklum kröftum í vinnu að inn- leiðingu á notendastýrðri, persónu- legri aðstoð fyrir fatlað fólk, sem er mikið mannréttindamál. Fyrir stuttu hlaut hann Múrbrjót, viðurkenningu Þroskahjálpar, vegna starfa sinna á þessu sviði. „Stjórnmál eiga að bæta líf okkar. Þau eiga að vera vettvang- ur til þess að gera gagn,“ segir Guð- mundur. „Mér finnst Björt framtíð vera þannig stjórnmálaafl. Við lítum á stjórnmál sem þjónustu, eða þjón- andi leiðsögn. Í flokknum er sam- ankomið fólk sem er reiðubúið að vinna á opinn og aðgengilegan máta að því að gera gagn fyrir samfélagið. Við viljum vera stjórnmálaafl sem hlúir að fjölbreytni og leitar lausna, en er ekki valdatæki fyrir fáa. Og við erum búin að búa til flokkinn, allan strúktúrinn og stefnuna með þetta í huga. Með samræðu og trausti.“ Átakapólitíkin og þjóðin „Átakapólitíkin, þessi menning sem er orðin hundgömul, er farin að eyðileggja fyrir þjóðinni. Hún er orðin niðurrifsafl. Gamlar hefðir eru orðnir ósiðir. Við þurfum að fara nýj- ar leiðir. Úti um allt samfélag hefur fólk verið að átta sig á þessu, í fyrir- tækjum og félagasamtökum. Í sveit- arstjórnum. Í Borginni. Það gengur ekki að skipta fólki upp í átakahópa og ætlast svo til þess að daglegu lífi sé mestmegnis varið í valdabrölt þeirra á milli. Þetta skilar svo litlu. Bætir ekki líf fólks. Við erum ekki að tala um að allir þurfi að vera sammála. Langt í frá. Öll eigum við að tala skýrt um það sem við viljum og setja það í púkk. En í ólíkum viðhorfum okk- ar felast mikil gæði. Þau eigum við að nýta okkur til þess að finna sem bestar lausnir á okkar sameiginlegu viðfangsefnum.“ Guðmundur segist hlakka til að kynna fyrir þjóðinni frambjóðendur Bjartrar framtíðar og vonandi nýjan, stóran þingflokk, skipaðan drífandi og uppbyggilegu fólki sem hugsar á þessum nótum. „Hjarta flokksins er djúp áhersla á mannréttindi og frið. Ekki bara milli þjóða, heldur líka manna á milli. Ég held að við getum gert mjög góða hluti fyrir Ísland með þetta upplegg í sálinni.“ Ef Björt framtíð heldur áfram að bæta við sig fylgi er útlitið hjá Guð- mundi gott. Heldur þú að þú gætir orðið góður forsætisráðherra? spyr blaðamaður og fær greinargott svar. „Já, ég held ég gæti orðið það.“ n „Þetta var Kaffi- barstímabilið mitt, þar sem ég fékk þetta ör. Týndi áttum Ég var svona 25 ára og hélt ég væri orðinn ráðsettur og væri með allt mitt á hreinu. Þá var ég giftur og bjó í útlöndum og hélt ég væri orðinn fullorðinn. Svo fór allt á annan veg og maður allt í einu orðinn þrítugur og kominn aftur í herberg- ið sem maður ólst upp í hjá mömmu og pabba. Og bara, já ókei. Þetta er svona þá. mynd siGTryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.